Fara í efni

Umsókn um styrk vegna viðburðar á Sæluviku 2026

Málsnúmer 2603034

Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 45. fundur - 26.03.2026

Baldur Hrafn Björnsson vék af fundi.

Framlagðar styrkbeiðnir sem bárust inn vegna viðburða á Sæluviku 2026.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að veita eftirfarandi aðilum styrk:

Gunnar Sigurðsson fyrir hönd Skagfirska Kammerkórsins, fyrir tónleika að upphæð 100.000 kr.
Þorgrímur Ómar Tavsen fyrir hönd Smábátasafnsins, fyrir veitingar á Sæluviku að upphæð 100.000 kr.
Ásta Ólöf Jónsdóttir fyrir hönd Pilsaþyts, fyrir dansiball að upphæð 50.000 kr.
Elín Jónsdóttir fyrir hönd Kvennakórsins Sóldísa fyrir tónleika að upphæð 100.000 kr.
Þórhildur M. Jónsdóttir fyrir hönd Farskólans, fyrir viðburðinn Bragðferðalag um heiminn - matur og menning að upphæð 200.000 kr.
Eyþór Árnason, fyrir ljóðaupplestur víðsvegar um Skagafjörð að upphæð 50.000 kr.

Saga Sjöfn Ragnarsdóttir fyrir hönd Leikfélags Sauðárkróks fyrir leiksýningu og Sigurlína Erla Magnúsdóttir fyrir hönd Flugu hf. vegna reiðhallarsýningar sóttu einnig um styrki. Nefndin vekur athygli á að í gildi eru samstarfssamningar milli þessar tveggja umsækjenda og sveitarfélagsins þar sem kveðið er á um stuðning sveitarfélagsins við starfsemi þeirra. Með hliðsjón af þeim samningum og þeim ramma sem nefndin setur um styrktarupphæðir fyrir Sæluvikuna, telur nefndin sér ekki fært að verða við styrkbeiðnum þeirra að þessu sinni.