Víðimýri 10 - Sala íbúðar
Málsnúmer 2601143
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 180. fundur - 05.02.2026
Undir þessum dagskrárlið kom Ívar Pálsson lögmaður til fundarins.
Ívar fór yfir stöðu mála. Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela Ívari að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Ívar fór yfir stöðu mála. Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela Ívari að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Byggðarráð Skagafjarðar - 181. fundur - 11.02.2026
Mál síðast á dagskrá 180. fundar byggðarráðs Skagafjarðar þann 5. febrúar 2026.
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs fór yfir stöðu málsins. Málið er í góðum farvegi og leitast er við að leysa málið á farsælan hátt fyrir alla aðila máls. Málið er unnið í góðu samstarfi lögfræðings sveitarfélagsins ásamt starfsfólki Landmark.

Byggðarráð Skagafjarðar - 182. fundur - 19.02.2026
Mál síðast á dagskrá 181. fundar byggðarráðs Skagafjarðar þann 11. febrúar 2026.
Upplýst var um tillögu að lausn málsins eftir að erindi barst frá tryggingafélagi Landmarks fasteignamiðlunar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að taka tilboði Björns Elvars Magnússonar og Lísu Guðbjörnsdóttur, dags. 12. janúar 2026, á fasteigninni Víðimýri 10, fastanúmer 213-2495. Heildarfjárhæð til sveitarfélagsins fyrir fasteignina eru 47,9 m.kr.

Víðimýri 10 var auglýst til sölu 6. nóvember sl. og fljótlega barst eitt tilboð í eignina. Áður en gengið var til kaupsamnings um eignina koma í ljós mistök af hálfu fasteignasala við undirbúning sölu íbúðarinnar sem leiddi til þess að ekki var hægt að ganga frá kaupsamningi.
Sveitarfélaginu ásamt Landmark fasteignasölu barst kröfubréf, dagsett 12. janúar 2026, frá Jónasi Erni Jónassyni lögmanni hjá Reykvískum lögmönnum fyrir hönd bjóðenda í íbúðina.
Ívar Pálsson fór yfir málið.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela Ívari að vinna málið áfram.