Fara í efni

Fjölskyldusvið auglýsir eftir starfsfólki til lengri tíma og sumarafleysinga

29.04.2014

Málefni fatlaðs fólks - búseta, skammtímavistun og dagþjónusta

Lýsing á starfinu: Starfsmaður sinnir fötluðum einstaklingum. Hann sér um almenna umönnun þeirra vegna líkamlegra og félagslegra þarfa eftir því sem við á.

Kröfur v/starfs: Leitað er að einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri. Í búsetu og skammtímavistun er um vaktavinnu að ræða en dagvinnu í dagþjónustu.

Ráðningartími er frá byrjun maí.

Upplýsingar um störf gefa:

Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi, steinunnr@skagafjordur.is s: 455 6000

Dóra Heiða Halldórsdóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi, doraheida@skagafjordur.is s: 455 6000

Edda E. Haraldsdóttir, forstöðumaður, fellstun@skagafjordur.is s: 453 6692

Jónína G. Gunnarsdóttir, forstöðumaður, idja@skagafjordur.is s: 453 6853

 

Málefni fatlaðs fólks – frekari liðveisla - 50% starf - laust nú þegar

Lýsing á starfinu: Starfsmaður vinnur með fötluðum einstaklingum í sjálfstæðri búsetu við ýmis verkefni daglegs lífs, svo og í samvinnu við ráðgjafarþroskaþjálfa að gerð áætlana um aðstoð við viðkomandi.

Kröfur v/starfs: Lögð er áhersla á viðhorf eins og virðingu, valdeflingu og frumkvæði í starfi. Umsækjendur skulu hafa menntun er nýtist í starfinu, t.d. í þroskaþjálfun eða aðra menntun á háskólastigi.

Upplýsingar gefur Steinunn Rósa

Sækja um starf