Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd
Dagskrá
1.Skýrsla deildarstjóra
Málsnúmer 2508066Vakta málsnúmer
2.Fjárhagsáætlun 2026 - málaflokkur 05_Menningarmál
Málsnúmer 2506029Vakta málsnúmer
Fjárhagsáætlun fyrir málaflokk nr. 5 - menningarmál lögð fram og tekin til umræðu.
Nefndin hefur fundað með forstöðumönnum og starfsfólki menningarmála vegna fjárhagsáætlunargerð fyrir 2026.
Nú liggja fyrir helstu áhersluverkefni fyrir komandi ár og samþykkir nefndin samhljóða að fela deildarstjóra að vinna málið áfram í takt við umræður á fundinum.

3.Fjárhagsáætlun 2026 - málaflokkur 13_Atvinnumál
Málsnúmer 2506033Vakta málsnúmer
Umræður um rammaáætlun fyrir málaflokk 13 - Atvinnumál.
Nefndin ræddi helstu áhersluverkefni fyrir árið 2026 vegna fjárhagsáætlunargerð fyrir 2026.
Nefndin samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra að vinna málið áfram í takt við umræður á fundinum.

4.Forgangsverkefni áfangastaðaáætlunar Norðurlands 2025
Málsnúmer 2506192Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands dags. 13. júní 2025, þar sem óskað er eftir uppfærðum lista yfir forgangsverkefni frá sveitarfélögum á Norðurlandi.
Skagafjörður auglýsti eftir tillögum að verkefnum fyrir sveitarfélagið 25. júní sl. og var gefinn frestur til 31. júlí sl. til að skila þeim inn.
Engar tillögur bárust og samþykkir verður því sendur inn óbreyttur listi frá fyrra ári.
Nefndin samþykkir samhljóða að forgangsverkefni Skagafjarðar séu eftirfarandi:
Staðarbjargavík á Hofsósi
Hólar í Hjaltadal
Glaumbær
Kakalaskáli
Austurdalur í Skagafirði

5.Stöðugreining og aðgerðaráætlun fyrir ferðaþjónustuna í Skagafirði
Málsnúmer 2508069Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Tómasi Árdal fyrir hönd Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði dags. 2. júlí 2025.
Á fundi félagsins sem fór fram daginn áður var ákveðið að veita fjármagn fyrir stöðugreiningu og aðgerðaráætlun fyrir ferðaþjónustuna í Skagafirði og óskað er eftir aðkomu sveitarfélagsins í slíku verkefni.
Markaðsstofa Norðurlands hefur unnið sambærilegt verkefni með öðrum sveitafélögum í landshlutanum sem gengur út á það að safna upplýsingum um innviði og stöðu ferðaþjónustunnar á vissum svæðum. Síðan eru listaðar upp hugmyndir að aðgerðum til frekari þróunar ferðaþjónustu á því svæði sem um ræðir.
Nefndin þakkar Tómasi fyrir framlagt erindi og tekur jákvætt í verkefnið.
Nefndin samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra að kanna kostnað við þesskonar verkefni og einnig aðkomu sveitarfélagsins að því.

6.Hinsegin hátíð 2026
Málsnúmer 2508067Vakta málsnúmer
Umræður um hinsegin hátíð fyrir árið 2026.
Hinsegin dagar eru að öllu jöfnu haldnir hátíðarlegir fyrstu vikuna í ágúst, en um er að ræða daga sem eru tileinkaðir mannréttindum og margbreytileika.
Nefndin samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra að ræða við SSNV og HIN - Hinsegin Norðurland um samstarfsgrundvöll fyrir hátíð á næsta ári.

7.Sæluvika 2026
Málsnúmer 2508070Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Elínborgu Erlu Ásgeirsdóttur fulltrúa Byggðalista.
Lagt til að skoðað verði hvort mögulegt sé að færa Sæluviku Skagfirðinga fram um tvær vikur miðað við núverandi fyrirkomulag.
Þrátt fyrir að síðasti sunnudagur aprílmánaðar hafi undanfarin ár verið upphafsdagur Sæluviku Skagfirðinga þá hefur það ekki verið svo alla tíð. Þvert á móti þá hefur Sæluvikan, tímasetning hennar og dagskrá, mótast í gegnum árin í takt við samfélagið og þróun þess. Stór hluti íbúa Skagafjarðar eru bændur og líklegt að árstíðabundin störf geri þeim erfitt um vik að sækja dagskrá Sæluviku miðað við núverandi fyrirkomulag. Þessi breyting yrði því vonandi til að efla þessa merkilegu hefð Skagfirðinga enn frekar og auka fjölbreytni og þáttöku í viðburðum.
Nefndin samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra að setja í loftið leiðbeinandi íbúakönnun og kanna áhuga á að færa tímasetningu Sæluvikunnar.

8.Lýðheilsukort á Norðurlandi vestra
Málsnúmer 2508102Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi dags. 13. ágúst 2025 frá Magnúsi Reynissyni fyrir hönd Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra þar sem óskað er eftir áliti sveitarfélagsins um sameiginlegt lýðheilsukort fyrir íbúa landshlutans.
Nefndin tekur jákvætt í erindið og samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra að afla upplýsinga um rekstur og útfærslu verkefnisins.

9.Ársskýrsla Héraðsskjalasafns og Listasafns Skagfirðinga 2024
Málsnúmer 2507077Vakta málsnúmer
Framlögð ársskýrsla Héraðsskjalasafns og Listasafns Skagfirðinga 2024.
Sólborg Una Pálsdóttir kom á fundinn og kynnti ársskýrsluna.
Nefndin þakkar fyrir góða yfirferð.

Fundi slitið - kl. 15:40.
Nefndin þakkar fyrir yfirferðina á þeim verkefnum sem eru til meðferðar hjá deildarstjóra.