Fara í efni

Skipulagsnefnd

91. fundur 05. febrúar 2026 kl. 13:00 - 15:15 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigríður Magnúsdóttir formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Eyþór Fannar Sveinsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Borgarflöt - Deiliskipulag

Málsnúmer 2505220Vakta málsnúmer

Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Borgarflöt 35, Sauðárkróki" sem var í kynningu dagana 26.11.2025- 09.01.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 992/2025, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2025/992 .
Fjórar umsagnir bárust sem gefa ekki tilefni til breytinga.

Vegna framkominna upplýsinga frá Framkvæmdasýslu ríkisins varðandi fyrirhugað leiguútboð á uppbyggingu frumhúss Háskólans á Hólum, leggur Skipulagsnefnd til við sveitarstjórn að lóðinni verði skipta upp í þrjár lóðir, Borgarflöt 35, 37 og 39.
Breytingin hefur þau áhrif að tryggja þarf aðkomu að lóðum nr. 35 og 39 með yfirferðarrétti um lóðina Borgarflöt 37. Framlögð drög, Borgarflöt 35, Sauðárkróki, tillaga að deiliskipulagi, skipulagsuppdráttur og greinargerð, í verki nr.56293330 liggur frammi við afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Borgarflöt 35, Sauðárkróki" og senda hana Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

2.Sauðárkrókshöfn - Deiliskipulagsbreyting - Háeyri 8, L197232

Málsnúmer 2602033Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir deiliskipulag hafnarsvæðis Sauðárkróks, fyrir lóðirnar Háeyri 6 og 8.
Veitt var samþykki fyrir að umsækjandi, FISK-Seafood ehf. fengi að vinna deiliskipulagsbreytingu á eigin kostnað á 45. fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 21.01.2026 undir málsnúmerinu 2512079, heiti máls: Háeyri 8, L197232 - Beiðni um frest til að skila inn umsókn um byggingarleyfi og heimild til að láta vinna breytingu á deiliskipulagi.

Breytingin felst í að lóðirnar Háeyri 6 og 8 sameinist í Háeyri 6, undir landnúmerinu 179232. Stærð Háeyri 6 verður eftir breytingu 1.583,8 m2 og byggingarreiturinn stækkar í 1.129,9 m2. Reiturinn er eftir breytingu 3 m frá lóðarmörkum að vestan, 3,5 m frá lóðarmörkum að sunnan, 2 metra frá lóðarmörkum að austan og 3 m frá lóðarmörkum að norðanverðu. Hámarks nýtingarhlutfall hækkar í 0,65, hámarks hæðafjöldi og hámarks hæð byggingar er óbreytt. Þá bætist við skilmáli um hámarks stærð botnflatar.

Tillagan að deiliskipulagsbreytingu var tekin fyrir á 42. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar Skagafjarðar fyrr í dag 5. febrúar 2026, og gerir landbúnaðar- og innviðanefnd ekki athugasemd við tillöguna.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna fyrir "Sauðárkrókshöfn - Háeyri 6 og 8" skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og í samræmi við 5. gr. Hafnarrlegugerðar fyrir hafnir Hafnarsjóðs Skagafjarðar.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

3.Langaborg (L225909) - Beiðni um heimild til að vinna deiliskipulag

Málsnúmer 2511043Vakta málsnúmer

Lögð fram deiliskipulagstillaga fyrir Lönguborg í Hegranesi, Skagafirði, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni.

Tekið hefur verið tillit til þeirra umsagna sem bárust við skipulagslýsinguna.
Skipulagsuppdráttur og greinargerð nr. DS-01, dags. 30.01.2026, útgáfa 1.0, sýnir afmörkun skipulagssvæðis og lóðamörk, aðkomu og byggingarreiti innan skipulagssvæðsins, ásamt helstu skilmálum fyrir stærð byggingarreiti, hámarks byggingarmagn innan byggingarreita, hámarks byggingarhæð, hámarks stærð botnflatar bygginga o.fl.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna fyrir "Langaborg í Hegranesi" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

4.Skagfirðingabraut 45, Sauðárkróki, 2. hæð, F2132154 - Beiðni um heimild til að stækka svalir

