Auglýst er eftir fólki til starfa við málefni fatlaðs fólks - búsetu, skammtímavistun og dagþjónustu til sumarafleysinga og einnig í frekari liðveislu 50% framtíðarstarf
Um helgina var atvinnu- menningar- og mannlífssýningin Lífsins gæði og gleði haldin í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Óhætt er að segja að sýningin hafi heppnast vel og er áætlað að um fimm þúsund manns hafi heimsótt sýninguna báða dagana.
Hrefna Gerður Björnsdóttir hefur verið ráðin í stöðu mannauðstjóra hjá Sveitarfélaginu Skagafirði. Alls sóttu 33 umsækjendur um starfið og þar af drógu sjö umsókn sína til baka.
Hrefna Gerður lauk BA prófi í lögfræði árið 2007 og meistaraprófi í lögfræði árið 2010. Lokaritgerð hennar til ML prófs fjallaði um áminningar starfsmanna ríkisins, skv. 21.gr. laga nr. 70/1996. Hún hefur einnig lokið fjölmörgum námskeiðum hjá Félagsmálaskóla Alþýðu og frá Fræðslusetri Starfsmenntar m.a. samningar sveitarfélaga og SGS.
Sunnudaginn 27. apríl verður Sæluvikan sett í íþróttahúsinu á Sauðárkróki á atvinnulífssýningunni Lífsins gæði og gleði. Margir fleiri viðburðir verða um helgina og því úr nógu að velja vilji menn gera sér glaðan dag.
Næstkomandi sunnudag verður Sæluvika Skagfirðinga formlega sett á atvinnulífssýningunni, Lífsins gæði og gleði. En Skagfirðingar eru þekktir fyrir að kunna að skemmta sér og því er ýmislegt um að vera áður en hin formlega Sæluvika hefst.