Fara í efni

Fréttir

Götulokanir vegna 17. júní hátíðarhalda og skrúðgöngu

17.06.2026
Vegna skrúðgöngu og 17. júní hátíðarhalda verður tímabundið lokað fyrir umferð bifreiða og/eða umferð stýrt á eftirfarandi götum frá kl. 13:00 til 14:00: Gatnamót Skagfirðingabrautar og Skólastígs. Gatnamót Skagfirðingabrautar og Ránarstígs. Gatnamót Skagfirðingabrautar og Bárustígs. Gatnamót Skagfirðingabrautar og Öldustígs. Gatnamót...

Dagskrá fyrir 17. júní í Skagafirði

16.06.2026
Uppfært: Vegna framkvæmda verður sundlaugin á Sauðárkróki ekki opin á miðvikudaginn eins og til stóð. 

Fráveitutilkynning: Lokað fyrir heitavatnið frá Suðurgöt 2 á Sauðárkróki

16.06.2026
Vakin er athygli á því að lokað verður fyrir heitavatnið frá Suðurgötu 2 á Sauðárkróki í dag, þriðjudaginn 16. júní frá kl. 10:00 til 16:00. Bilun er á hitaveitulögn. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. 

Fráveitutilkynning: Umferðatafir og þrengingar á Hólmagrund á Sauðárkróki

15.06.2026
Vakin er athygli á því að vegna fráveituframkvæmda má búast við umferðatöfum og þrengingum á Hólmagrund á Sauðárkróki í dag, mánudaginn 15. júní og á morgun, 16. júní.Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar á svæðinu. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Björnis brunabangsi kemur í heimsókn til Skagafjarðar

12.06.2026
Gaman er að segja frá því að Björnis brunabangsi ætlar að kíkja í heimsókn til Skagafjarðar dagana 19. og 20. júní nk. Björnis hefur undanfarið verið öllum slökkviliðum landsins til aðstoðar við fræðslu og forvarnarstarf, einkum þegar kemur að fræðslu fyrir yngstu kynslóðina.  Það verður opið hús á slökkvistöð Sauðárkróks föstudaginn 19....

Atvinnulífssýning Skagafjarðar dagana 19.-20. september nk.

12.06.2026
Atvinnulífssýning Skagafjarðar verður haldin í íþróttahúsinu á Sauðárkróki helgina 19.-20. september nk. Sem fyrr er sýningunni ætlað að varpa ljósi á þann fjölbreytileika sem er í þjónustu, framleiðslu, mannlífi og menningu í sveitarfélaginu ásamt því að vekja jákvæða athygli á samfélaginu. Sýningin er ætluð fjölbreyttum hópi aðila, þar á meðal...

Hinsegin hátíð í Skagafirði – vilt þú vera með?

11.06.2026
Hinsegin hátíð í Skagafirði verður haldin dagana 10.-15. ágúst næstkomandi. Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Lögð verður áhersla á að vekja athygli á mannréttindum og margbreytileika ásamt því að gleðjast og hafa gaman, öll saman. Verkefnið er eitt...

Uppfærð framkvæmdatilkynning: Tímabundin lokun sundlaugar á Sauðárkróki

10.06.2026
Í síðustu viku vakti sveitarfélagið athygli á því að vegna viðhalds yrði sundlauginni á Sauðárkróki lokað tímabundið. Unnið er að lagfæringum á sundlaugarbakkanum auk þess sem verið er að klára uppsetningu á hitalögnum í kringum gömlu laugina.   Stefnt var að því að sundlaugin yrði opnuð aftur helgina 13.–14. júní nk. en vegna...

Nýr körfuboltavöllur í Hlíðarhverfi kominn vel á veg

10.06.2026
Framkvæmdum á nýjum körfuboltavelli í Hlíðarhverfi á Sauðárkróki miðar vel áfram. Nú stendur yfir malbikun en það er fyrirtækið Malbikun Akureyrar sem sér um þann hluta verksins. Fyrirtækið Þ. Hansen sá um jarðvinnuna. Það er síðan Þjónustumiðstöð sveitarfélagsins sem sér um lokafráganginn sem felur í sér uppsetningu á körfum ásamt því að leggja...