Fara í efni

Forgangur að leikskóla fyrir börn starfsmanna í framlínu heilbrigðisþjónustu

Málsnúmer 2610254

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 53. fundur - 26.11.2026

Fyrir liggur erindi frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið skoði möguleika á að veita börnum starfsfólks sem starfar í framlínu heilbrigðisþjónustu forgang við úthlutun leikskólaplássa. Í erindinu er vísað til áskorana við mönnun heilbrigðisþjónustu á svæðinu og þess að aðgengi að leikskólaplássi geti haft áhrif á möguleika starfsfólks til að hefja eða snúa aftur til starfa.

Fræðslunefnd tók erindið til umfjöllunar og tekur undir mikilvægi þess að tryggja góða mönnun heilbrigðisþjónustu á svæðinu. Samkvæmt gildandi reglum Skagafjarðar njóta börn með fötlun eða skilgreind þroskafrávik, börn sem búa við félagslega erfiðleika og börn starfsmanna leikskóla forgangs við úthlutun leikskólaplássa.

Fræðslunefnd telur ekki rétt að svo stöddu að víkka forgangsreglur þannig að þær nái til einstakra starfsstétta umfram það sem nú þegar er kveðið á um. Nefndin telur mikilvægt að gæta jafnræðis við úthlutun leikskólaplássa, enda gegna fjölmargar starfsstéttir á svæðinu mikilvægu hlutverki í grunnþjónustu samfélagsins. Breyting á forgangsreglum fyrir eina starfsstétt gæti því haft víðtækari áhrif og kallað á sambærilega meðferð annarra hópa. Að svo stöddu telur nefndin því ekki forsendur til að verða við erindinu er því hafnað samhljóða.