Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd

39. fundur 11. desember 2025 kl. 09:00 - 11:00 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Hildur Þóra Magnúsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir ritari
  • Gunnar Björn Rögnvaldsson verkefnastjóri
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Fundargerð ritaði: Guðný Axelsdóttir ritari
Dagskrá

1.Hitaveita í dreifbýli

Málsnúmer 2512061Vakta málsnúmer

Gunnar Björn Rögnvaldsson verkefnastjóri hjá Skagafjarðarveitum og Hjörvar Halldórsson sviðstjóri Veitu- og framkvæmdasviðs fóru yfir stöðu mála og framtíðarsýn í hitaveitu í Skagafirði. Rætt um kostnað við lagningu hitaveitu frá Dælislaug að Róðhóli og lagningu hitaveitu um Hjaltadal frá Reykjum að Steinhólum. Einnig valkosti í tengingum í Viðvíkursveit frá Viðvík að Vatnsleysu eða alla leið í Hofstaðaplássið. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmönnum að vinna málin áfram og á næsta fundi verði farið yfir þau svæði sem eftir eru.
Gunnar Björn Rögnvaldsson vék af fundi eftir þennan lið.

2.Girðingar og ristahlið í Gönguskörðum

Málsnúmer 2512065Vakta málsnúmer

Rætt um ástand girðinga meðfram þjóðveginum í Gönguskörðum, en ljóst er að ástand þeirra er ekki ásættanlegt á stórum köflum. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að senda Vegagerðinni formlegt erindi þar sem óskað er svara um hvort hægt er að flytja núverandi ristahlið. Í framhaldinu þarf að gera átak í girðingum meðfram vegum í sveitarfélaginu.

3.Upprekstrarfélag Eyvindarstaðaheiðar - Ársreikningur 2020-2025

Málsnúmer 2511228Vakta málsnúmer

Upprekstrarfélag Eyvindarstaðaheiðar - farið yfir ársreikninga 2020-2024 ásamt umsókn um fjármuni til viðhalds á skálum félagsins. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að bjóða stjórn upprekstrarfélagsins á fund og fara yfir fyrirkomulag á rekstri skálanna.

4.Open Rivers Programme - sjóður til styrktar endurheimt á ám, lækjum og vatnasviðum

Málsnúmer 2511222Vakta málsnúmer

Kynning á Open Rivers Programme - sjóður til styrktar endurheimt á ám, lækjum og vatnasviðum

5.Samráð; Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laxa- og silungsveiði og fiskræktar

Málsnúmer 2512020Vakta málsnúmer

Til kynningar Samráð; Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laxa- og silungsveiði og fiskræktar.

Fundi slitið - kl. 11:00.