Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd

45. fundur 26. mars 2026 kl. 10:30 - 14:15 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ragnar Helgason formaður
  • Hrefna Jóhannesdóttir varaform.
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir aðalm.
  • Tinna Kristín Stefánsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Maria Neves verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Maria Neves deildarstjóri þróunar, miðlunar og menningar
Dagskrá
Hrefna Jóhannesdóttir sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

1.Sæluvika 2026

Málsnúmer 2508070Vakta málsnúmer

Á setningu Sæluviku Skagfirðinga 2026 verða Samfélagsverðlaun Skagafjarðar veitt í ellefta sinn.

Verðlaunin eru veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í sveitarfélaginu Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag.

Umræður fóru fram um þær fjölmörgu og afar góðu tilnefningar sem bárust inn til Samfélagsverðlauna Skagafjarðar 2026.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að veita Karli Lúðvíkssyni samfélagsverðlaunin í ár, en hann hefur til fjölda ára unnið óeigingjarnt starf við eflingu lýðheilsu hjá samferðafólki sínu. Í innsendri tilnefningu kom sérstaklega fram að hann væri óþreytandi við að hvetja fólk til að stunda íþróttir til bættrar heilsu, en hann hefur haft frumkvæði að fjölbreyttu íþróttastarfi fyrir öll um árabil. Störf hans með fötluðum einstaklingum hefur verið hans hjartans mál í gegnum tíðina, bæði í kennslu í sumarbúðastarfi og í öðrum verkefnum og samveru. Þá hefur hann einnig verið í sjálfboðastarfi hjá Rauða krossinum og Kiwanisklúbbnum Drangey.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin óskar Karli innilega til hamingju með samfélagsverðlaunin í ár og færir honum sérstakar þakkir fyrir sitt framlag til samfélagsins.

2.Umsókn um styrk vegna viðburðar á Sæluviku 2026

Málsnúmer 2603034Vakta málsnúmer

Baldur Hrafn Björnsson vék af fundi.

Framlagðar styrkbeiðnir sem bárust inn vegna viðburða á Sæluviku 2026.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að veita eftirfarandi aðilum styrk:

Gunnar Sigurðsson fyrir hönd Skagfirska Kammerkórsins, fyrir tónleika að upphæð 100.000 kr.
Þorgrímur Ómar Tavsen fyrir hönd Smábátasafnsins, fyrir veitingar á Sæluviku að upphæð 100.000 kr.
Ásta Ólöf Jónsdóttir fyrir hönd Pilsaþyts, fyrir dansiball að upphæð 50.000 kr.
Elín Jónsdóttir fyrir hönd Kvennakórsins Sóldísa fyrir tónleika að upphæð 100.000 kr.
Þórhildur M. Jónsdóttir fyrir hönd Farskólans, fyrir viðburðinn Bragðferðalag um heiminn - matur og menning að upphæð 200.000 kr.
Eyþór Árnason, fyrir ljóðaupplestur víðsvegar um Skagafjörð að upphæð 50.000 kr.

Saga Sjöfn Ragnarsdóttir fyrir hönd Leikfélags Sauðárkróks fyrir leiksýningu og Sigurlína Erla Magnúsdóttir fyrir hönd Flugu hf. vegna reiðhallarsýningar sóttu einnig um styrki. Nefndin vekur athygli á að í gildi eru samstarfssamningar milli þessar tveggja umsækjenda og sveitarfélagsins þar sem kveðið er á um stuðning sveitarfélagsins við starfsemi þeirra. Með hliðsjón af þeim samningum og þeim ramma sem nefndin setur um styrktarupphæðir fyrir Sæluvikuna, telur nefndin sér ekki fært að verða við styrkbeiðnum þeirra að þessu sinni.

3.Merkingar og menningarvitund innan Skagafjarðar

Málsnúmer 2410255Vakta málsnúmer

Umræður um merkingar og menningarvitund hjá sveitarfélaginu.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmanni nefndarinnar að vinna að ramma fyrir verkefnið. Nefndin leggur til að ár hvert, í tengslum við Sæluviku verði með einum eða öðrum hætti vakin athygli á verkum skagfirskra listarmanna til að auka menningarvitund í sveitarfélaginu.
Nefndin leggur áherslu á að gert verði ráð fyrir verkefninu í fjárhagsáætlun ár hvert.

4.Viðurkenning til listamanns Skagafjarðar

Málsnúmer 2505076Vakta málsnúmer

Umræður um viðurkenningu til listamanns Skagafjarðar.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að veita viðurkenningu til listamanns Skagafjarðar.
Nefndin felur starfsmanni nefndarinnar að útbúa ramma utan um verkefnið í samræmi við umræður fundarins og leggja hann fyrir næsta fund.

5.Aðalfundur fundargerð og fundargögn 2026

Málsnúmer 2603163Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð frá aðalfundi Cruise Iceland.

Fundi slitið - kl. 14:15.