Fara í efni

Félagsmála- og tómstundanefnd

35. fundur 19. maí 2025 kl. 10:00 - 12:55 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigurður Bjarni Rafnsson formaður
  • Guðlaugur Skúlason aðalm.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði: Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Samráð; Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra

Málsnúmer 2504220Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dags. 30. apríl 2025 þar sem heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 82/2025, „Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra". Með frumvarpinu er ætlunin að fækka færni- og heilsumatsnefndum í hverju heilbrigðisumdæmi og setja í þeirra stað eina nefnd fyrir landið allt. Umsagnarfrestur er til og með 21. maí 2025.

2.Samráð; Drög að reglugerð um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni

Málsnúmer 2505044Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dags. 6. maí 2025 þar sem félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 84/2025, „Drög að reglugerð um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni". Um nýja reglugerð er að ræða. Umsagnarfrestur er til og með 27. maí 2025.

3.Barnavernarþjónusta Mið - Norðurlands fundargerðir faghóps

Málsnúmer 2301093Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar þrjár fundargerðir fagráðs Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands, nr. 61 til 63.

4.Fagráð - fjallað um og veitt ráðgjöf um einstök mál

Málsnúmer 2107015Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 35. fundargerð frá 12. maí 2025.

5.Einstaklingar á bið eftir húsnæði

Málsnúmer 2504180Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar áfangaskýrsla II um kostnað og ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk. Skýrslan er unnin af félags- og vinnumarkaðsráðueyti.

6.Sumarafleysingar 2025

Málsnúmer 2505155Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá leiðtoga fatlaðs fólks og eldra fólks um stöðu sumarafleysinga. Staða ráðninga er frekar slæm sjötta árið í röð. Á starfsstöðvum í Skagafirði vantar enn um 6 til 10 starfsmenn og einn starfsmann vantar í sumarafleysingar á starfsstöð á Hvammstanga. Á starfsstöðinni á Blönduósi er staðan nokkuð góð. Um lögbundna þjónustu er að ræða og alvarlegt að ekki hafi tekist að fá fólk til starfa. Í minnisblaðinu koma fram ýmsar leiðir sem búið er að reyna til að leysa mönnunarvanda en hafa ekki skilað tilætluðum árangri.

Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að skerða heimaþjónustu og dagdvöl aldraðra eins og þörf er á í sumar ef ekki tekst að manna afleysingar. Skoða verður hvort þurfi að loka dagdvöl tímabundið í sumar. Miðað við núverandi stöðu er fyrirséð að starfsfólk mun ekki hafa tök á því að taka fullt sumarorlof sjötta sumarið í röð. Nefndin lýsir yfir áhyggjum sínum á viðvarandi mönnunarvanda og vekur athygli á því að félagsþjónustan sinnir lögbundnu hlutverki í þjónustu við fatlað fólk og eldra fólk.

Nefndin felur starfsmönnum nefndarinnar að vinna áfram með minnisblað leiðtoga og skoða hvort og þá hvaða leiðir eru færar til að búa til hvata til framtíðar fyrir starfsmenn í samráði við mannauðsstjóra og nefndina.

Einnig lagt fram minnisblað frá leiðtoga frístunda- og íþróttamála um stöðu sumarafleysinga í málaflokki 06. Hægt hefur gengið að ráða inn í sumarafleysingar en miðað við stöðuna á ráðningum núna er ekki útlit fyrir að skerða þurfi opnunartíma. Vinnuskólinn var tengdur starfsemi á íþróttavellinum á Sauðárkróki í fyrra og mun sami háttur vera á í ár þar sem það gaf góða raun.

Félagsmála- og tómstundanefnd vísar málinu samhljóða til sveitarstjórnar.

7.Íþrótta- og leikjanámskeið Fljótum 2025

Málsnúmer 2505030Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um styrk vegna íþrótta- og leikjanámskeiða barna í Fljótum. Félagsmála- og tómstundanefnd fagnar umsókninni og samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð 150.000 krónur til íþrótta- og leikjanámskeiða fyrir börn í Fljótum.

8.Ósk um leigu á íþróttahúsi

Málsnúmer 2505029Vakta málsnúmer

Kennarasamband Norðurlands vestra óskar eftir afnotum af íþróttahúsinu á Sauðárkróki fyrir haustþing sambandsins sem haldið verður þann 29. ágúst nk. Viðburðurinn raskar lítið hefðbundinni starfsemi í íþróttahúsinu þennan dag. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir með öllum greiddum atkvæðum að leigja íþróttahúsið til Kennarasambands Norðurlands vestra til veisluhalda með vísan í gjaldskrá íþróttamannvirkja í Skagafirði.
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

9.Tillaga - Matarþjónusta - eldri borgarar

Málsnúmer 2211102Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um stöðu mála og nýtingu á auglýstri matarþjónustu í dreifbýli. Staðan er sú að engin hefur óskað eftir að nýta sér þjónustuna m.a. vegna þess að hún kemur ekki til móts við þjónustuþarfir þeirra sem sýndu áhuga á að taka þátt í reynsluverkefninu og engin ný umsókn barst. Skólastjórar og starfsmenn grunnskólanna tóku mjög vel í verkefnið og var undirbúningur þeirra til fyrirmyndar. Aðilar sem sækja dagdvöl aldraðra á Sauðárkróki fengu kynningu á því fyrirkomulagi að geta fengið aðstoð við að versla inn tilbúna rétti og hafa með sér heim. Enginn hefur nýtt sér það.

Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, fulltrúi Vg og óháðra óskar bókað:
Samkvæmt 1. gr. laga um málefni aldraðra þá eiga aldraðir að eiga völ á þeirri heilbrigðis- og félagslegu þjónustu sem þeir þurfa á að halda og að hún sé veitt á því þjónustustigi sem er eðlilegast miðað við þörf og ástand hins aldraða. Einnig er markmið laganna að aldraðir geti, eins lengi og unnt er, búið við eðlilegt heimilislíf. Við framkvæmd laganna skal þess gætt að aldraðir njóti jafnréttis á við aðra þjóðfélagsþegna og að sjálfsákvörðunarréttur þeirra sé virtur. Samkvæmt 40. gr laga félagsþjónustu sveitarfélaga 40/1991 skal sveitarstjórn sjá um að félagsþjónusta aldraðra sé fyrir hendi í sveitarfélaginu eftir þörfum. Þar er m.a. átt við heimaþjónustu, félagsráðgjöf og heimsendingu matar.
Sveitarfélaginu er skylt samkvæmt lögum að stuðla að því að aldraðir geti búið sem lengst heima og við eðlilegt heimilislíf, því ber að gæta þess að aldraðir njóti jafnréttis og því ber að sinna þörfum aldraðra eins og heimsendingu matar.
Bókun VG og Óháðra á síðasta fundi félagsmála- og tómstundanefndar í þessu máli hefur því miður raungerst, þær leiðir sem valdar voru á síðasta fundi eru ekki að koma til móts við þarfir né sinna þeirri þjónustu sem skortir en sveitarfélaginu ber að sinna. Sveitarfélagið er ekki enn að veita þá félagslegu þjónustu miðað við þörf og ástand þeirra öldruðu sem ekki búa í póstnúmerinu 550, en þar er vissulega heimsending matarbakka og því er jafnræðis ekki gætt, heldur á sér stað mismunun eftir búsetu. Þjónustuskorturinn bitnar því á þeim sem mest þurfa á þjónustunni að halda og því leggja VG og óháð fram eftirfarandi tillögu:
Setja skal heimsendingu matar til aldraðra í dreifbýli í útboð strax eða sjá til þess með annars konar útfærslum að þessi lögbundna þjónusta raungerist á árinu.

Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafna tillögu fulltrúa VG og Óháðra og minnir á að fulltrúinn samþykkti þá leið sem var ákveðið að fara í á fundi nefndarinnar 6. mars 2025. Á þeim sama fundi lá fyrir mjög gott minnisblað tekið saman af starfsmönnum nefndarinnar þar sem ólíkar sviðsmyndir voru dregnar upp og nokkrar þeirra tengdust heimsendingu matarbakka í dreifbýli. Það var ekki talinn vænlegur kostur sökum kostnaðar og flækjustig þótti mikið. Meirihluti hvetur fulltrúa VG og Óháðra að koma með útfærslu sem ekki hefur verið velt upp áður svo hægt sé að taka umræðu um hana á næsta fundi.
Meirihluti telur að stutt sé liðið síðan hinar sviðsmyndirnar voru valdar og viljum við hafa þær í boði óbreyttar fram í haustið og biður starfsmenn nefndarinnar að auglýsa fyrir sumarið og aftur í haust.

Fulltrúi Vg og óháðra óskar bókað:
Með því að hafna tillögunni hefur meirihluti ákveðið að hafna því að senda heim mat í dreifbýli Skagafjarðar. Fulltrúi VG og óháðra minnir á að hann samþykkti tillögurnar á síðasta fundi svo framkvæmd kæmist eitthvað af stað og bókaði jafnframt að þetta væri jákvætt fyrsta skref en huga þyrfti sem fyrst að útfærslum sem bjóða upp á heimsendingu matarbakka í dreifbýli. Fulltrúi VG og óháðra vill jafnframt ítreka rétt sinn til að koma fram með tillögur og sjónarmið þrátt fyrir fyrri samþykktir og minnir á að stjórnsýsla og stefnumótun þarf að vera lifandi ferli sem bregst við nýjum upplýsingum og breyttum aðstæðum. Tillaga fulltrúa VG og óháðra snýst um að sinna þörfum sem bundin eru lögum, fyrri útfærsla sem ákveðin var að fara skilaði ekki tilætluðum árangri og því eðlilegt að endurskoða.

Meirihluti bendir á að með því að hafna tillögunni er ekki verið að hafna heimsendingu matar í dreifbýli Skagafjarðar og bendir á bókun meirihluta. Samþykkt með atkvæðum meirihluta að fela starfsfólki að auglýsa þjónustuna sem er í boði.

10.Trúnaðarbók félagsmála- og tómstundanefndar 2025

Málsnúmer 2501432Vakta málsnúmer

Tvö mál tekin fyrir og færð í trúnaðarbók.

Fundi slitið - kl. 12:55.