Fara í efni

Úthlutun lóða í Varmahlíð, Sauðárkróki og Steinsstöðum - umsóknafrestur til 8. september 2022

17.08.2022

Skagafjörður auglýsir lausar lóðir til úthlutunar í Varmahlíð, Sauðárkróki og sumarhúsabyggð við Steinsstaði.

Á Sauðárkróki eru fjórar parhúsarlóðir til úthlutunar við Nestún. Til úthlutunar eru lóðir númer 16 (verður 16a og 16b), 18 (verður 18a og 18b), 22 (verður 22a og 22b) og 24 (verður 24a og 24b).

 

Í Varmahlíð liggur fyrir staðfest deiliskipulag við Birkimel með tíu einbýlishúsalóðum, tveimur raðhúsalóðum og þremur parhúsalóðum. Í fyrsta áfanga gatnagerðar við Birkimel verða auglýstar til úthlutunar einbýlishúsalóðirnar Birkimelur 25, 27 og 32, parhúsalóðirnar Birkimelur 13-15, 17-19 og 21-23 og raðhúsalóðina Birkimelur 34-40.

 

Á Steinsstöðum eru frístundalóðir nr. 4, 6, 7 og 8 auglýstar til úthlutunar.

 

Úthlutað er ofangreindum lóðum í samræmi við úthlutunarreglur Skagafjarðar og skulu umsóknir um lóðir vera í samræmi við þær. Hægt er að skoða úthlutunarreglur og fyrirkomulag umsókna með því að smella hér

Einungis er hægt að sækja um eina lóð og aðra tilgreinda lóð til vara. Dregið verður úr umsóknum verði fleiri en einn umsækjandi um lóð. Ef um er að ræða einstaklinga sem sækjast eftir parhúsalóð skulu þeir leggja inn sameiginlega umsókn um báðar íbúðir á lóðinni.

Umsóknarfrestur er til og með 8. september.

Hægt er að skoða nánar um lausar lóðir hér