Fara í efni

Skipulagsnefnd

79. fundur 10. júlí 2025 kl. 10:00 - 12:00 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Sigríður Magnúsdóttir formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Eyþór Fannar Sveinsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Blöndulína 3 - BL3 - Beiðni um nýja línuleið um land Starrastaða L146225

Málsnúmer 2507104Vakta málsnúmer

Landsnet sækir um færslu línuleiðar Blöndulínu 3 í gegnum land Starrastaða L146225 í Skagafirði í samræmi við óskir landeigenda. Er því óskað eftir breytingu á tillögu að Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 sem er í yfirferð Skipulagsstofnunar.
Með erindinu fylgja ásýndarmyndir af mögulegri færslu línuleiðarinnar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að sýna tvær útfærslur línuleiðar Blöndulínu 3 í landi Starrastaða í tillögu að Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Umhverfisáhrif eru mjög sambærileg eftir útfærslum og hafa ekki áhrif á aðra. Skipulagsnefnd telur mikilvægt að kynna þessar útfærslur áður en ákvörðun er tekin og felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun uppfærð gögn til yfirferðar.

2.Athafnarsvæði - Sauðárkrókur - AT-403 - Deiliskipulag

Málsnúmer 2403135Vakta málsnúmer

Farið yfir innsendar umsagnir við deiliskipulagstillögu fyrir "Sauðárkrókur athafnarsvæði AT-403" sem var í kynningu dagana 21.05.2025- 04.07.2025 í Skipulagsgáttinni mál nr. 808/2024, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/808 .

Átta umsagnir bárust á kynningartímanum sem gefa tilefni til minniháttar breytinga.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Sauðárkrókur athafnarsvæði AT-403" og senda hana Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

3.Hofsós - Skólagata - Túngata - Deiliskipulag

Málsnúmer 2407101Vakta málsnúmer

Farið yfir innsendar umsagnir við deiliskipulagstillögu fyrir "Hofsós, Skólagata og Túngata" sem var í kynningu dagana 21.05.2025- 04.07.2025 í Skipulagsgáttinni mál nr. 1344/2024, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1344/ .

Þrjár umsagnir bárust á kynningartímanum sem gefa tilefni til minniháttar breytinga.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Hofsós, Skólagata og Túngata" og senda hana Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

4.Hjaltastaðir land L180161 - Umsókn um stofnun byggingarreits

Málsnúmer 2504033Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá á 38. fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 14.05.2025, þá bókað:
"Vísað frá 71. fundi skipulagsnefndar frá 16. apríl sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað: "Berglind Svava Arngrímsdóttir og Jóhann Ari Böðvarsson þinglýstir eigendur lóðarinnar Hjaltastaðir land, landnr. 180161, óska eftir heimild til að stofna 59,5 m² byggingarreit á lóðinni, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 76620000 útg. 27. mars 2025. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð verkfræðistofu ehf. Um er að ræða byggingarreit fyrir bílskúr sem verður byggður við núverandi íbúðarhús. Áformað er að bílskúr verði jafn breiður núverandi húsi. Hámarks byggingarhæð verður 5 m og þakgerð verður flatt eða einhalla með halla til norðurs. Hámarksbyggingarmagn verður 59,5 m². Meðfylgjandi afstöðuuppdráttur gerir grein fyrir staðsetningu og áætluðu útliti fyrirhugaðrar viðbyggingar. Þó er áréttað að hönnun er á frumstigi og gæti tekið breytingum frá því sem sýnt er á meðfylgjandi afstöðumynd, innan þeirra skilmála sem sótt er um varðandi stærð byggingarreits, hámarks byggingarmagns og byggingarhæð. Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi Akrahrepps 2010-2022 og stendur ekki í vegi fyrir að markmiðum aðalskipulags um uppbyggingu á landbúnaðarsvæðum, sem fjallað er um í kafla 4.14.2, verði framfylgt. Reiturinn gengur ekki á ræktað land eða votlendissvæði, stendur ekki í vegi fyrir frekari uppbyggingu landbúnaðarbygginga, skerðir ekki möguleika á skógrækt eða gengur inn á hentug skilyrði fyrir hinar ýmsu greinar landbúnaðar. Þá er hann á þegar byggðu svæði sem styður hagkvæma landnotkun. Byggingarreitur gengur að einhverju leyti inn á túnslóða sem liggur niður að túnum neðan við bæjarhlaðið. Svigrúm er til staðar til að hliðra slóðanum, á þessum kafla, svo aðgengi að túnum skerðist ekki. Lögð verður áhersla á að áformuð bygging samrýmist einnig yfirbragði og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Byggingaráform kunna að varða hagsmuni eigenda nærliggjandi landeigna; Hjaltastaða, L146301, Hjaltastaða 2, L225439, Hjalla lands, L221439, og Hjalla lands, L146300. Uppbyggingaráform hafa ekki áhrif á aðgengi eða landnotkun á Hjalla, landnr. 146299. Meðfylgjandi afstöðuuppdráttur sýnir áætlaða staðsetningu fyrirhugðrar byggingar innan byggingarreits, snið og ásýndarmyndir, fyrir og eftir framkvæmdir. Hönnunargögn eru ekki fullunnin, sbr. ákvæði 5.9.7. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013. Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að grenndarkynna umbeðinn byggingarreit fyrir eigendum Hjaltastaða L146301, Hjaltastaða L225439, Hjalla L146299, Hjalla land L221439 og Hjalla 2 L146300. Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu erindisins. Sigurður H. Ingvarsson kom inn sem staðgengill skipulagsfulltrúa." Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að grenndarkynna umbeðinn byggingarreit fyrir eigendum Hjaltastaða L146301, Hjaltastaða L225439, Hjalla L146299, Hjalla land L221439 og Hjalla 2 L146300."

