Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Málsnúmer 2310244Vakta málsnúmer
2.Trúnaðarbók byggðarráðs
Málsnúmer 2412006Vakta málsnúmer
Fært í trúnaðarbók.
3.Víðimýri 10 - Sala íbúðar
Málsnúmer 2601143Vakta málsnúmer
Mál síðast á dagskrá 181. fundar byggðarráðs Skagafjarðar þann 11. febrúar 2026.
Upplýst var um tillögu að lausn málsins eftir að erindi barst frá tryggingafélagi Landmarks fasteignamiðlunar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að taka tilboði Björns Elvars Magnússonar og Lísu Guðbjörnsdóttur, dags. 12. janúar 2026, á fasteigninni Víðimýri 10, fastanúmer 213-2495. Heildarfjárhæð til sveitarfélagsins fyrir fasteignina eru 47,9 m.kr.
Upplýst var um tillögu að lausn málsins eftir að erindi barst frá tryggingafélagi Landmarks fasteignamiðlunar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að taka tilboði Björns Elvars Magnússonar og Lísu Guðbjörnsdóttur, dags. 12. janúar 2026, á fasteigninni Víðimýri 10, fastanúmer 213-2495. Heildarfjárhæð til sveitarfélagsins fyrir fasteignina eru 47,9 m.kr.
4.Tilboð í íbúð 2. HV Skógargötu 2
Málsnúmer 2512176Vakta málsnúmer
Borist hafa þrjú tilboð í íbúðina að Skógargötu 2, fastanúmer 213-2173.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að taka tilboði dagsett 18. febrúar 2026 að fjárhæð 38.750.000 kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að taka tilboði dagsett 18. febrúar 2026 að fjárhæð 38.750.000 kr.
5.Viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 2602117Vakta málsnúmer
Lögð fram beiðni um gerð viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Breytingar í framlagðri beiðni gera ráð fyrir aukningu útgjalda um kr. 5.850.471. Helstu breytur eru tímabundin aukning um hálft stöðugildi á málaflokki 04, og kaup á búnaði í Bifröst vegna kvikmynda- og leiksýninga. Niðurstaðan er lækkun á handbæru fé um sömu fjárhæð, kr. 5.850.471.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða beiðni um viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2026 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða beiðni um viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2026 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
6.Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
Málsnúmer 2602112Vakta málsnúmer
Skagafirði barst bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga, dags. 12. febrúar 2026, þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn sjóðsins. Frestur til að skila inn tilnefningu eða framboði er til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 27. febrúar 2026. Um framboð og kjör til stjórnar gilda hlutafélagalög nr. 2/1995 og lög um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Jafnframt er farið að leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja að eins miklu leyti og unnt er.
7.Sögustund; Árið 2026
Málsnúmer 2601276Vakta málsnúmer
Á fundinum var lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 27. janúar 2026. Í tölvupóstinum fer Saga Guðmundsdóttir, aðalhagfræðingur Sambandsins, yfir erindi sitt á málþingi Sambandsins um stefnu í málefnum fatlaðs fólks til framtíðar.
Fundi slitið - kl. 09:28.
Byggðarráð þakkar Selmu kærlega fyrir komuna og veittar upplýsingar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða áskorun til mennta- og barnamálaráðherra:
Byggðarráð Skagafjarðar skorar á mennta- og barnamálaráðherra að fylgja, af sinni alkunnu einurð, eftir áformum forvera síns í embætti ráðherra, eins og þau birtust í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu 10. júní sl. Þar kom fram að ríkisstjórnin hyggist hefja framkvæmdir við fjóra verknámsskóla, þ.e. Menntaskólann á Ísafirði, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Verkmenntaskólann á Akureyri. Samkvæmt tilkynningunni stranda áformin ekki á fjármagni og stefnt væri að því að framkvæmdir myndu hefjast nú í vetur, að loknu útboði.
Í stefnuræðu forsætisráðherra, 10. september sl., kom fram í ræðu ráðherra að á árinu 2026 yrðu hafnar framkvæmdir við stækkun fjögurra verknámsskóla vítt um land, sem væru fjármagnaðar.
Því miður virðast óútskýrðar tafir við útboðsgögn hjá Framkvæmdasýslunni - Ríkiseignum og skortur á staðfestingu á fjármögnun framkvæmda frá mennta- og barnamálaráðuneytinu, valda því að útlit er fyrir að framkvæmdir við stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hefjist ekki á árinu 2026. Yrði það þá þriðja árið í röð þar sem mótframlag sveitarfélagsins Skagafjarðar í fjárhagsáætlun þess vegna byggingarinnar yrði ekki nýtt. Það er algjörlega óviðunandi staða á meðan ástand kennsluaðstöðu við skólann er með þeim hætti að stór hluti hennar fer fram í gámum og bráðabirgðaúrræðum á göngum bóknámshúss skólans. Ríkisstjórn Íslands verður að bretta upp ermarnar og láta efndir fylgja orðum.