Fara í efni

Tilboð í íbúð 2. HV Skógargötu 2

Málsnúmer 2512176

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 175. fundur - 17.12.2025

Á 166. fundi byggðarráðs samþykkti byggðarráð samhljóða að veita heimild fyrir sölu á 5 eignum. Skógargata 2, F213-2173, er á meðal þeirra eigna sem um ræðir og var hún auglýst til sölu 6. nóvember 2025. Borist hefur eitt tilboð í eignina með fyrirvara um fjármögnun.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að ganga að tilboðinu.

Byggðarráð Skagafjarðar - 178. fundur - 21.01.2026

Lagður fram tölvupóstur frá Moniku Hjálmtýsdóttur, fasteignasala hjá Landmark, dagsettur 20. janúar 2026. Í tölvupóstinum fer hún þess á leit við byggðarráð fyrir hönd tilboðsgjafa í íbúð 2. hæð til vinstri á Skógargötu 2 að framlengja fresti til að aflétta fyrirvara um sölu núverandi íbúðar til og með 20. febrúar 2026.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að framlengja frest til að aflétta fyrirvara um sölu núverandi íbúðar væntanlegs kaupanda til og með 20. febrúar 2026.

Byggðarráð Skagafjarðar - 181. fundur - 11.02.2026

Mál áður á dagskrá 178. fundi byggðarráðs þann 21. janúar sl.

Tilboðsgjafi í Skógargötu hefur óskað eftir því að vera losaður undan kauptilboði sínu.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að losa tilboðsgjafa undan kauptilboði sínu í eignina.

Byggðarráð Skagafjarðar - 182. fundur - 19.02.2026

Borist hafa þrjú tilboð í íbúðina að Skógargötu 2, fastanúmer 213-2173.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að taka tilboði dagsett 18. febrúar 2026 að fjárhæð 38.750.000 kr.