Fara í efni

Auglýsing um skipulag - Sveinstún og Árkíll 2

19.01.2022
Afmörkun skipulagssvæðis við Sveinstún. Loftmynd: Loftmyndir ehf.

Sveinstún, Sauðárkróki - Skipulagslýsing

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á 419. fundi sínum þann 15. desember 2021 lýsingu fyrir gerð deiliskipulags fyrir Sveinstún á Sauðárkróki skv. 3. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið er við suðurmörk bæjarlandsins á milli Sæmundarhlíðar og Sauðárkróksbrautar og sunnan Skagfirðingabrautar. Gert er ráð fyrir að á umræddum reit verði mótuð ný og aðlaðandi íbúðarbyggð, m.a til að svara aukinni eftirspurn eftir lóðum. Skipulagslýsingin er auglýst frá 19. janúar til og með 10. febrúar 2022. Skipulagslýsingin mun liggja frammi til kynningar í Ráðhúsi sveitarfélagsins, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15 og hér á heimasíðu Sveitarfélagsins. Ábendingar varðandi tillögugerðina skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eða afgreiðslu ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is í síðasta lagi 10. febrúar 2022.

Árkíll 2, Sauðárkróki – Tillaga að deiliskipulagi

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á 420. fundi sínum þann 12. janúar 2022 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Árkíl 2 skv. 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið markast af lóðarmörkum Árkíls 2 við Borgargerði. Deiliskipulagstillagan felur í sér stækkun á byggingarreit vegna fyrirhugaðrar stækkunar á leikskólanum. Skipulagstillagan er auglýst frá 19. janúar til og með 03. mars 2022. Skipulagstillagan mun liggja frammi til kynningar í Ráðhúsi sveitarfélagsins, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15 og hér á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Athugasemdir og ábendingar varðandi skipulagstillöguna skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eða afgreiðslu ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is í síðasta lagi 03. mars 2022.

Sveinstún á Sauðárkróki - Skipulagslýsing

Árkíll 2 á Sauðárkróki - Tillaga að deiliskipulagi

 

Skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Skagafjarðar