Málsnúmer 2602024Vakta málsnúmer

Þann 18.06.2025 tók skipulagsnefnd Skagafjarðar fyrri umsókn umsækjenda eigenda íbúðar á 2. hæð Skagfirðingabrautar 45 (L143712, F2132154), málsnúmer 2505059, um leyfi til að stækka svalir íbúðarinnar.
Skipulagsnefnd samþykkti samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að grenndarkynna framkvæmdina fyrir lóðarhöfum Skagfirðingabrautar 43, 45 (eiganda neðri hæðar), 47 og 49, Öldustígs 1, 3, 5 og 7 og Bárustígs 1, 2 og 4. Sveitarstjórn samþykkti grenndarkynningu þann 23.06.2025.
Grenndarkynning fór fram dagana 26.06.2025-27.07.2025, málsnúmer á vef skipulagsgáttar er 875/2025. Tvær umsagnir bárust, önnur án athugasemda.
Í umsögn eigenda Skagfirðingabrautar 47 voru gerðar athugasemdir við framkvæmdina og mögulegra áhrifa á landnotkun, útsýni, skuggavarp og innsýn.
Þann 18.09.2025 sendu íbúar Skagfirðingabrautar 45 inn umsögn fasteignasala vegna áhrifa umbeðinna framkvæmda þar sem ekki var talið að að framkvæmdin myndi valda fjártjóni á nærliggjandi húsum.
Þann 22.01.2026 fór skipulagsnefnd Skagafjarðar í vettvangsferð á lóðina við Skagfirðingabraut 47 og hittu þar lóðarhafa til að meta betur möguleg áhrif umbeðinnar framkvæmdar. Lóðarhafar Skagfirðingabrautar 45 komu á fund nefndar í Ráðhúsinu í kjölfarið. Eftir umræður við lóðarhafa, þar sem farið var yfir helstu athugasemdir og mótvægisaðgerðir, samþykkti skipulagsnefnd að hafna umbeðinni framkvæmd þar sem lóðarhafar Skagfirðingabrautar 45 upplýstu að þau myndu leggja inn uppfærða umsókn.

Edda Lúðvíksdóttir og Þórður Hansen, eigendur íbúðar á 2. hæð Skagfirðingabrautar 45 (L143712, F2132154), óska eftir með uppfærðri umsókn, um heimild til að stækka svalir íbúðarinnar skv. meðfylgjandi uppdrætti nr. S01 í verki nr. 79012100, dags. 02. feb. 2026 unnum hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
Á meðfylgjandi gögnum telja umsækjendur sig hafa komið til móts við athugasemdir nágranna varðandi skuggavarp og innsýn með því að stytta svalir til austurs, þannig að austurhlið svala verður í flútti við norðurhorn íbúðarhúss á Skagfirðingabraut 47, líkt og sýnt er á meðfylgjandi gögnum.
Þá er gert ráð fyrir að svalaveggir verði úr efni sem hleypir sólarljósi í gegn, t.d. gleri, sem dregur enn meira úr skuggavarpi. Þá verður heitur pottur færður nær húsi til að koma í veg fyrir að vatn smitist yfir á lóð nr. 47. Með umsókn þessari eru því lagðar fram mótvægisaðgerðir þeim umhverfisáhrifum sem fram hafa komið í grenndarkynningu og á fundum íbúa með skipulagsnefnd.
Að sögn umsækjenda mun framkvæmd þessi auka gæði og notkunarmöguleika lóðar Skagfirðingabrautar 45 verulega. Miðað við núverandi aðstæður eru umsækjendur útsettir fyrir mikilli umferð frá Skagfirðingabraut og útsvæði lóðarinnar takmarkað með tilliti til stærðar og aðgengis. Með framkvæmdinni, sem sótt er um, myndi aðgengi að útisvæði og útiveru batna verulega, núverandi íbúar, og íbúar í framtíðinni, ná talsvert fleiri sólarstundum og lífsgæði íbúa og notagildi eignarinnar munu aukast til muna.
Með erindinu fylgir einnig samþykki eiganda neðri hæðar Skagfirðingabrautar 45.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Skagfirðingabrautar 43, 45 (eiganda neðri hæðar), 47 og 49, Öldustígs 1,3, 5 og 7, og Bárustígs 1, 2 og 4.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

5.Nafir 14 L143946, Sauðárkróki - Umsókn um framkvæmdaleyfi og stofnun byggingarreits

