Landbúnaðar- og innviðanefnd
Dagskrá
1.Aðkoma að þéttbýlisstöðum Skagafjarðar
Málsnúmer 2405270Vakta málsnúmer
Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri kom á fundinn til að ræða aðkomu þéttbýlisstaða í Skagafirði og hvað betur má fara í umgengni og garðyrkju. Rætt meðal annars um jarðvegstippinn austan við Ársali, en þar er ætlunin að bæta ásýnd með gróðri, beit og bættri umgengni. Einnig farið yfir umhverfisverkefni í Varmahlíð, Steinsstöðum og á Hofsósi. Sláttuplan garðyrkjudeildar fyrir sumarið er aðgengilegt á heimasíðu Skagafjarðar og eru íbúar hvattir til að kynna sér það. Sviðstjóra veitu- og framkvæmdasviðs falið að ræða við Vegagerðina um sameiginleg svæði og umhirðu á þeim.
2.Fjárhagsáætlanir fjallskilasjóða 2025
Málsnúmer 2502049Vakta málsnúmer
Farið yfir fjárhagsáætlanir fjallskilasjóða fyrir árið 2025. LAndbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að úthluta 9.025.000 kr. samtals til fjallskiladeilda sem sótt hafa um fjárveitingu. Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa falið að tilkynna nefndunum um úthlutunina.
3.Samþykkt um hunda og kattahald
Málsnúmer 2411166Vakta málsnúmer
Beðið var um umsögn Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra um nýja samþykkt Skagafjarðar um hunda- og kattahald.
Heilbrigðiseftirlitið gerir smávægilegar athugasemdir sem snúa að mestu að orðalagi í reglugerðabreytingu.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að breyta samþykktinni til samræmis við athugasemdirnar og vísar samþykktinni með áorðnum breytingum til Byggðaráðs.

4.Leiga á Írafelli
Málsnúmer 2505083Vakta málsnúmer
Á fundi Landbúnaðar- og innviðanefndar þann 15. maí sl. var samþykkt að leita álits Fjallskiladeilda framhluta Skagafjarðar á þörfum þess að halda áfram leigu Írafells eða hvort segja skuli upp samningnum. Svör hafa nú borist bæði frá Fjallskiladeild Hofsafréttar og Fjallskiladeild framhluta Skagafjarðar og er ekki er talin þörf á leigu landsins.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að segja upp samningnum frá og með næstu áramótum. Sveitarstjóra er falið að hafa samband við ráðuneytið vegna þessa.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að segja upp samningnum frá og með næstu áramótum. Sveitarstjóra er falið að hafa samband við ráðuneytið vegna þessa.
Fundi slitið - kl. 10:50.