Fara í efni

Fréttir

Tilkynning ǀ Afgreiðsla Ráðhússins lokar dagana 6.–10. júlí

03.07.2026
Vakin er athygli á því að afgreiðsla Ráðhúss Skagafjarðar verður lokuð vegna framkvæmda frá og með 6. júlí til 10. júlí nk. Afgreiðslan verður opnuð aftur mánudaginn 13. júlí. Á meðan á lokun stendur verður líkt og fyrr segir, ekki hægt að sækja þjónustu á staðnum, en símaverið verður opið alla daga frá kl. 10:00-12:00 og 12:30-15:00. Bent er á...

Fjölgun gesta á milli ára á Héraðsbókasafni Skagfirðinga

01.07.2026
Það er ánægjulegt að greina frá því að fjölgun gesta á Héraðsbókasafni Skagfirðinga, fyrri hluta ársins 2026 á Sauðárkróki er tæp 10% miðað við fyrri hluta ársins í fyrra. Þá er fjölgun gesta í öllum mánuðum ársins, en mest þó í maí og júní. Árið 2025 komu 4.086 gestir á fyrri hluta ársins, en í ár eru gestirnir 4.477, þetta er fjölgun um rúm...

Endurauglýst skipulagsauglýsing: Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði

01.07.2026
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 50. fundi sínum þann 3. júní 2026 að auglýsa deiliskipulagsvinnslutillögu fyrir ”Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði“ í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillagan á vinnslustigi er sýnd á tveimur uppdráttum nr. DS01 og DS02, dags. 21.05.2026, unnir á Stoð ehf....

Tilboðsöflun ǀ Girðingavinna

30.06.2026
Óskað er eftir tilboðum í að taka niður 5 strengja rafmagnsgirðingu sem er um 4,5 kílómetrar að lengd. Um er að ræða verk þar sem girðingin liggur yfir nokkuð langt svæði og felur í sér að taka hana upp með tilheyrandi búnaði og frágangi. Sá sem tekur verkið að sér fær girðingarefnið til eignar auk greiðslu fyrir framkvæmdina. Verkið gæti því...

Tilkynning frá Rarik ǀ Rafmagnsbilun Sauðárkróki 30. júní

30.06.2026
Vakin er athygli á því að vegna bilunnar þarf að taka rafmagn af Hesteyri á Sauðárkróki frá kl 17:15-17:45, þriðjudaginn 30 .júní til viðgerðar. Beðist er velvirðingar á þessum óþægindum sem þetta kann að valda. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528-9000. Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof

Fundarboð: Sveitarstjórnarfundur, miðvikudaginn 1. júlí nk.

29.06.2026
51. fundur sveitarstjórnar verður haldinn að Sæmundargötu 7a, miðvikudaginn 1. júlí 2026 og hefst kl. 16:15 Dagskrá:  Fundargerðir til staðfestingar1. 2606001F - Byggðarráð Skagafjarðar - 1971.1 2606050 - Erindisbréf byggðarráðs1.2 2602003 - Trúnaðarbók byggðarráðs1.3 2605275 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts1.4 2605247 -...

Ráðherra og rektor Háskóla Íslands sækja Skagafjörð heim

29.06.2026
Ánægjulegt er að greina frá því að Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og dr. Silja Bára R. Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands komu í heimsókn í Skagafjörð ásamt föruneyti í dag, mánudaginn 29. júní. Tilefni heimsóknarinnar var stofnun háskólasamstæðu, en Háskólinn á Hólum og Háskóli Íslands sameinast formlega undir merkjum...

Tilkynning ǀ Rafmagnslaust í Hjaltadal 30. júní nk.

29.06.2026
Vakin er athygli á því að rafmagnslaust verður í Hjaltadal þriðjudaginn 30. júní nk. frá kl. 13:00-15:00,  vegna vinnu í aðveitustöð Brimness. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof

Myndasögusmiðjur á bókasafninu á Sauðárkróki miðvikudaginn 1. júlí nk.

26.06.2026
Myndasögur A-Ö Kl. 11-12:30 fyrir 9-12 ára. Manga og persónusköpun Kl. 13-14:30 fyrir 13-16 ára. Skráning á bokasafn@skagafjordur.is Aðeins 20 pláss í hvorri smiðju. Gott að hafa með: Blýant, strokleður og yddara.