Grenndarkynning vegna málsins var dagana 26.05.2025-25.06.2025, engar athugasemdir bárust.
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit.

Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu erindisins. Sigurður H. Ingvarsson kom inn sem staðgengill skipulagsfulltrúa.

5.Hofsós (218098) - Umsókn um landskipti, (hólf nr. 23 austan Hofsóss)

Málsnúmer 2506179Vakta málsnúmer

Margeir Friðriksson, f.h. Skagafjarðar, þinglýsts eiganda Hofsóss, landnúmer 218098, í Skagafirði, óskar eftir heimild til að stofna 15,8 ha (157.576,0 m²) spildu úr Hofsósslandi sem "Hofsósland 23" skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01, í verki 56100505, útg. 01. júlí 2025 og merkjalýsingu skv. reglugerð nr. 160/2024, dags. 01. júlí 2025. Afstöðuuppdráttur og merkjalýsing voru unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Óskað er þess að útskipt lóð verði skráð sem Annað land (80). Útskipt spilda er á landbúnaðarsvæði nr. L-1 í gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035. Landskipti eru í samræmi við aðalskipulag og landnotkun skerðir ekki búrekstrarskilyrði á landi í landbúnaðarflokki I og II. Ekkert ræktað land er innan útskiptrar lóðar. Landheiti útskiptrar lóðar vísar af heiti upprunalands og fyrri notkun. Landheiti er ekki skráð á aðra landeign í sveitarfélaginu.
Engin mannvirki eru skráð innan útskiptrar lóðar.
Engin hlunnindi fylgja landskiptum.
Hofsós, landnr 218098, er ekki skráð lögbýli skv. lögbýlaskrá 2024.
Málnúmer í landeignaskrá er M002392.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðið nafnleyfi og samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landsskipti.

6.Álfgeirsvellir L146143 - Umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2507044Vakta málsnúmer

Sædís Rós W. Alfsdóttir, Óskar Þór Stefánsson og Jón Egill Indriðason f.h. RBR, landeigenda Álfgeirsvalla L146143 sækja um framkvæmdarleyfi fyrir sólarsellur (26kW), sem verða staðsettar ofan við hús á sér grindum og er framkvæmd áfangaskipt, og er hvor áfangi 13kW. Nánari lýsingu má sjá í viðauka "1. Grind og framkvæmdarreitur.pdf".
Þessi uppsetning jafngildir um það bil getu rafbílahleðslustöðvar, sem eru settar í heimahús, 22kW, við bestu aðstæður. Sólarsellur munu nýtast til að minka álag veitukerfis.

