Fara í efni

Vatn lóð L212335 - Fyrirspurn um smáhýsi á lóð.

Málsnúmer 2604003

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 96. fundur - 20.04.2026

Árni Magnússon landeigandi Vatns lóð L212335 óskar eftir stækkun byggingarreits á ofangreindri lóð. Því fylgir afstöðumynd af lóð og núverandi byggingarreit, ásamt samþykktum teikningum að sumarhús sem þar stendur. Erindinu fylgir uppdráttur að stækkuðum byggingarreit.
Á meðfylgjandi uppdrætti sjást lóðarmörk Vatns lóð L212335 og Vatns á Höfðaströnd. Fjarlægð byggingarreits að lóðarmörkum er nú u.þ.b. 18 metrar en yrði eftir stækkun 8 metrar. Handan lóðarmarka er u.þ.b. 3 metra brekkubrún sem hallar til norðurs niður í gil þar sem Gljúfurá rennur til Höfðavatns. Fjarlægð frá lóðarmörkum að Gljúfurá er u.þ.b. 30 metrar og er það land í eigu Vatns.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 48. fundur - 22.04.2026

Vísað frá 96. fundi skipulagsnefndar frá 20. apríl sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Árni Magnússon landeigandi Vatns lóð L212335 óskar eftir stækkun byggingarreits á ofangreindri lóð. Því fylgir afstöðumynd af lóð og núverandi byggingarreit, ásamt samþykktum teikningum að sumarhús sem þar stendur. Erindinu fylgir uppdráttur að stækkuðum byggingarreit.
Á meðfylgjandi uppdrætti sjást lóðarmörk Vatns lóð L212335 og Vatns á Höfðaströnd. Fjarlægð byggingarreits að lóðarmörkum er nú u.þ.b. 18 metrar en yrði eftir stækkun 8 metrar. Handan lóðarmarka er u.þ.b. 3 metra brekkubrún sem hallar til norðurs niður í gil þar sem Gljúfurá rennur til Höfðavatns. Fjarlægð frá lóðarmörkum að Gljúfurá er u.þ.b. 30 metrar og er það land í eigu Vatns.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðinn byggingarreit.