Opnun heitra potta, saunu og eimbaðs í Sundlaug Sauðárkróks
24.06.2026
Sundlaugin verður nú opin samkvæmt hefðbundum opnunartíma, þ.e. frá 7:00-21:00 virka daga og frá kl. 10:00-18:00 um helgar. Sundlaugagestir geta nýtt heitu pottana, sánuna og eimbaðið. Aðrar laugar eru enn lokaðar vegna framkvæmdanna. Framkvæmdum við Sundlaug Sauðárkróks miðar ágætlega, en áfram verður talsverð röskun á sundlaugarsvæðinu þar til verkinu er lokið.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar framkvæmdir hafa valdið og þakkar sveitarfélagið íbúum fyrir þolinmæði og skilning.