Fara í efni

Fræðslunefnd

53. fundur 26. nóvember 2026 kl. 16:15 - 17:42 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ey Harðardóttir formaður
  • Rósanna Valdimarsdóttir varam.
  • Elfa Björk Víðisdóttir aðalm.
  • Sigurlína Erla Magnúsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Kristján Bjarni Halldórsson skólastjóri grunnskóla
  • Steinunn Ragnheiður Arnljótsdóttir skólastjóri leikskóla
  • Laufey Guðmundsdóttir áheyrnarftr. grunnsk.kennara
  • Rakel Ýr Jakobsdóttir áheyrnarftr. leikskóla
  • Gunnhildur Gísladóttir áheyrnarftr. foreldra grunnsk.barna
Fundargerð ritaði: Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Innleiðing Heillaspora í skólaþjónustu Skagafjarðar

Málsnúmer 2512123Vakta málsnúmer

Aðalheiður Sigurðardóttir, tengslaráðgjafi á fjölskyldusviði, og Margrét Petra Ragnarsdóttir, leiðtogi farsældar og félagsmála, sátu fundinn undir þessum lið. Þær kynntu stöðu og framvindu innleiðingar Heillaspora í skólaþjónustu Skagafjarðar. Farið var yfir helstu þætti innleiðingarinnar og næstu skref. Fræðslunefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu.

2.Forgangur að leikskóla fyrir börn starfsmanna í framlínu heilbrigðisþjónustu

Málsnúmer 2610254Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið skoði möguleika á að veita börnum starfsfólks sem starfar í framlínu heilbrigðisþjónustu forgang við úthlutun leikskólaplássa. Í erindinu er vísað til áskorana við mönnun heilbrigðisþjónustu á svæðinu og þess að aðgengi að leikskólaplássi geti haft áhrif á möguleika starfsfólks til að hefja eða snúa aftur til starfa.

Fræðslunefnd tók erindið til umfjöllunar og tekur undir mikilvægi þess að tryggja góða mönnun heilbrigðisþjónustu á svæðinu. Samkvæmt gildandi reglum Skagafjarðar njóta börn með fötlun eða skilgreind þroskafrávik, börn sem búa við félagslega erfiðleika og börn starfsmanna leikskóla forgangs við úthlutun leikskólaplássa.

Fræðslunefnd telur ekki rétt að svo stöddu að víkka forgangsreglur þannig að þær nái til einstakra starfsstétta umfram það sem nú þegar er kveðið á um. Nefndin telur mikilvægt að gæta jafnræðis við úthlutun leikskólaplássa, enda gegna fjölmargar starfsstéttir á svæðinu mikilvægu hlutverki í grunnþjónustu samfélagsins. Breyting á forgangsreglum fyrir eina starfsstétt gæti því haft víðtækari áhrif og kallað á sambærilega meðferð annarra hópa. Að svo stöddu telur nefndin því ekki forsendur til að verða við erindinu er því hafnað samhljóða.

3.Staða á biðlistum í leikskólum Skagafjarðar

Málsnúmer 2611178Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá fulltrúa Framsóknarflokks þar sem óskað er eftir upplýsingum um stöðu biðlista í leikskólum Skagafjarðar, mönnun leikskólanna og fyrirhugaða aðlögun nýrra nemenda eftir áramót.

Fræðslunefnd fór yfir fyrirliggjandi upplýsingar frá leikskólastjórum. Staðan er mismunandi eftir leikskólum. Í Birkilundi er gert ráð fyrir aðlögun nýrra barna í áföngum frá janúar til mars, en frekari aðlögun er háð mönnun. Í Tröllaborg eru engin börn í reynd á biðlista miðað við óskir foreldra um upphaf leikskóladvalar. Í Ársölum eru tíu börn á biðlista sem náð hafa eins árs aldri um áramót og er möguleiki á aðlögun nýrra barna þar háður því að takist að ráða starfsfólk í laus störf.

Fræðslunefnd lýsir áhyggjum af því að skortur á starfsfólki takmarki möguleika leikskólanna til að taka inn börn af biðlistum. Nefndin leggur áherslu á að áfram verði unnið markvisst að ráðningum og að inntaka barna verði aukin eftir því sem mönnun leyfir.

4.Íslenska æskulýðsrannsóknin 2026

Málsnúmer 2611021Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026.

Niðurstöðurnar gefa að mörgu leyti jákvæða mynd af líðan og tengslum nemenda í skólum sveitarfélagsins, en jafnframt koma fram áskoranir sem mikilvægt er að fylgja eftir, meðal annars varðandi andlega líðan, tengsl nemenda við fullorðna og einelti. Nefndin leggur áherslu á að niðurstöðurnar verði nýttar markvisst í áframhaldandi þróunar- og forvarnarstarfi skólanna.

5.Fundargerðir skólaráðs Árskóla 2026-27

Málsnúmer 2611182Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar þrjár fundargerðir skólaráðs Árskóla frá 9. september 2026, 7. október 2026 og 11. nóvember 2026.

6.Fundargerðir skólaráðs Varmahlíðarskóla 2026-27

Málsnúmer 2611183Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð skólaráðs Varmahlíðarskóla frá 26. október 2026.

Fundi slitið - kl. 17:42.