Málsnúmer 2602048Vakta málsnúmer

Hjörvar Halldórsson, sviðstjóri veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar, fh. Skagafjarðar, eiganda lóðarinnar Lóð 14 á Nöfum L143946, og Skagfirðingabrautar, landnr. 143721, óskar eftir stofnun 2.500 m² byggingarreits og framkvæmdaleyfi á lóðinni Lóð 14 á Nöfum, Sauðárkróki. Meðfylgjandi afstöðuuppdráttur og greinargerð, í verki 41520000 útg. 02. feb. 2026, gera grein fyrir framkvæmdinni. Gögn unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Um er að ræða byggingarreit fyrir 60,40 m² aðstöðuhús/snyrtingu sem er skráður matshluti nr. 02 á Skagfirðingabraut, landnr. 143721, byggt árið 2009. Ekki er gert ráð fyrir fleiri byggingum innan byggingarreits.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist í febrúar eða mars 2026 og að þeim verði lokið í júlí 2026. Þegar búið er að flytja húsið frá Flæðum verður landið jafnað að núverandi landhæð en ekki grætt upp þar sem gert er ráð fyrir bílastæðum á svæðinu.
Í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 er aðstöðuhúsið á miðsvæði nr. M-401 en færist á afþreyingarsvæði nr. AF-401. Skv. greinargerð er AF-401 ætlað fyrir tjaldsvæði og heimilt að byggja allt að 150 m² þjónustuhús og mannvirki sem tengjast tjaldsvæði. Í auglýstu aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 og eru landnotkunarflokkar og númer, sem þessari framkvæmd tengjast, óbreytt.
Skv. ákvæðum aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 fyrir AF-401 er heimilt að byggja þjónustuhús og mannvirki sem tengjast tjaldsvæði. Ætluð framkvæmd er því í samræmi við gildandi aðalskipulag og auglýst aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040. Skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn ákveðið að veita megi framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag þótt ekki liggi fyrir deiliskipulag. Skal skipulagsnefnd þá láta fara fram grenndarkynningu. Einnig er skipulagsnefnd heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Engar íbúðarbyggingar eru í grennd við umsóttan byggingarreit og ekki verður séð að fyrirhuguð staðsetning aðstöðuhúss skerði hagsmuni annarra en umsækjanda með neinum hætti hvað varðar landnotkun, skuggavarp, innsýn, aðgengi eða aðra umhverfisþætti sem eiga við um landnotkun á svæðinu skv. aðalskipulagi. Á þeim grundvelli er óskað eftir því að skipulagsnefnd taki til skoðunar að falla frá grenndarkynningu í samræmi við ákvæði 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

VG og óháð samþykkja ekki framangreinda tillögu og hefðu viljað sjá vandað frekar til verka með gerð deiliskipulags á svæðinu, eða að minnsta kosti væri horft til frumhönnunar deiliskipulags sem liggur fyrir, en þar er þjónustuhúsið staðsett betur með tilliti til innkomu gesta á tjaldsvæðið. Eins hefði farið vel á því að samráð væri haft við samningshafa tjaldstæðanna í Skagafirði um staðsetningu þjónustuhússins.

Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að fallast á rök umsækjenda, að ekki sé þörf á grenndarkynningu vegna málsins og að fyrirhuguð uppbygging samræmist bæði gildandi og auglýstu Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 og að fyrirhuguð staðsetning aðstöðuhúss skerði hagsmuni annarra en umsækjanda með neinum hætti hvað varðar landnotkun, skuggavarp, innsýn, aðgengi eða aðra umhverfisþætti.
Skipulagsnefnd samþykkir einnig með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit og heimila umbeðna framkvæmd en bendir jafnframt á að sækja þarf um byggingarleyfi til byggingarfulltrúa vegna ætlaðrar tilfærslu húss.

6.Sveitarfélagsmörk - Húnabyggð og Skagafjörður - Ábending frá skipulagsfulltrúa Húnabyggðar

Málsnúmer 2601086Vakta málsnúmer

Með tölvupósti dags. 18.12.2025 bendir Börkur Þór Ottósson skipulags- og byggingarfulltrúi Húnabyggðar á mögulegt ósamræmi í sveitarfélagsmörkum Skagafjarðar og Húnabyggðar í landi jarðanna Móbergssels, Hvamms, Merkurs og Mjóadals í fyrrum Engihlíðar- og Bólstaðarhlíðarhreppi nú Húnabyggð.

Eftir yfirferð framlagðra gagna Húnabyggðar og gagna sveitarfélagsins Skagafjarðar varðandi Staðarafrétt, fellst Skagafjörður á að sveitarfélagamörkin séu um Grjótá úr nyrðri (ytri) Grjótárbotni og ráði Víðidalsáin að austan, suður Víðidal, sbr. gögn.

