Fara í efni

Skipulagsnefnd

80. fundur 21. ágúst 2025 kl. 10:00 - 12:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigríður Magnúsdóttir formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Eyþór Fannar Sveinsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Borgarflöt - Deiliskipulag

Málsnúmer 2505220Vakta málsnúmer

Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir lóð Háskólans á Hólum við Borgarflöt 35 á Sauðárkróki, mál nr. 2992/2025 (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/992/ ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Skipulagsstofnunar um skipulagsmál.
Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 16.07.2025- 13.08.2025 og bárust 7 umsagnir.

Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

2.Skagfirðingabraut 45 - Beiðni um heimild til að stækka svalir

Málsnúmer 2505059Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá á 39. fundi Sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 23.06.2025, þá bókað:
"Vísað frá 77. fundi skipulagsnefndar þann 18. júní sl., þannig bókað: "Edda Lúðvíksdóttir og Þórður Hansen þinglýstir eigendur íbúðar á 2. hæð Skagfirðingabrautar 45, 550 Sauðárkróki (F2132154) óska hér með eftir heimild til að stækka svalir á íbúð á 2 hæð. skv. meðfylgjandi uppdrætti nr. S01 í verki 79012100, gerður af Ínu Björk Ársælsdóttir hjá Stoð verkfræðistofu ehf. Meðfylgjandi uppdráttur sýnir tillöguteikningu með afstöðumynd og ásýndarmyndum í þrívídd sem gerir grein fyrir fyrirhugaðri stækkun svala sem sótt er um heimild fyrir. Ekki er um fullunnin hönnungargögn að ræða á þessu stigi. Um er að ræða stækkun á svölum til suðurs um 6,5 metra. Gert er ráð fyrir þremur burðarsúlum syðst. Svæðið undir svölum verður nýtt sem bílskýli. Framkvæmdin er innan núv. lóðarmarka fasteignarinnar. Í ljósi þess að deiliskipulag er ekki í gildi fyrir svæðið, er óskað eftir að málið verði tekið til umfjöllunar hjá skipulagsnefnd. Tekið hefur verið mið af grenndaráhrifum og eru það helst nágrannar aðliggjandi lóða sem gætu orðið fyrir áhrifum, auk fasteignareiganda neðri hæðar Skagfirðingabrautar 45. Framkvæmdin er talin falla vel að nærliggjandi byggð og hagsmunir nágranna skerðist að takmörkuðu leyti hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta nýtan leika og aðgengi að útisvæði, án þess að skerða ásýnd eða hagsmuni nágranna. Með erindinu fylgir einnig samþykki eiganda neðri hæðar Skagfirðingabrautar 45. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Skagfirðingabrautar 43, 45 (eiganda neðri hæðar), 47 og 49, Öldustígs 1,3, 5 og 7, og Bárustígs 1, 2 og 4." Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Skagfirðingabrautar 43, 45 (eiganda neðri hæðar), 47 og 49, Öldustígs 1,3, 5 og 7, og Bárustígs 1, 2 og 4."

Grenndarkynningin fór fram dagana 25.06.2025- 27.07.2025 og bárust tvær umsagnir á umsagnartímanum (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/875 ).

Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari gögnum frá umsækjendum varðandi möguleg áhrif framkvæmdarinnar.

3.Fornós 8 - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Málsnúmer 2506036Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá á 39. fundi Sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 23.06.2025, þá bókað: "Vísað frá 77.fundi skipulagsnefndar til afgreiðslusveitarstjórnar, þannig bókað: Málið áður á dagskrá 76. fundi skipulagsnefndar þann 12.06.2025, þá bókað: "Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 26. maí síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 um leyfi til að til að byggja við einbýlishús sem stendur á lóðinni númer 8 við Fornós á Sauðárkróki. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Klöpp Arkitektar-Verkfræðingar ehf. af umsækjanda. Uppdrættir í verki 3358, númer A-101, A-102, A-103 og A-104, dagsettir maí 2025, uppfærðir 5. júní 2025. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum við Fornós 5, 6, 7, 9 og 10 og Hólmagrund 7, 9, 11, 13 og 15." Hrefna Gerður Björnsdóttir lóðarhafi Fornós 8 óskar eftir að framkvæmdin verði einnig grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Fornós 3 og 4. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum við Fornós 3, 4, 5, 6, 7, 9 og 10 og Hólmagrund 7, 9, 11, 13 og 15. Sveitarstjórn samþykkir með niu atkvæðum að fyrirhuguð framkvæmd skuli grenndarkynnt fyrir ofantöldum lóðarhöfum við Fornós og Hólmagrund."
Grenndarkynningin fór fram dagana 25.06.2025- 27.07.2025 en engar umsagnir bárust á umsagnartímanum (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/874 ).

