Fara í efni

Þjónustustefna Skagafjarðar 2026

Málsnúmer 2510144

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 166. fundur - 15.10.2025

Með lögum nr. 96/2021 sem tóku gildi í júní 2021 samþykkti Alþingi nýtt ákvæði við sveitarstjórnarlög sem fjallar um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags. Samkvæmt 130. gr. a sveitarstjórnarlaga skal sveitarstjórn móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú árin eftir það, um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum viðkomandi sveitarfélags. Mótun stefnunnar skal unnin samhliða fjárhagsáætlun. Til hliðsjónar er þjónustustefna Skagafjarðar fyrir árin 2025-2028 með áorðnum breytingum.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að auglýsa eftir athugasemdum og ábendingum um breytingar á gildandi þjónustustefnu og vísar stefnunni jafnframt til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 42. fundur - 15.10.2025

Vísað frá 166. fundi byggðarráðs þann 15. október 2025, þannig bókað:
"Með lögum nr. 96/2021 sem tóku gildi í júní 2021 samþykkti Alþingi nýtt ákvæði við sveitarstjórnarlög sem fjallar um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags. Samkvæmt 130. gr. a sveitarstjórnarlaga skal sveitarstjórn móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú árin eftir það, um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum viðkomandi sveitarfélags. Mótun stefnunnar skal unnin samhliða fjárhagsáætlun. Til hliðsjónar er þjónustustefna Skagafjarðar fyrir árin 2025-2028 með áorðnum breytingum.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að auglýsa eftir athugasemdum og ábendingum um breytingar á gildandi þjónustustefnu og vísar stefnunni jafnframt til fyrri umræðu í sveitarstjórn."

Þjónustustefna Skagafjarðar fyrir árin 2026-2029 borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum og vísað til síðari umræðu sveitarstjórnar.

Byggðarráð Skagafjarðar - 170. fundur - 14.11.2025

Með lögum nr. 96/2021 sem tóku gildi í júní 2021 samþykkti Alþingi nýtt ákvæði við sveitarstjórnarlög sem fjallar um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags. Samkvæmt 130. gr. a sveitarstjórnarlaga, skal sveitarstjórn móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú árin eftir það, um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum viðkomandi sveitarfélags. Mótun stefnunnar skal unnin samhliða fjárhagsáætlun og skal málsmeðferðin vera sú sama.

Þjónustustefna Skagafjarðar fyrir árin 2026-2029 var samþykkt í fyrri umræðu í sveitarstjórn Skagafjarðar 15. október sl. og í kjölfarið auglýst eftir athugasemdum frá íbúum. Ábendingar bárust frá fjórum einstaklingum.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða þjónustustefnu Skagafjarðar fyrir árin 2026-2029 og vísar til annarrar umræðu í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 43. fundur - 19.11.2025

Vísað frá 170. fundi byggðarráðs frá 14. nóvember sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
„Með lögum nr. 96/2021 sem tóku gildi í júní 2021 samþykkti Alþingi nýtt ákvæði við sveitarstjórnarlög sem fjallar um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags. Samkvæmt 130. gr. a sveitarstjórnarlaga, skal sveitarstjórn móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú árin eftir það, um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum viðkomandi sveitarfélags. Mótun stefnunnar skal unnin samhliða fjárhagsáætlun og skal málsmeðferðin vera sú sama.

Þjónustustefna Skagafjarðar fyrir árin 2026-2029 var samþykkt í fyrri umræðu í sveitarstjórn Skagafjarðar 15. október sl. og í kjölfarið auglýst eftir athugasemdum frá íbúum. Ábendingar bárust frá fjórum einstaklingum.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða þjónustustefnu Skagafjarðar fyrir árin 2026-2029 og vísar til annarrar umræðu í sveitarstjórn.“

Þjónustustefna Skagafjarðar fyrir árin 2026-2029 borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.