Fara í efni

Fréttir

Tilkynning ǀ Truflun á heitu- og kölduvatni við Víðigrund

13.07.2026
Vakin er athygli á því að truflun verður á heitu- og kölduvatni við Viðigrund í dag, mánudaginn 13. júlí, vegna tenginga í götunni. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Nýjar reglur um sérstaka hvatapeninga til barna í Skagafirði

13.07.2026
Sveitarfélagið hefur staðfest nýjar reglur um úthlutun sérstakra hvatapeninga sem ætlað er að styðja við þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi. Markmið reglnanna er að auka jöfnuð og tryggja að börn frá tekjulágum heimilum hafi jafnan aðgang að skipulögðu frístundastarfi. Samkvæmt reglunum geta börn á aldrinum 5–18 ára með lögheimili í...

Tilkynning ǀ Afgreiðsla Ráðhússins lokar dagana 13.–15. júlí

13.07.2026
Vakin er athygli á því að afgreiðsla Ráðhúss Skagafjarðar verður lokuð vegna framkvæmda frá og með 13. júlí til 15. júlí nk. Afgreiðslan verður opnuð aftur fimmtudaginn 16. júlí. Á meðan á lokun stendur verður líkt og fyrr segir, ekki hægt að sækja þjónustu á staðnum, en símaverið verður opið alla daga frá kl. 10:00-12:00 og...

Tilkynning ǀ Víðigrund á Sauðárkróki lokar sunnanmegin

10.07.2026
Vakin er athygli á því að Víðigrund á Sauðárkróki lokar nú sunnanmegin vegna áframhaldandi gatnaframkvæmda. Gatan hefur einungis verið lokuð norðanmegin til að tryggja umferð að leikskólanum. Nú eru verktakar að færa sig á hinn endann og hafa lokað götunni við gatnamót Grundastígs og Víðigrundar og einnig frá Hegrabraut inn á Víðigrund. Áætlað er...

Rannsóknarsetur um íslenska hestinn verður á Hólum

10.07.2026
Við setningu Landsmóts hestamanna á Hólum sem fram fór í gær, fimmtudaginn 9. júlí, undirrituðu Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti Háskóla Íslands á Hólum, og Magnús Barðdal, sveitarstjóri Skagafjarðar, viljayfirlýsingu um stofnun...

Leik og sprell á Sauðárkróki 13. - 17. júlí

09.07.2026
Leik og Sprell verður á Sauðárkróki dagana 13. - 17. júlí frá kl. 09:00 - 12:00. Kennt verður í Húsi Frítímans. Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Öll fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið...

Fyrsti fundur nýrrar byggingarnefndar skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi

08.07.2026
Í dag, miðvikudaginn 8. júlí, fór fram fyrsti fundur nýrrar byggingarnefndar skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi. Fundurinn var haldinn á Hofsósi í blíðskaparveðri og fengu aðalmenn nefndarinnar, þau Eyþór Fannar Sveinsson, Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir, Einar Eðvald Einarsson og Högni Elfar Gylfason, greinagóða kynningu á því hvar verkefnið er...

Hinsegin hátíð í Skagafirði – vilt þú vera með?

08.07.2026
Hinsegin hátíð í Skagafirði verður haldin dagana 10.-15. ágúst næstkomandi. Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Lögð verður áhersla á að vekja athygli á mannréttindum og margbreytileika ásamt því að gleðjast og hafa gaman, öll saman. Stefnt er að því...

Landsmótskveðja frá sveitarstjóra – Verið velkomin í Skagafjörð

07.07.2026
Kæru Landsmótsgestir. Ég býð ykkur hjartanlega velkomin í Skagafjörð á Landsmót hestamanna 2026. Það er alltaf mikill heiður að fá að halda stórhátíð af þessari stærðargráðu og í leiðinni geta sýnt allt það besta sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða. Það er óhætt að segja að Skagafjörður muni iða af lífi næstu daga, enda fram undan fjölbreytt...