Fara í efni

Sveitarfélagsmörk - Húnabyggð og Skagafjörður - Ábending frá skipulagsfulltrúa Húnabyggðar

Málsnúmer 2601086

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 91. fundur - 05.02.2026

Með tölvupósti dags. 18.12.2025 bendir Börkur Þór Ottósson skipulags- og byggingarfulltrúi Húnabyggðar á mögulegt ósamræmi í sveitarfélagsmörkum Skagafjarðar og Húnabyggðar í landi jarðanna Móbergssels, Hvamms, Merkurs og Mjóadals í fyrrum Engihlíðar- og Bólstaðarhlíðarhreppi nú Húnabyggð.

Eftir yfirferð framlagðra gagna Húnabyggðar og gagna sveitarfélagsins Skagafjarðar varðandi Staðarafrétt, fellst Skagafjörður á að sveitarfélagamörkin séu um Grjótá úr nyrðri (ytri) Grjótárbotni og ráði Víðidalsáin að austan, suður Víðidal, sbr. gögn.

Sbr. ráðleggingar frá Skipulagsstofnun vegna málsins ákvað skipulagsfulltrúi Skagafjarðar að láta uppfæra tvo sveitarfélagsuppdrætti fyrir Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 sem og starfræn gögn aðalskipulagsins og er því umrædd lína sýnd sem "mörk óviss" og verður í framhaldinu farið í aðalskipulagsbreytingu, samhliða gerð aðalskipulagstillögu Húnabyggðar sem áætluð er á þessu ári.