Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
Málsnúmer 2602112
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 182. fundur - 19.02.2026
Skagafirði barst bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga, dags. 12. febrúar 2026, þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn sjóðsins. Frestur til að skila inn tilnefningu eða framboði er til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 27. febrúar 2026. Um framboð og kjör til stjórnar gilda hlutafélagalög nr. 2/1995 og lög um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Jafnframt er farið að leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja að eins miklu leyti og unnt er.