Fara í efni

Ósk um framkvæmdaleyfi - Túngata Hofsósi

Málsnúmer 2604102

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 96. fundur - 20.04.2026

Rarik óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna strenglagningar við Túngötu á Hofsósi.
Framkvæmdin felur í sér heimtaugarumsókn, styrkingu kerfis og færslu á staðsetningu spennistöðvar. Sett verður upp spennistöð við Túngötu 1 og
lagðir verða fjórir lágspennustrengir sem verða tengdir við háspennustreng sem liggur meðfram lóðinni. Settur verður götuskápur við Túngötu 2 og spennustöðin sem er nú staðsett í Túngötu 2 verður fjarlægð. Malbik og gangstétt við Túngötu 2 verður skorið á meðan að framkvæmd stendur.
Strengleiðin er ca. 80 metra löng og grafið verður á ca. 1 meters dýpi.
Áætlaður verktími maí 2026 og gert er ráð fyrir að verkið taki ca. 20 daga.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 48. fundur - 22.04.2026

Vísað frá 96. fundi skipulagsnefndar frá 20. apríl sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Rarik óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna strenglagningar við Túngötu á Hofsósi.
Framkvæmdin felur í sér heimtaugarumsókn, styrkingu kerfis og færslu á staðsetningu spennistöðvar. Sett verður upp spennistöð við Túngötu 1 og
lagðir verða fjórir lágspennustrengir sem verða tengdir við háspennustreng sem liggur meðfram lóðinni. Settur verður götuskápur við Túngötu 2 og spennustöðin sem er nú staðsett í Túngötu 2 verður fjarlægð. Malbik og gangstétt við Túngötu 2 verður skorið á meðan að framkvæmd stendur.
Strengleiðin er ca. 80 metra löng og grafið verður á ca. 1 meters dýpi.
Áætlaður verktími maí 2026 og gert er ráð fyrir að verkið taki ca. 20 daga.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að veita umbeðið framkvæmdaleyfi.