Fara í efni

Skipulagsnefnd

74. fundur 19. maí 2025 kl. 10:00 - 12:00 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Sigríður Magnúsdóttir formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Eyþór Fannar Sveinsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Endurskoðun aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040

Málsnúmer 2404001Vakta málsnúmer

Íris Anna Karlsdóttir og Hlynur Torfi Torfason skipulagsráðgjafar hjá VSÓ ráðgjöf sátu fundinn í gegnum fjarfundarbúnað og fóru yfir innsendar umsagnir við vinnslutillögu fyrir "Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040" sem var í kynningu dagana 13.03.2025- 25.04.2025 í Skipulagsgáttinni mál nr. 613/2025, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/613 .
17 umsagnir bárust.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

Gestir

  • Íris Anna Karlsdóttir
  • Hlynur Torfi Torfason

2.Gránumóar lóð 64 - Beiðni um lóðarstækkun

Málsnúmer 2505102Vakta málsnúmer

Þórólfur Gíslason fyrir hönd Kaupfélags Skagfirðinga sækir um stækkun lóðar Gránumóa 64 skv. meðfylgjandi uppdrætti nr. S01 í verki 30130120, gerður hjá Stoð verkfræðistofu ehf.

Fyrirhugað er að hefja framleiðslu á gæludýrafóðri í húsnæði KS á lóð Gránumóum 63 og verður húsnæði og lóð Gránumóa 64 nýtt m.a. sem athafnarsvæði í tengslum við fyrirhugaða framleiðslu.

Miðað við núverandi lóðaskipulags Gránumóa 64 og nærliggjandi lóða þá þykir eðlilegt að stækka lóðina nr. 64 til að hún eigi lóðamörk að aðliggjandi lóðum í stað þess að sé opið óræktar svæði um kring.
Meðfylgjandi uppráttur gerir grein fyrir þeirri lóðarstækkun sem óskað er eftir. Stærð lóðar eftir stækkun yrði 8699 m².

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslunni og óska eftir frekari upplýsingar varðandi fyrirhugaða notkun lóðarinnar og ásýnd.
Bendum jafnframt á að á lóð Gránumóa 62 eru 2 steyptir niðurgrafnir vatnsgeymar frá Skagafjarðarveitum ásamt lokahúsi. Einnig er verið að ákveða framtíðarlegu nýrrar vegtengingar við Þverárfjallsveg í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 sem er í vinnslu og þarf að taka tillit til.

3.Viðvík I og II L146424 - Umsókn um stækkun byggingarreits

Málsnúmer 2505031Vakta málsnúmer

Þann 25. nóvember 2015 samþykkti skipulags- og byggingarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar umsókn landeiganda Viðvíkur, landnr. 146424, um stofnun byggingarreits á landi jarðarinnar. Samþykkt var staðfest í sveitarstjórn þann 09.12.2015.
Kári Ottósson, þinglýstur eigandi Viðvíkur, landnr. 146464, óskar eftir heimild til að stækka áður samþykktan byggingarreit um 1.952 m², skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 72093000 útg. 13. maí 2025. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð verkfræðistofu ehf. Reiturinn stækkar um 40,95 m til suðvesturs, um 6 m til norðvesturs, um 22,05 m til norðausturs og um 5 m til suðausturs. Fyrir stækkun er reiturinn 520 m² en eftir stækkun verður hann 2.472 m².
Um er að ræða byggingarreit fyrir viðbyggingu núverandi gripahúss sem byggð var árið 2019. Endanleg hönnun mannvirkis liggur ekki fyrir en hámarks byggingarmagn viðbyggingar verður um 590 m² og verður byggingarhæð sú sama og núverandi byggingar.
Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-2 í aðalskipulag Skagafjarðar 2020-2035 og gengur ekki inn á ræktað land. Umsótt stækkun er samræmi við ákvæði aðalskipulags um uppbyggingu á landbúnaðarsvæðum og hefur ekki neikvæð áhrif á búrekstrarskilyrði. Umsótt stækkun er um 430 m frá Hólavegi (767) og er að mestu í átt frá Viðvíkurkirkju sem er í um 220 m fjarlægð. Stækkun skerðir ekki aðgengi að öðrum fasteignum.
Áform uppbyggingar eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum sem talin eru upp í kafla 12.4 greinargerðar þar sem um er að ræða byggingu í tengslum við aðra byggingu, þ.e.a.s. viðbyggingu, núverandi innviðir nýtast áfram, ekki er verið að fjölga byggingum og um er að ræða byggingu fyrir landbúnaðarstarfsemi sem er ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi. Jafnframt segir í sama kafla:
"Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
Hér er sótt um viðbyggingu gripahúss sem er styrkir starfsemi bújarðarinnar. Byggingaráform munu efla starfsemi á svæðinu og samrýmast núverandi landnotkun. Lögð verður áhersla á að áformuð viðbygging samrýmist yfirbragði og ásýnd svæðisins. Áhrif á umhverfi eru óveruleg umfram áhrif núverandi byggingar.
Umsækjandi er eigandi nærliggjandi landeigna, Viðvíkur lands, L178680, og Viðvíkur lands, L178681.
Fyrirliggur jákvæð umsögn minjavarðar Norðurlands vestra.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn bygginarreit.

