Fara í efni

Fréttir

Skipulagsauglýsing: Flæðigerði, lóðir til úthlutunar

10.06.2026
Flæðigerði 14, 16 og 27 – lóðir fyrir hesthús Fyrir liggur staðfest deiliskipulag fyrir íþróttasvæði hestamanna við Flæðigerði í Skagafirði, samþykkt 25.05.2022, með breytingu samþ. 31.07.2023. Skipulagsnefnd Skagafjarðar auglýsir til úthlutunar lóðir nr. 14, 16 og 27 við Flæðigerði í samræmi við reglur sveitarfélagsins um úthlutun byggingarlóða,...

Fráveitutilkynning: Lokað fyrir hitaveituvatni í iðnaðarhverfinu á Sauðárkróki

09.06.2026
Vakin er athygli á því að lokað verður fyrir hitaveitu í iðnaðarhverfinu á Sauðárkróki í dag, 9. júní, frá kl. 13:00–15:00. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Hátíðarhöld og tónlist setja svip á Hofsós í sumar

09.06.2026
Óhætt er að segja að Hofsós verði miðpunktur menningar í sumar, en hátíðarhöld og tónlist munu fylla bæinn af lífi á næstu vikum. Það verður sannkölluð hátíðarstemmning þegar bæjarhátíðin Hofsós heim verður haldin dagana 19.–21. júní. Dansleikirnir verða á sínum stað en í ár mun Eyþór Ingi skemmta gestum og svo verður kúrekaball með Mannamót....

Framkvæmdatilkynning:Malbikun á Sauðárkróki

05.06.2026
Vakin er athygli á því að í næstu viku, dagana 8-12. júní verður farið í malbikanir og viðgerðir á götum á Sauðárkróki. Búast má við tímabundnum truflunum á umferð víða í bænum meðan á framkvæmdum stendur. Sérstakri aðvörun er beint til vegfarenda vegna hvassra kanta á þeim stöðum þar sem verið er að undirbúa malbik. Beðist er velvirðingar á...

Nýkjörin sveitarstjórn hefur hafið störf

04.06.2026
Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar Skagafjarðar fór fram í gær, miðvikudaginn 3. júní, og hefur því ný sveitarstjórn nú formlega hafið störf á nýju kjörtímabili 2026–2030. Kosið var í ráð og nefndir sveitarfélagsins en Sveinn Þ. Finster Úlfarsson var kjörinn forseti sveitarstjórnar, Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir fyrsti varaforseti og...

Nýr umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi tekur til starfa

03.06.2026
Sveinn Þ. Finster Úlfarsson hefur verið ráðinn umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi hjá sveitarfélaginu og hóf störf 1. júní sl. Sveinn mun sinna umsjón með sorphirðu og þjónustu við íbúa, hafa umsjón með landbúnaðarmálum og samskipti við fjallskilastjórnir. Þá verður það einnig á hans könnu að sinna eftirliti með lausagöngu búfjár, skipulagi refa-...

Deiliskipulagstillaga: Freyjugötureitur, suðurhluti, Sauðárkróki

03.06.2026
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 49. fundi sínum þann 19. maí 2026 að auglýsa deiliskipulagslýsingu fyrir ”Freyjugötureitur, suðurhluti, Sauðárkróki“ í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Helsta viðfangsefni fyrirhugaðs deiliskipulags verður að skapa grundvöll fyrir uppbyggingu svæðis innan þegar byggðrar íbúðarbyggðar í samræmi...

Deiliskipulagstillaga: Neðri-Ás, land 3 og 4, Skagafirði

03.06.2026
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 49. fundi sínum þann 19. maí 2026 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir ”Neðri-Ás, land 3 og 4 í Skagafirði“ í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillagan er sett fram í...

Tilkynning frá Rarik: Rafmagnstruflanir á Hofsósi miðvikudaginn 3. júní

02.06.2026
Vakin er athygli á því að vegna færslu á spenni verður rafmagnslaust í nokkrar mínútur á hluta Hofsós um kl. 10:00 þann 3.6.2026. Búast má við stuttu rafmagnsleysi aftur undir lok þessarar framkvæmdar sem verður milli kl. 10:00 og 17:00 sama dag. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000 og jafnframt má sjá kort af svæðinu á...