Í gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar (2020-2035) kemur fram þörf á fjölgun virkjana, þar með töldum smávirkjana sem ná að sinna að minnsta kosti hluta af þeim bæ sem virkjunin er sett upp á.
Í aðalskipulagi, kafla 14, kemur fram eftirfarandi:
"Bygging smávirkjana mun skipa stóran sess í aukinni raforkuvinnsluþörf Íslands á komandi árum þar sem stærri virkjanakostum fer nú fækkandi. Smávirkjanirnar munu stuðla að auknu orkuöryggi með dreifingu framleiðslu og geta ennfremur stutt við búskap og aðra atvinnustarfsemi víðsvegar í sveitarfélaginu (sjá umfjöllun í kafla 17 um stakar framkvæmdir)."
Þar með í aðalskipulagi, kafla 17, kemur eftirfarandi:
"Stakar framkvæmdir taka til stakra skipulagsskylda framkvæmdir sem ekki er talin þörf á að afmarka sérstaka landnotkun fyrir, enda sé um að ræða framkvæmdir sem ekki eru taldar líklegar til að valda verulegum áhrifum á umhverfið."
Með því er þessi framkvæmd vel innan marka aðalskipulags, þó kemur fram að með stakar framkvæmdir er ekki talin þörf á að afmarka sérstaka landnotkun, þar sem ekki eru taldar líklegar til að valda verulegum áhrifum umhverfis.
"Stakar framkvæmdir taka til stakra skipulagsskyldar framkvæmdir sem ekki er talin þörf á að afmarka sérstaka landnotkun fyrir, enda sé um að ræða framkvæmdir sem ekki eru taldar líklegar til að valda verulegum áhrifum á umhverfið."
Sé orkuframleiðsla meiri en notkun á búi, er möguleiki á að skila til baka á Landsnetið allri umfram orku með leyfi og samning við dreifiaðila.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdarleyfi.

7.Birkimelur 21-23 - Umsókn um lóð

Málsnúmer 2502186Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá skipulagsnefndar þann 20.02.2025, þá bókað:
“Inga Skagfjörð Helgadóttir sækir um parhúsalóðina Birkimel 21-23 í Varmahlíð. Jafnframt sækir hún um að fá lóðinni breytt í einbýlishúsalóð úr parhúsalóð með deiliskipulagsbreytingu, gangi það ekki eftir vill hún sækja samt sem áður um lóðina sem parhúsalóð. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að hafna umbeðinni deiliskipulagsbreytingu að breyta lóðinni úr parhúsalóð í einbýlishúsalóð en samþykkir jafnframt samhljóða að úthluta lóðinni Birkimel 21-23 í Varmahlíð sem parhúsalóð til Ingu Skagfjörð Helgadóttur."

Nú hefur borist annað erindi frá lóðarhöfum þar sem óskað er aftur með frekari rökum eftir því að Birkimel 21-23 verði breytt úr parhúsalóð í einbýlishúsalóð í gildandi deiliskipulagi.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta erindinu og fela skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjendur í samræmi við umræður fundarins.

8.Fornós 5 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2507105Vakta málsnúmer

Magnús Þórarinn Thorlacius og Guðrún Hildur Magnúsdóttir lóðarhafar Fornós 5 á Sauðárkróki sækja um breikkun á innkeyrslu lóðarinnar um 3,8 metra til suðurs. Með þessu móti er hægt að koma öllum bílum heimilisins af götunni sem eykur öryggi og auðveldar einnig snjómokstur.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna breikkun á innkeyrslu en minnir á að verkið skal unnið í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.

9.Brekkutún 10 Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2506131Vakta málsnúmer

Áskell Heiðar Ásgeirsson lóðarhafi Brekkutúns 10 á Sauðárkróki sækir um stækkun á bílastæði lóðarinnar um allt að 3,5 metra til suðurs yfir lagnasvæði sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Með umsókninni fylgir jákvætt svar frá Veitu- og framkvæmdasviði Skagafjarðar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna breikkun á innkeyrslu en minnir á að verkið skal unnið í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.

10.Umsagnarbeiðni; Breyting á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 - Blöndulína 3 - mál 0793 2024

Málsnúmer 2407003Vakta málsnúmer

Hörgársveit hefur óskað eftir umsögn Skagafjarðar vegna breytinga á "Blöndulína 3 - breyting á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024", mál nr. 0793/2024 í Skipulagsgáttinni, sjá hér https://skipulagsgatt.is/issues/2024/793 . Kynningartími er frá 26.06.2025 til 17.07.2025.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd, en minnir jafnframt á að einnig sé verið að gera breytingu vegna Blöndulínu 3 í yfirstandandi endurskoðun Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040.

11.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 65

Málsnúmer 2506027FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 65 þann 26.06.2025.

Fundi slitið - kl. 12:00.