Félagsmála- og tómstundanefnd
Dagskrá
1.Fjárhagsáætlun 2026 - málaflokkur 02_Félagsþjónusta
Málsnúmer 2506022Vakta málsnúmer
2.Fjárhagsáætlun 2026 - málaflokkur 06_Æskulýðs- og íþróttamál
Málsnúmer 2506023Vakta málsnúmer
Lögð fram rammaáætlun ársins 2026 í málaflokki 06. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Félagsmála- og tómstundanefnd gerir athugasemdir við rammaáætlunina og bendir á að fara þurfi yfir millifærslur milli málaflokka sem eru hækkaðar um 2,7 % og skoða hvort það sé ekki réttara að hækka þær um 3 % þar sem millifærslur snúast að mestu leyti um launakostnað sem gert er ráð fyrir að hækki að jafnaði um 3%. Ítrekað er að áætlunin mun taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnu starfsmanna. Nefndin samþykkir samhljóða að vísa málinu með athugasemdum til byggðaráðs.
3.Gjaldskrá Húss frítímans 2026
Málsnúmer 2508121Vakta málsnúmer
Lögð er fram tillaga að gjaldskrá Húss frítímans 2026. Tillagan felur í sér 2,7% hækkun að jafnaði. Leiga til íþróttafélaga vegna gistinga hækkar þó um 50%, úr kr. 1.000 í kr. 1.500, þar sem sá gjaldaliður hefur verið óbreyttur um árabil. Nefndin samþykkir gjaldskrána samhljóða fyrir sitt leyti og vísar til byggðarráðs.
4.Gjaldskrá íþróttamannvirkja 2026
Málsnúmer 2508122Vakta málsnúmer
Nefndin samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins og felur starfsfólki að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
5.Reglur vegna 25.gr. laga um málefni fatlaðs fólks, styrkir til náms, verkfæra og tækjakaupa
Málsnúmer 2409285Vakta málsnúmer
Fyrir fundinum lágu reglur Skagafjarðar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks, reglurnar grundvallast á 25. gr. laga laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Reglurnar eru einnig háðar samþykki sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga um sameiginlegt þjónustusvæði á Norðurlandi vestra um þjónustu við fatlað fólk. Aðildarsveitarfélögin hafa samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir reglurnar samhljóða fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu byggðarráðs
6.Fundir félagsmála- og tómstundanefndar á haustönn 2525
Málsnúmer 2508157Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga að fundartímum nefndarinnar fyrir haustönn 2025, sem eru eftirfarandi: 25. september, 30. október, 27. nóvember og 18. desember. Nefndin samþykkir tillöguna samhljóða með fyrirvara um breytingar.
7.Trúnaðarbók félagsmála- og tómstundanefndar 2025
Málsnúmer 2501432Vakta málsnúmer
Lagt fram eitt mál, fært í trúnaðarbók.
8.Innleiðing Signs of safety
Málsnúmer 2410196Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar bréf frá forstjóra Barna- og fjölskyldustofu um innleiðingu á nýju verklagi í barnaverndarþjónustu á landsvísu. Heildræn innleiðing Signs of Safety (SofS) í barnavernd á Íslandi er eitt af þeim verkefnum sem voru sett á oddinn í framkvæmdaáætlun ríkisins á sviði barnaverndar fyrir árin 2023 ? 2027. Verkefnið er einnig unnið í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga.
9.Fræðsla um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga
Málsnúmer 2507057Vakta málsnúmer
Lagður fram til kynningar tölvupóstur dags. 4. júlí 2025 frá Innviðaráðuneytinu þar sem það býður kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga til fræðslufundar um hinsegin málefni. Samtökin ´78 sjá um fræðsluna en markmiðið er auka þekkingu sveitarstjórnarfólks á réttindum og félagslegri stöðu hinsegin fólks. Fræðslan fer fram á fjarfundi í septembermánuði nk.
10.Námskeið vegna ungmennaráða og stofnun ungmennaráðs Nl.v.
Málsnúmer 2506227Vakta málsnúmer
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá SSNV dags. 27.6.2025 þar sem sveitarfélög á Norðurlandi vestra eru hvött til að eiga fulltrúa á námskeiði sem Samband Íslenskra sveitarfélaga býður sveitarfélögum á Norðurlandi vestra upp á þann 3. september nk. Námskeiðið er ætlað fólki sem starfar með eða í kringum ungmennaráð sveitarfélaga.
Fundi slitið - kl. 12:00.
Fulltrúi Vg og Óháðra óska bókað:
Það er dapurt að sjá að ekki er gert ráð fyrir fjármunum í heimsendan mat í dreifbýli Skagafjarðar í komandi fjárhagsáætlunar ramma en eins og segir í 40. gr laga félagsþjónustu sveitarfélaga 40/1991 er skylda sveitarfélaga að sinna þeirri þjónustu, en vonandi sjáum við samþykktan viðauka þegar aðrar leiðir verða reyndar en þær sem ekki heppnuðust á þessu ári.