Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd

43. fundur 19. febrúar 2026 kl. 10:00 - 11:44 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ragnar Helgason formaður
  • Hrefna Jóhannesdóttir varaform.
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir aðalm.
  • Tinna Kristín Stefánsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Maria Neves verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Maria Neves deildarstjóri þróunar, miðlunar og menningar
Dagskrá

1.Skýrsla deildarstjóra

Málsnúmer 2508066Vakta málsnúmer

Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni frá síðasta fundi.

Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.

Nefndin þakkar fyrir yfirferðina.

2.Sæluvika 2026

Málsnúmer 2508070Vakta málsnúmer

Umræður um Sæluviku 2026.

Starfsmaður nefndarinnar fór yfir nýtt kynningarefni ásamt fyrirkomulagi hátíðarinnar í ár.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd felur starfsmanni nefndarinnar að auglýsa eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar árið 2026.

Nefndin felur starfsmanni nefndarinnar jafnframt að auglýsa eftir styrktarumsóknum vegna viðburðarhalds á hátíðinni.

3.Styrkbeiðni - Alþýðulist

Málsnúmer 2511194Vakta málsnúmer

Á 42. fundi Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 16. janúar 2026 var tekið fyrir erindi dags. 17. nóvember 2025 frá Ástu Búadóttur, formanni Gallerí Alþýðulista. Nefndin samþykkti samhljóða að fresta afgreiðslu málsins þar til á næsta fundi.

Gallerí Alþýðulist óskar eftir hærri styrk vegna aukinnar aðsóknar í upplýsingamiðstöðina á undanförnum árum, meðal annars vegna lengingar ferðamannatímabilsins á svæðinu. Vegna þess stendur til að lengja opnunartímabil starfseminnar og það krefst aukinna fjárútláta.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að hækka upphæð styrktarsamnings, sem gerður hefur verið ár hvert til styrktar starfsemi upplýsingamiðstöðvarinnar í Varmahlíð. Upphæð samningsins hefur ekki tekið breytingum frá árinu 2021 og er því lagt til að samningurinn fyrir árið 2026 verði uppreiknaður sem nemur vísitölu neyðsluverð, eða hækkun upp á 36,4%.

Nefndin felur starfsmanni nefndarinnar að ganga til samninga við Gallerí Alþýðulist og gera árssamning með ofangreindum forsendum til hliðsjónar, með möguleika á framlengingu.

Nefndin vísar málinu til byggðarráðs.

Tinna Kristín Stefánsdóttir óskar bókað:

VG og óháð harma að ekki sé hægt að verða að öllu leiti við beiðni Alþýðulistar um aukinn styrk, sérstaklega í ljósi þess hversu mikill fjöldi fólks leitar sér upplýsinga hjá þeirri upplýsingamiðstöð en á liðnu ári voru það tæplega 14 þúsund manns. Er Alþýðulist ein um að sinna slíkri upplýsingagjöf í firðinum sem stendur.

4.Styrkbeiðni Uppsetning á leikritinu Stella í Orlofi

Málsnúmer 2602035Vakta málsnúmer

Framlagt erindi dags. 28.janúar 2026 frá Jónasi Atla Eyþórssyni og Sigríði Hrafnhildi Stefansdóttir f.h. nemendafélags Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra þar sem óskað er eftir styrk til uppsetningar á leikritinu Stellu í Orlofi.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar fyrir erindið og óskar nemendafélaginu innilega til hamingju með uppsetningu á þessu frábæra leikriti sem hefur slegið í gegn.

Nefndin samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð 75.000 kr. og hvetur nemendafélagið til að sækja um í Uppbyggingarsjóð SSNV fyrir næstu uppsetningu.

5.Ársreikningar félagsheimila 2025

Málsnúmer 2601193Vakta málsnúmer

Lagðir fram til kynningar ársreikningar frá félagsheimilunum í Árgarði og Ketilás.

Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 11:44.