Sbr. ráðleggingar frá Skipulagsstofnun vegna málsins ákvað skipulagsfulltrúi Skagafjarðar að láta uppfæra tvo sveitarfélagsuppdrætti fyrir Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 sem og starfræn gögn aðalskipulagsins og er því umrædd lína sýnd sem "mörk óviss" og verður í framhaldinu farið í aðalskipulagsbreytingu, samhliða gerð aðalskipulagstillögu Húnabyggðar sem áætluð er á þessu ári.

7.Kross L146553 í Óslandshlíð - Umsókn um stofnun byggingarreits

Málsnúmer 2602020Vakta málsnúmer

Þorvaldur Ingi Guðjónsson, þinglýstur eigandi jarðarinnar Kross, landnúmer 146553, í Óslandshlíð Skagafirði, óskar eftir heimild til að stofna 3900 m² byggingarreit á landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 76140009 útg. 01. febrúar 2026. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni.
Um er að ræða byggingarreit fyrir nýtt fjós. Hámarksbyggingarmagn verður 1200 m2 og hámarksbyggingarhæð verður 10 m frá gólfi í mæni, þak verður tvíhallandi.
Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-1 í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og er í samræmi við markmið aðalskipulags um uppbyggingu á landbúnaðarsvæðum, sbr. ákvæði í kafla 12. Byggingarreitur er í samræmi við ákvæði aðalskipulagsins um landbúnað þar sem hann skerðir ekki nýtingu góðs ræktarlands til ræktunar og skerðir ekki sambúð landbúnaðar, ferðaþjónustu, frístundabyggðar og annarrar landnotkunar. Í 12.4 kafla í greinargerð aðalskipulags segir um almenn ákvæði um landnotkun á öllum landbúnaðarsvæðum:
"Þar er gert ráð fyrir uppbyggingum í tengslum við landbúnaðarstarfsemina en einnig er heimilt að nýta byggingar, byggja stök mannvirki og/eða breyta eldri byggingum, til annarrar starfsemi ef slíkur rekstur styður við landbúnaðarstarfsemi eða búsetu á svæðinu."
Fyrirhuguð bygging er landbúnaðarbygging og mun styðja við landbúnaðarstarfsemi á jörðinni, byggingarreitur er staðsettur þannig að nýting núverandi innviðir nýtast áfram. Byggingin verður að hámarki 1200 m² og uppbygging er ekki talin líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi. Jafnframt segir í sama kafla:
"Skipulagsnefnd metur hverju sinni málsmeðferð uppbyggingaráforma m.t.t. skipulagslaga, með hliðsjón af ofangreindum ákvæðum og umfangi framkvæmda.
Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76).
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit að fenginni jákvæðri umsögn minjavarðar.

8.Útvík L146005 - Umsókn um stofnun landspildu

Málsnúmer 2602021Vakta málsnúmer

Sigurður Baldursson, Guðrún Kristín Jóhannesdóttir og Ívar Sigurðsson, fh. Páfastaðir ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Útvík, landnúmer 146005, óska eftir heimild til að stofna 2494,9 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem "Útvík 5", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 71860403, útg. 22. janúar 2026. Afstöðuuppdráttur var unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Landheiti útskiptrar lóðar vísar í heiti upprunajarðar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Útvík L146005.
Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035 er lóðin á landbúnaðarsvæði L-1. Landskipti eru í samræmi við ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæði.
Landskipti hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki.
Ekkert ræktað land er innan útskiptrar spildu.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Innan afmörkunar útskiptrar spildu er matshluti 05, sem er 270 m2 hlaða, byggð 1973 og matshluti 11 sem er 420 m2 fjós, byggt árið 1974. Mannvirki þessi skulu fylgja útskiptri lóð.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Útvík, landnr. 146005.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003365.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti.

9.Syðri-Hofdalir L146421 í Hofsstaðaplássi, Skagafirði - Umsókn um landskipti og byggingarreit

Málsnúmer 2602022Vakta málsnúmer

Atli Már Traustason, Ingibjörg Klara Helgadóttir, Ingibjörg Aadnegard og Trausti Kristjánsson fyrir hönd Hofdalabúsins, þinglýst eiganda jarðarinnar Syðri-Hofdalir, landnr. 146421 óska eftir heimild til að stofna 9.338 m² spildu úr landi jarðarinnar, sem "Brotholt" skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 72130800 útg. 20. jan. 2026 og merkjalýsingu dags. 20.01.2026. Óskað er eftir því að útskipt spilda verði skráð sem Annað land (80).
Landskipti eru í samræmi við aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og landnotkun hefur ekki áhrif á búrekstrarskilyrði landbúnaðarlands í flokki I og II. Landheiti útskiptrar spildu vísar til örnefnis á svæðinu. Landheiti er í samræmi við reglugerð nr. 577/2017 um skráningu staðfanga og er ekki skráð á annað landnúmer í sveitarfélaginu.
Innan merkja útskiptrar spildu eru engir matshlutar.
Engin hlunnindi fylgja landskiptum.
Lögbýlisrétturinn fylgir áfram Syðri-Hofdölum landnr. 146421.
Kvöð um yfirferðarrétt að útskiptri spildu er um heimreiðarslóða í landi Syðri-Hofdala, landnr. 146421, eins og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti.

