Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði - Deiliskipulag
Málsnúmer 2511191Vakta málsnúmer
Gestir
- Björn Magnús Árnason
2.Sauðárkrókshöfn - Deiliskipulagsbreyting - Háeyri 8, L197232
Málsnúmer 2602033Vakta málsnúmer
Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagsbreytingartillögu fyrir Sauðárkrókshöfn - Háeyri 6 og 8, mál nr. 249/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/249 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Deiliskipulagstillagan var í auglýsingu dagana 04.03.2026- 17.04.2026 og bárust 6 umsagnir sem gefa tilefni til minniháttar breytinga í texta.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna "Sauðárkrókshöfn - Háeyri 6 og 8" og senda hana Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Langaborg (L225909) - Beiðni um heimild til að vinna deiliskipulag
Málsnúmer 2511043Vakta málsnúmer
Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir Lönguborg í Hegranesi, Skagafirði, mál nr. 1624/2025 (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1624 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt HMS um skipulagsmál. Deiliskipulagstillagan var í auglýsingu dagana 04.03.2026- 17.04.2026 og bárust 4 umsagnir sem gefa tilefni til minniháttar breytinga í texta.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Langaborg í Hegranesi, Skagafirði" og senda hana Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Ósk um framkvæmdaleyfi - Vegna orkuskipta á Sauðárkróki
Málsnúmer 2604101Vakta málsnúmer
Rarik óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna orkuskipta og framtíðaruppbyggingar á Sauðárkróki. Framkvæmdin felur í sér styrkingu kerfis og framtíðar uppbyggingu á svæðinu við Flæðarnar á Sauðárkróki.
Sett verður upp spennistöð á L239827, bakvið sundlaugina. Gert er ráð fyrir að grafa frá spennistöð S071, meðfram tjaldsvæði á Flæðunum og bora undir Skagfirðingabraut að Ránarstíg, L143673, S072. Borað verður á 2 metra dýpi til að komast undir aðrar lagnir. Heildar strengleiðin er tæplega 250 metrar og gert er ráð fyrir að bora ca. 85 metra. Lagðir verða tveir háspennustrengir á þessari leið. Gert er ráð fyrir að styrkja kerfið með því að leggja tvo stofnstrengi bakvið sundlaugina og tengja við götuskápa.
Ef borun gengur ekki upp verður malbik skorið frá Skagfirðingabraut að Ránarstíg ca 85 metra. Grafið verður á 1 metra dýpi eða eins og hægt er þar sem aðrar lagnir eru á þessari leið.
Áætlaður verktími maí/júní 2026 og gert er ráð fyrir að verkið taki ca. 30 daga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi.

5.Ósk um framkvæmdaleyfi - Túngata Hofsósi
Málsnúmer 2604102Vakta málsnúmer
Rarik óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna strenglagningar við Túngötu á Hofsósi.
Framkvæmdin felur í sér heimtaugarumsókn, styrkingu kerfis og færslu á staðsetningu spennistöðvar. Sett verður upp spennistöð við Túngötu 1 og
lagðir verða fjórir lágspennustrengir sem verða tengdir við háspennustreng sem liggur meðfram lóðinni. Settur verður götuskápur við Túngötu 2 og spennustöðin sem er nú staðsett í Túngötu 2 verður fjarlægð. Malbik og gangstétt við Túngötu 2 verður skorið á meðan að framkvæmd stendur.
Strengleiðin er ca. 80 metra löng og grafið verður á ca. 1 meters dýpi.
Áætlaður verktími maí 2026 og gert er ráð fyrir að verkið taki ca. 20 daga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi.
Framkvæmdin felur í sér heimtaugarumsókn, styrkingu kerfis og færslu á staðsetningu spennistöðvar. Sett verður upp spennistöð við Túngötu 1 og
lagðir verða fjórir lágspennustrengir sem verða tengdir við háspennustreng sem liggur meðfram lóðinni. Settur verður götuskápur við Túngötu 2 og spennustöðin sem er nú staðsett í Túngötu 2 verður fjarlægð. Malbik og gangstétt við Túngötu 2 verður skorið á meðan að framkvæmd stendur.
Strengleiðin er ca. 80 metra löng og grafið verður á ca. 1 meters dýpi.
Áætlaður verktími maí 2026 og gert er ráð fyrir að verkið taki ca. 20 daga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi.
6.Vatn lóð L212335 - Fyrirspurn um smáhýsi á lóð.
Málsnúmer 2604003Vakta málsnúmer
Árni Magnússon landeigandi Vatns lóð L212335 óskar eftir stækkun byggingarreits á ofangreindri lóð. Því fylgir afstöðumynd af lóð og núverandi byggingarreit, ásamt samþykktum teikningum að sumarhús sem þar stendur. Erindinu fylgir uppdráttur að stækkuðum byggingarreit.
Á meðfylgjandi uppdrætti sjást lóðarmörk Vatns lóð L212335 og Vatns á Höfðaströnd. Fjarlægð byggingarreits að lóðarmörkum er nú u.þ.b. 18 metrar en yrði eftir stækkun 8 metrar. Handan lóðarmarka er u.þ.b. 3 metra brekkubrún sem hallar til norðurs niður í gil þar sem Gljúfurá rennur til Höfðavatns. Fjarlægð frá lóðarmörkum að Gljúfurá er u.þ.b. 30 metrar og er það land í eigu Vatns.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit.

Fundi slitið - kl. 11:45.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
Sigurður H. Ingvarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.