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna framkvæmd eins og henni er lýst í framlögðum gögnum.

4.Lóð 22, Hlíðarenda L143908 á Sauðárkróki - Umsókn um stofnun byggingarreits

Málsnúmer 2508143Vakta málsnúmer

Aldís Hilmarsdóttir f.h. Golfklúbbs Skagafjarðar, þinglýsts lóðarhafa Lóðar 22, Hlíðarenda, landnr. L143908, óskar eftir heimild til að stofna 770 m² byggingarreit á lóð, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 143908 útg. 18.08.2025. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð verkfræðistofu ehf. af Þórði Karli Gunnarssyni.
Um er að ræða byggingarreit fyrir nýjan golfskála á núverandi reit sem eldri golfskáli stendur. Fyrirhugað er að fjarlægja núverandi skála sem er skráður 117,5m² og byggja nýjan skála sem verður 230m², hámarksbyggingarhæð verður 5,5 m frá gólfi í mæni og þak verður einhalla.
Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu íþróttasvæði nr. ÍÞ-402 í aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og er í samræmi við ákvæði aðalskipulags um uppbyggingu á íþróttasvæði. Leyfilegt hámarks byggingarmagn er skilgreint sem 500m² skv. greinargerð aðalskipulags í gr. 4.11.3. Byggingaráform eru í samræmi við almenn ákvæði um landnotkun á íþróttasvæðum og í takt við þá notkun og staðsetningu sem viðhöfð hefur verið á svæðinu. Fyrirhuguð bygging nýs golfskála mun styðja við þá starfssemi sem er hjá Golfklúbbi Skagafjarðar og um leið bjóða upp á aðstöðu fyrir fólk í útivist á svæðinu. Byggingarreitur er staðsettur þannig að nýting núverandi innviða, s.s. vegakerfi, hitaveitu, rafmagnsveitu og fjarskipta, kallar ekki á umfangsmiklar framkvæmdir sem talið er að séu ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi.
Staðsetning byggingarreits, sem hér er sótt um, byggir á núverandi staðsetningu golfskála og hagrænni nýtingu innviða. Byggingaráform samrýmast núverandi landnotkun og lögð verður áhersla á fyrirhuguð bygging samrýmist yfirbragði og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit.

5.Staðarbjargarvík - Framkvæmdaleyfisumsókn

Málsnúmer 2508142Vakta málsnúmer

Oddur Hermannsson landlagsarkitekt sækir um fyrir hönd veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar um framkvæmdaleyfi fyrir stígagerð og útsýnisstaði við Staðarbjargavík samkvæmd gildandi deiliskipulagi sem staðsett er við sjávarmál Hofsóss, neðan við sundlaug bæjarins.
Núverandi aðkoma er frá bílastæði við sundlaug niður bratta hlíð með bröttum þrepum úr timbri. Aukið álag kallar orðið á úrbætur á aðgengi staðarins.
Um er að ræða fjóra útsýnisstaði og gönguleiðir á milli þeirra sem eru um stíga og tröppur. Smávægilegar breytingar verða á núverandi bílastæði.
Frá núverandi bílastæði deilist stígurinn í tvær áttir, annarsvegar suðvestur (G1) að mörkum sundlaugalóðar þar sem fyrsti útsýnis- og áningarstaðurinn er (Ú1), og hinsvegar austur (G2) með Hofsósbraut að útsýnis- og áningarstað (Ú4).
Frá Ú1 leiða bogadregin tröppuþrep (S1) niður brekkuna, þar sem gengið er inn á útsýnispall og áningastað Ú2. Frá honum liggja áfram bogdregin tröppuþrep (S2) niður á stuðlabergsklappirnar. Þar er útsýnis- og áningarstaður Ú3 og fyrirhugað að jarðvegur verði hreinsaður svo stuðlabergsklöppin þar undir verði sýnileg. Mót sjó verður sett handrið vegna öryggis ferðamanna.
Áætlaður framkvæmdatími er haustið 2025 (undirstöður) og vorið 2026 með þeim fyrirvara að einstakir verkþættir gætu dregist yfir á sumarið 2026 sökum óviðráðanlegra aðstæðna. Sé vetrartíð hagstæð gæti verkið hinsvegar unnist hraðar.
Verkmörk eru sýnd á uppdrætti, sjá yfirlitsmynd Landform, teikn. nr. L-01. Sérstakar varúðarráðstafanir skal gera á verktíma, þar sem um er að ræða fjölmennan ferðamannastað og oft mikil umferð á fólki. Á þetta ekki síst við um stundir utan vinnutíma verktaka og skal þá klapparsvæði við Ú3 vera lokað á meðan á framkvæmdum stendur. Verktaki má ekki loka eða hindra eðlilega umferð um Hofsós- né Suðurbraut en gera verður ráð fyrir að bílastæði við sundlaug verði lokað á framkvæmdatíma og bílastæði Hofsóskirkju verði notað fyrir sundlaugina á meðan.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi.