4.Lækjarbakki 8 - Umsókn um lóð

Málsnúmer 2505009Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá Indriða Ægi Þórarinssyni og Þórarini Guðna Sverrissyni dags. 29.04.2025 um einbýlishúsalóðina Lækjarbakka 8 á Steinsstöðum.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að úthluta umsækjendum einbýlishúsalóðinni Lækjarbakka 8 á Steinsstöðum.
Skipulagsnefnd fagnar framkominni umsókn um lóð á Steinsstöðum.

5.Víðigrund 7 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2503246Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá á 71. fundi skipulagsnefndar, þá bókað:
"Logi Snær Knútsson óskar eftir leyfi til að breikka innkeyrslu að lóðinni Víðigrund 7 á Sauðárkróki, u.þ.b. 6 m, skv. meðfylgjandi gögnum. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að óska eftir frekari gögnum frá umsækjanda."
Samkvæmt gögnum sem bárust þann 14.05.2025 er óskað eftir stækkun innkeyrslu Víðigrundar 7 á Sauðárkróki úr 3,30 m upp í 9,3 m.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu og felur starfsmönnum nefndarinnar að hafa samband við umsækjanda.

6.Barmahlíð 4 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2504087Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá 72. fundar skipulagsnefndar þann 30.04.2025 þá bókað:
"Sigurður Ingi Ragnarsson óskar eftir leyfi til að stækka bílastæði við Barmahlíð 4. Óskað er eftir að taka gras af lagnasvæði fyrir framan lóð við Barmahlíð 4 að lóðarmörkum Barmahlíðar 4 og 6 og setja niður svo kallaðar rastir (plastmottur sem gras vex í gegnum) til að geta lagt bílum á grasfletinum án þess að skemma grasið. Fyrirhugað er að taka núverandi gróður, setja möl og leggja rastir, setja mold í rastinar og sá grasfræi, þannig að gras komi upp á milli rasta. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að óska eftir frekari gögnum frá umsækjanda."

Viðbótargögn bárust 07.05.2025 þar sem kemur fram frekari útskýring á ástæðum umsóknar um stækkun bílastæðis við Barmahlíð 4.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðin bílastæði með þeirri framkvæmd sem er lýst í umsókninni en gerir fyrirvara um jákvæða umsögn sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar.

7.Grundarstígur 9 - Umsókn um breikkun bílastæðis

Málsnúmer 2504218Vakta málsnúmer

Pétur Ingi Gíslason og Unnur Fjóla Heiðarsdóttir lóðarhafar Grundarstígs 9 á Sauðárkróki óska eftir leyfi til að breikka bílastæði u.þ.b. bil 4,5 metra, fylgiskjal með umsókn sýnir umbeðna stækkun.
Fáist leyfi fyrir því þarf að fjarlægja eða færa ljósastaur.
Í Grundarstíg 22 sem er skammtímadvöl og því mikið um að bílum sem lagt út á götu við húsið Grundarstíg 9.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna 4,5 m breikkun innkeyrslu að lóðinni en gerir fyrirvara um jákvæða umsögn sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar.

8.Hvíteyrar L146178 - Umsókn um stofnun landsspildu

Málsnúmer 2505064Vakta málsnúmer

Rósa Björnsdóttir þinglýstur eigandi jarðarinnar Hvíteyrar, landnúmer 146178 óska eftir heimild til að stofna 10,44 ha spildu úr landi jarðarinnar, sem "Bergholt" skv. meðfylgjandi merkjalýsingu fyrir Hvíteyrar, dags. 21.10.2024, unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.

Öll hlunnindi tilheyra áfram Hvíteyrum lnr. 146178.
Landskipti samræmast aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035.
Landskipti hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Engin fasteign er á umræddri spildu.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Hvíteyrum, landnr. 146178.
Stofnað land verður í eigu sama eiganda og upprunajarðar.

Málsnúmer hjá landeignaskrá er M000513.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.

9.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 62

Málsnúmer 2505002FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 62 þann 05.05.2025.

Fundi slitið - kl. 12:00.