Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

63. fundur 22. maí 2025 kl. 15:00 - 15:45 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Kirkjutorg 1 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

Málsnúmer 2503330Vakta málsnúmer

Þórður Karl Gunnarsson tæknifræðingur, leggur fram f.h. Fjölbrautaskóla Norðurl. Vestra gögn er varða tilkynnta framkvæmd, einangrun og klæðningu íbúðarhúss sem stendur á lóðinni númer 1 við Kirkjutorg á Sauðárkróki. Framlögð gögn, uppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 75820202, númer A-100 og A-101, dagsettir 25.03.2025. Tilkynning og gögn eru í samræmi við gr. 2.3.5 og 2.3.6. í byggingarreglugerð 112/2012 um tilkynntar framkvæmdir.

2.Suðurbraut L146675, Hofsóskirkja - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi

Málsnúmer 2505175Vakta málsnúmer

Atli Gunnar Arnórsson byggingarverkfræðingur sækir f.h. Hofsósskirkju um leyfi til að gera breytingar er auðvelda aðgengi að kirkjunni, ramp og tröppur. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 6406-0000, númer A-101, og A-102, dagsettir 19. maí 2025. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

3.Borgarflöt 7 - Umsókn um breytingu á áður samþykktum aðaluppdráttum

Málsnúmer 2505181Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn þinglýstra eigenda fasteigna í fjöleignahúsi sem stendur á lóðinni númer 7 við Borgarflöt á Sauðárkróki, L229074 um að fá samþykkta uppfærða aðaluppdrætti, sem samþykktir eru af byggingarfulltrúa Skagafjarðar 27. október 2023. Uppdrættir eru gerðir af VHÁ verkfræðistofu ehf. Ívari Haukssyni, breyting dags. 8 apríl 2025.
Breytingin varðar víxlun fjögurra eininganúmera sem eru:
Eininganúmer 0106 verður 0110. (Fasteignanúmer F2533038 verður óbreytt.)
Eininganúmer 0107 verður 0109. (Fasteignanúmer F2533037 verður óbreytt.)
Eininganúmer 0109 verður 0107. (Fasteignanúmer F2533035 verður óbreytt.)
Eininganúmer 0110 verður 0106. (Fasteignanúmer F2533034 verður óbreytt.)
Ástæða umsóknar er að við gerð kaupsamninga víxlast eininganúmer, þ.e.a.s. þau eininganúmer sem áður er getið, þar sem ekki var stuðst við samþykkt gögn við gerð þeirra samninga.
Byggingafulltrúi samþykkir erindið en bendir jafnframt á þar sem gerðar eru breytingar á fjöleignarhúsi eða innbyrðis eignatilfærslur sem breyta eða raska eignaskiptayfirlýsingu og eða eignarhlutföllum skulu eigendur án ástæðulauss dráttar gera nýja eignaskiptayfirlýsingu og láta þinglýsa henni.

Fundi slitið - kl. 15:45.