6.Kálfárdalur L145945 - Smalaslóði

Málsnúmer 2508077Vakta málsnúmer

Sigfús Ingi Sigfússon, f.h. Skagafjarðar, þinglýsts eiganda landeignarinnar Kálfárdals, landnúmer 145945, sækir um framkvæmdaleyfi fyrir gerð reiðleiðar og slóða frá núverandi slóða, u.þ.b. 1,2 km frá bæjarhlaði Kálfárdals, um Selhóla að Trölleyrum. Meðfylgjandi uppdráttur nr. S01, dags. 17.08.2025 og framkvæmdarlýsing, dags. 17.08.2025, í verki nr. 77471001 gera grein fyrir framkvæmdinni.
Framkvæmdin gengur út á að breikka núverandi fjárgötur í 1,5 - 2 m breiðan slóða. Slétt verður úr þúfum og stórir steinar færðir til þar sem þarf. Sett verða niður ræsi þar sem þvera þarf læki til að lágmarka skemmdir á landi til lengri tíma. Áætlaður framkvæmdatími er 3 mánuðir. Að lokinni framkvæmd verður endanlega lega mæld og gögnum skilað í grunn Vega í náttúru Íslands.
Í Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 er gert grein fyrir umræddri leið á sveitarfélagsuppdrætti 1, flokkur er Vegir, götur og stígar og undirflokkur er Gönguleið. Það er því þegar gert ráð fyrir mannaferðum um svæðið. Fyrirhuguð framkvæmd gengur ekki inn á nein verndarsvæði og er ekki sýnileg frá þjóðvegi. Meðfylgjandi er umsögn minjavarðar, án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi.

7.Geldingaholt IV - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2508109Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 15. júlí síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 vegna umsóknar frá Smára Björnssyni byggingarfræðingi f.h. Bjarna Bragasonar eiganda jarðarinnar Geldingaholts IV L223292 um leyfi til að til að byggja við núverandi lausagöngufjós fyrir geldneyti á jörðinni.
Framlagðir aðaluppdrættir gerð af umsækjanda ásamt viðauka. Uppdrættir eru í verki 3385, númer A-100, A-101, A-102, A-103, A-104 og A-105, dagsettir 01.07.2025.
Ekki liggur fyrir umsögn minjavarðar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir landeiganda Geldingarholts II L146030.

8.Birkimelur 21-23 - Umsókn um lóð

Málsnúmer 2502186Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá skipulagsnefndar þann 10.07.2025 þá bókað:
“Málið áður á dagskrá skipulagsnefndar þann 20.02.2025, þá bókað: “Inga Skagfjörð Helgadóttir sækir um parhúsalóðina Birkimel 21-23 í Varmahlíð. Jafnframt sækir hún um að fá lóðinni breytt í einbýlishúsalóð úr parhúsalóð með deiliskipulagsbreytingu, gangi það ekki eftir vill hún sækja samt sem áður um lóðina sem parhúsalóð. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að hafna umbeðinni deiliskipulagsbreytingu að breyta lóðinni úr parhúsalóð í einbýlishúsalóð en samþykkir jafnframt samhljóða að úthluta lóðinni Birkimel 21-23 í Varmahlíð sem parhúsalóð til Ingu Skagfjörð Helgadóttur." Nú hefur borist annað erindi frá lóðarhöfum þar sem óskað er aftur með frekari rökum eftir því að Birkimel 21-23 verði breytt úr parhúsalóð í einbýlishúsalóð í gildandi deiliskipulagi. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta erindinu og fela skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjendur í samræmi við umræður fundarins."

Skipulagsnefnd felst á að breyta lóðinni Birkimel 21-23 úr parhúsalóð í einbýlishúsalóð og telur að um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, skuggavarp, útsýni eða innsýn svo ekki er talin þörf á grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og eða umsækjenda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila uppbyggingu einbýlishúss á parhúsalóðinni við Birkimel 21-23 og gera óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi.

9.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 66

Málsnúmer 2507005FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 66 þann 11.07.2025.

10.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 67

Málsnúmer 2507014FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 67 þann 18.07.2025.

11.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 68

Málsnúmer 2507020FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 68 þann 25.07.2025.

Fundi slitið - kl. 12:00.