Fara í efni

Sæluvika 2026

Málsnúmer 2508070

Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 36. fundur - 20.08.2025

Lagt fram erindi frá Elínborgu Erlu Ásgeirsdóttur fulltrúa Byggðalista.

Lagt til að skoðað verði hvort mögulegt sé að færa Sæluviku Skagfirðinga fram um tvær vikur miðað við núverandi fyrirkomulag.

Þrátt fyrir að síðasti sunnudagur aprílmánaðar hafi undanfarin ár verið upphafsdagur Sæluviku Skagfirðinga þá hefur það ekki verið svo alla tíð. Þvert á móti þá hefur Sæluvikan, tímasetning hennar og dagskrá, mótast í gegnum árin í takt við samfélagið og þróun þess. Stór hluti íbúa Skagafjarðar eru bændur og líklegt að árstíðabundin störf geri þeim erfitt um vik að sækja dagskrá Sæluviku miðað við núverandi fyrirkomulag. Þessi breyting yrði því vonandi til að efla þessa merkilegu hefð Skagfirðinga enn frekar og auka fjölbreytni og þáttöku í viðburðum.

Nefndin samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra að setja í loftið leiðbeinandi íbúakönnun og kanna áhuga á að færa tímasetningu Sæluvikunnar.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 40. fundur - 09.12.2025

Á 36. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 20. ágúst 2025 fól nefndin starfsmönnum nefndarinnar að setja í loftið leiðbeinandi íbúakönnun til að kanna áhuga á að færa tímasetningu Sæluvikunnar. Umsóknarfresturinn rann út 29. nóvember sl.

Niðurstöður íbúakönnunarinnar lagðar fram.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fór yfir fyrirliggjandi niðurstöður sem voru afgerandi, 74% þátttakenda voru fylgjandi breytingum og 26% voru á móti. Það kom fram í athugasemdum könnunarinnar að óskað væri eftir fjölbreyttara viðburðarhaldi, sérstaklega fyrir börn og ungmenni.

Nefndin samþykkir samhljóða að færa hátíðina fram um tvær vikur sem tilraunaverkefni til tveggja ára. Setning Sæluviku verður því 12. apríl 2026.

Nefndin hvetur íbúa til þess að taka virkan þátt í Sæluviku 2026, bæði sem þátttakendur og skipuleggjendur.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 43. fundur - 19.02.2026

Umræður um Sæluviku 2026.

Starfsmaður nefndarinnar fór yfir nýtt kynningarefni ásamt fyrirkomulagi hátíðarinnar í ár.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd felur starfsmanni nefndarinnar að auglýsa eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar árið 2026.

Nefndin felur starfsmanni nefndarinnar jafnframt að auglýsa eftir styrktarumsóknum vegna viðburðarhalds á hátíðinni.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 45. fundur - 26.03.2026

Á setningu Sæluviku Skagfirðinga 2026 verða Samfélagsverðlaun Skagafjarðar veitt í ellefta sinn.

Verðlaunin eru veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í sveitarfélaginu Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag.

Umræður fóru fram um þær fjölmörgu og afar góðu tilnefningar sem bárust inn til Samfélagsverðlauna Skagafjarðar 2026.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að veita Karli Lúðvíkssyni samfélagsverðlaunin í ár, en hann hefur til fjölda ára unnið óeigingjarnt starf við eflingu lýðheilsu hjá samferðafólki sínu. Í innsendri tilnefningu kom sérstaklega fram að hann væri óþreytandi við að hvetja fólk til að stunda íþróttir til bættrar heilsu, en hann hefur haft frumkvæði að fjölbreyttu íþróttastarfi fyrir öll um árabil. Störf hans með fötluðum einstaklingum hefur verið hans hjartans mál í gegnum tíðina, bæði í kennslu í sumarbúðastarfi og í öðrum verkefnum og samveru. Þá hefur hann einnig verið í sjálfboðastarfi hjá Rauða krossinum og Kiwanisklúbbnum Drangey.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin óskar Karli innilega til hamingju með samfélagsverðlaunin í ár og færir honum sérstakar þakkir fyrir sitt framlag til samfélagsins.