Þá óska umsækjendur einnig eftir heimild til að stofna 535 m² byggingarreit innan útskiptrar spildu skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti. Um er að ræða byggingarreit fyrir íbúðarhús. Hámarks byggingarmagn verður 200 m² og hámarks hæð byggingar verður 6 m. Byggingareitur, sem sótt er um, er á landbúnaðarsvæði nr. L-1 í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035. Skipulagsákvæði fyrir landbúnaðarsvæði nr. L-1 eru "uppbygging og mannvirkjagerð heimil að uppfylltum skipulagsákvæðum. Leitast skal við að viðhalda nýting lands til matvælaframleiðslu og hlífa ræktarlandi í flokki I". Byggingarreiturinn er á landbúnaðarlandi í flokki II, Gott ræktunarland. Ákvæði fyrir landbúnaðarsvæði nr. L-1 eru að leitast skuli við að hlífa góðu ræktarlandi í flokki I, forðast skuli að rjúfa samfellu landbúnaðarlands og ekki gert ráð fyrir skógrækt, að skjólbeltum undanskildum. Reiturinn sem hér er sótt um er í samræmi við þessi ákvæði aðalskipulags. Þá liggur fyrir að landið, sem lóðin nær yfir, verður ekki tekið undir ræktunarland eða aðra landbúnaðarnotkun. Skv. ákvæðum 12.4. kafla aðalskipulags metur skipulagsnefnd málsmeðferð uppbyggingaráforma hverju sinni með tilliti til skipulagslaga, umfangi framkvæmda og almennra ákvæða um landnotkun á landbúnaðarsvæðum.
Skv. bráðabirgða ákvæðum skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn leyft einstakar framkvæmdir sem kann að verða sótt um. Til stendur að ráðast í gerð deiliskipulags fyrir hluta jarðarinnar, þar sem fjallað verður um önnur byggingaráform á jörðinni og munu landeigendur senda umsókn þess efnis á komandi vikum.
Byggingarreitur, sem hér er sótt um, er í um 70 m fjarlægð frá Siglufjarðarvegi (76) sem er stofnvegur af tegundinni C8. Óskað er eftir undanþágu frá fjarlægðarákvæði d-liðar 5.3.2.5. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 sem kveður á um að fjarlægð íbúðar- eða frístundahúsa skuli ekki vera minni en 100 m frá stofn- og tengivegum. Undanþágu er óskað á grundvelli þess að umrætt svæði verður ekki nýtt til landbúnaðarnota, staðsetning byggingarreits rífur ekki samfellu landbúnaðar- eða ræktarlands og að afmörkun lóðarinnar, sem byggir á því að hagkvæmri nýtingu á landi jarðarinnar til landbúnaðar, gerir að verkum að umrædd staðsetning er eins langt frá vegi og mögulegt er.
Meðfylgjandi er umsögn Minjastofnunar Íslands vegna byggingarreits og umsögn Vegagerðar vegna vegtengingar eins og hún er sýnd á meðfylgjandi uppdrætti.
Með erindinu fylgir einnig frekari rökstuðningur vegna staðarvals byggingarreitsins sem og samþykki frá Vegagerðinni fyrir fyrirhugaðri vegtengingu.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða, með hliðsjón af frekari rökstuðningi, að leggja til við sveitarstjórn að óskað verði eftir undanþágu Félagsmála- og húsnæðisráðuneyti frá d-liðar 5.3.2.5. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 vegna 100 m fjarlægðarmarka byggingarreits frá Siglufjarðarvegi nr. 76. Verði það leyfi veitt hjá Félagsmála- og húsnæðisráðuneytinu er skipulagsfulltrúa falið að afgreiða umbeðinn byggingarreit.

