Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Sala á félagsheimilinu Skagaseli
Málsnúmer 2502173Vakta málsnúmer
2.Mannauðsmælingar HR monitor
Málsnúmer 2502171Vakta málsnúmer
Hrefna Gerður Björnsdóttir, mannauðsstjóri Skagafjarðar, sat fundinn undir þessum lið. Hrefna Gerður kynnti niðurstöður HR monitor mannauðsmælinga sem sendar eru með reglulegu millibili til allra starfsmanna sveitarfélagsins.
3.Samningur við Björgunarsveitina Skagfirðingasveit 2025
Málsnúmer 2511185Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að þjónustusamningi milli Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar og sveitarfélagsins Skagafjarðar með gildistíma til loka árs 2028.
Byggðarráð samþykkir þjónustusamninginn samhljóða og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

4.ADHD samtökin - styrkbeiðni
Málsnúmer 2511215Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi, dags. 26. nóvember 2025, frá ADHD samtökunum þar sem þau óska eftir stuðningi að upphæð 100-500 þúsund til að auka fræðslu og þjónustu í sveitarfélaginu um ADHD og fyrir fólk með ADHD.
Fram kemur m.a. í greinargerð með erindinu að samtökin hafa reglulega fengið styrki frá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, Heilbrigðisráðuneytinu, ÖBÍ, Mennta- og barnamálaráðuneytinu og Reykjavíkurborg. Auk þess hafa samtökin unnið með fjölda sveitarfélaga og/eða stofnanna sveitarfélaga með einstök námskeið eða fræðslu.
Einnig að samtökin standa fyrir reglulegum spjallfundum í hverjum mánuði, tvisvar í mánuði í Reykjavík og nokkrum sinnum á ári á Akureyri, Austurlandi, Suðurlandi, Vesturlandi, Suðurnesjum, Vestfjörðum og í Vestmannaeyjum. Þar eru tekin fyrir ákveðin málefni er varða ADHD. Spjallfundirnir eru ókeypis og standa öllum til boða.
Byggðarráð telur sér ekki fært að verða við erindinu að þessu sinni.

Fundi slitið - kl. 14:28.
Byggðarráð þakkar gestunum fyrir góðan fund.