Fyrir liggur erindi frá fulltrúa Framsóknarflokks þar sem óskað er eftir upplýsingum um stöðu biðlista í leikskólum Skagafjarðar, mönnun leikskólanna og fyrirhugaða aðlögun nýrra nemenda eftir áramót.
Fræðslunefnd fór yfir fyrirliggjandi upplýsingar frá leikskólastjórum. Staðan er mismunandi eftir leikskólum. Í Birkilundi er gert ráð fyrir aðlögun nýrra barna í áföngum frá janúar til mars, en frekari aðlögun er háð mönnun. Í Tröllaborg eru engin börn í reynd á biðlista miðað við óskir foreldra um upphaf leikskóladvalar. Í Ársölum eru tíu börn á biðlista sem náð hafa eins árs aldri um áramót og er möguleiki á aðlögun nýrra barna þar háður því að takist að ráða starfsfólk í laus störf.
Fræðslunefnd lýsir áhyggjum af því að skortur á starfsfólki takmarki möguleika leikskólanna til að taka inn börn af biðlistum. Nefndin leggur áherslu á að áfram verði unnið markvisst að ráðningum og að inntaka barna verði aukin eftir því sem mönnun leyfir.