10.Lækjargerði L220303 í Fremribyggð - Umsókn um stofnun byggingarreits

Málsnúmer 2602023Vakta málsnúmer

Guðmundur Páll Ingólfsson og Margrét Eyjólfsdóttir, þinglýstir eigendur lóðarinnar Lækjargerði, landnr. 220303, í Fremribyggð Skagafirði, óska eftir heimild til að stofna 840m² byggingarreit á landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75760001 útg. 30. janúar 2026. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni.
Um er að ræða byggingarreit fyrir nýja skemmu. Hámarksbyggingarmagn verður 400 m2 og hámarksbyggingarhæð verður 8 m frá gólfi í mæni, þak verður tvíhallandi.
Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-1 í aðalskipulag Skagafjarðar 2020-2035 og styður við markmið aðalskipulags um uppbyggingu á landbúnaðarsvæðum, sbr. ákvæði í kafla 12, um að fjölga íbúum í dreifbýli og önnur markmið um landbúnað þar sem hann skerðir ekki nýtingu góðs ræktarlands til ræktunar og skerðir ekki sambúð landbúnaðar, ferðaþjónustu, frístundabyggðar og annarrar landnotkunar. Í 12.4 kafla í greinargerð aðalskipulags segir um almenn ákvæði um landnotkun á öllum landbúnaðarsvæðum:
"Þar er gert ráð fyrir uppbyggingum í tengslum við landbúnaðarstarfsemina en einnig er heimilt að nýta byggingar, byggja stök mannvirki og/eða breyta eldri byggingum, til annarrar starfsemi ef slíkur rekstur styður við landbúnaðarstarfsemi eða búsetu á svæðinu." Hér er um að ræða staka byggingu sem styður við búsetu á svæðinu, núverandi innviðir nýtast áfram, stök bygging verður að hámarki 400 m² og uppbygging er ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi. Jafnframt segir í sama kafla:
"Skipulagsnefnd metur hverju sinni málsmeðferð uppbyggingaráforma m.t.t. skipulagslaga, með hliðsjón af ofangreindum ákvæðum og umfangi framkvæmda.
Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Fremribyggðarvegi (7532). Byggingaráform kunna að varða hagsmuni eigenda Starrastaða, landnr. 146225, er erindið því einnig áritað af eigendum þeirrar eignar til staðfestingar um að þeim hafi verið kynnt meðfylgjandi gögn og geri ekki athugasemdir.

Undirrituð er einnig landeigandi Lækjargerðis, L220303, en hnitsett landamerki eru á milli Lækjargerðis L220303 og Starrastaða L146225.
Fyrirliggur jákvæð umsögn minjavarðar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit.

11.Blöndulína 3 - Bréf frá Draupni lögmannsstofu - Erindi landeigenda vegna afgreiðslu athugasemda

Málsnúmer 2602025Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Draupni Lögmannsþjónustu, dags. 30.01.2026 fyrir hönd landeigenda, vegna Blöndulínu 3 sem varðar afgreiðslu athugasemda í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040.

Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að fela skipulagsfulltrúa að svara bréfinu ásamt sveitarstjóra Skagafjarðar.

Álfhildur Leifsdóttir fyrir hönd VG og óháðra situr hjá við afgreiðslu málsins.

12.Breytingar á deiliskipulagi útivistarsvæðis í Hólsdal, nr. 0820/2025 - Umsagnarbeiðni

Málsnúmer 2510141Vakta málsnúmer

Fjallabyggð hefur óskað eftir umsögn Skagafjarðar vegna breytingar á deiliskipulagi útivistarsvæðis í Hólsdal, mál númer 0820/2025 í Skipulagsgáttinni, https://skipulagsgatt.is/issues/2025/820 . Umsagnafrestur rennur út þann 9.2.2026.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemdir við breytingar á deiliskipulagi útivistarsvæðis í Hólsdal.

13.Umsagnarbeiðni vegna máls nr. 0819-2025, Breytingar á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2032 vegna Fljótaganga

Málsnúmer 2506130Vakta málsnúmer

Fjallabyggð hefur óskað eftir umsögn Skagafjarðar vegna breytinga á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2032 vegna Fljótaganga, mál nr. 0819/2025 á Skipulagsgáttinni, auglýsing tillögu (Breyting á aðalskipulagi) sjá hér https://skipulagsgatt.is/issues/2025/819 . Umsagnafrestur rennur út þann 9.2.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemdir við breytingar á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2032 vegna Fljótaganga.

14.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 77

Málsnúmer 2601031FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 77 þann 23.01.2026.

15.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 78

Málsnúmer 2601036FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 78 þann 29.01.2026.

Fundi slitið - kl. 15:15.