Fara í efni

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar

228. fundur 20. maí 2008 kl. 16:00 - 19:00 í Safnahúsinu við Faxatorg
Fundargerð ritaði: Engilráð M. Sigurðardóttir, skjalastjóri
Dagskrá

1.

Málsnúmer Vakta málsnúmer

1.1.Tilaga að styrkjum til tómstundamála

Málsnúmer 0804023Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 124. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

1.2.Skátafélagið Eilífsbúar - Styrkumsókn 2008

Málsnúmer 0805012Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 124. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

1.3.Styrkur til leikjanámskeiðs í Fljótum

Málsnúmer 0805002Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 124. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

1.4.Foreldraráð Varmahlíðarskóla - styrkumsókn 2008

Málsnúmer 0803090Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 124. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

1.5.Skotfélagið Ósmann - styrkumsókn 2008

Málsnúmer 0803089Vakta málsnúmer

Afgreiðslu þessa liðar var frestað á 124. fundi félags- og tómstundanefndar.

1.6.Endurskoðun samninga við Flugu hf

Málsnúmer 0801081Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 124. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

1.7.Tillaga að útfærslu á sundkortasölu til almennra fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins

Málsnúmer 0805006Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 124. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

2.Menningar- og kynningarnefnd - 31

Málsnúmer 0805003FVakta málsnúmer

Fundargerð 31. fundar menningar- og kynningarnefndar lögð fram til afgreiðslu eins og einstök erindi bera með sér.
Hrund Pétursdóttir kynnti fundargerð. Til máls tók Bjarni Jónsson, fleiri ekki.

2.1.Leiga á Skagaseli

Málsnúmer 0801095Vakta málsnúmer

Leigusamningur milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Sigrúnar Mörtu Gunnarsdóttur f.hönd hlutafélagsins Skefils ehf, um félagsheimilið Skagasel, borinn sérstaklega upp á 228. fundi sveitarstjórnar og samþykktur með níu atkvæðum.

2.2.Styrkbeiðni vegna frumflutnings tónverka

Málsnúmer 0801011Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 31. fundar menningar- og kynningarnefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

2.3.Skipan í hússjórn Bifrastar

Málsnúmer 0805014Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 31. fundar menningar- og kynningarnefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

2.4.Fjármál menningarliða - fjögurra mánaða uppgjör

Málsnúmer 0805013Vakta málsnúmer

Lagt fram á 228. fundi sveitarstjórnar.

2.5.Afmæli Sveitarfélagsins Skagafjörður

Málsnúmer 0805015Vakta málsnúmer

Lagt fram á 228. fundi sveitarstjórnar.

2.6.Kynningarmál - maímánuður

Málsnúmer 0805016Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 31. fundar menningar- og kynningarnefndar staðfest á 228 . fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

2.7.Árskóli - menningarhús

Málsnúmer 0804018Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar á 228. fundi sveitarstjórnar.

2.8.Fundargerðir Menningarráðs Nl.v.

Málsnúmer 0803092Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar á 228. fundi sveitarstjórnar.

3.Skipulags- og bygginganefnd - 146

Málsnúmer 0805004FVakta málsnúmer

Fundargerð 146. fundar skipulags- og byggingarnefndar lögð fram til afgreiðslu eins og einstök erindi bera með sér.
Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð. Til máls tóku Bjarni Jónsson, Páll Dagbjartsson, Gunnar Bragi Sveinsson, fleiri ekki.

3.1.Hólar í Hjaltadal / Fosshótel - Umsögn um rekstrarleyfi.

Málsnúmer 0805017Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 146. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

3.2.Vindheimamelar - Umsögn um rekstrarleyfi.

Málsnúmer 0805018Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 146. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

3.3.Stapi 146224 - umsókn um niðurrif húss.

Málsnúmer 0805019Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 146. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

3.4.Umsókn um svæði undir reiðhjólabraut

Málsnúmer 0805025Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 146. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

4.Umhverfis- og samgöngunefnd - 28

Málsnúmer 0804012FVakta málsnúmer

Fundargerð 28. fundar umhverfis- og samgöngunefndar lögð fram til afgreiðslu eins og einstök erindi bera með sér.
Jón Sigurðsson kynnti fundargerð. Til máls tóku Bjarni Jónsson, sem lagði fram tillögu (sjá lið 9.1.), Páll Dagbjartsson, Gunnar Bragi Sveinsson, fleiri ekki.

4.1.Úttekt á leikvöllum á Sauðárkróki

Málsnúmer 0804111Vakta málsnúmer

Bjarni Jónsson lagði fram tillögu:
?Gerð verði sambærileg úttekt á leikvöllum annarsstaðar í héraðinu með tilliti til þess hvar úrbóta kunni að vera þörf.?
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með níu atkvæðum.

Afgreiðsla 28. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

4.2.Borgargerði á Sauðárkróki. Útboð - jarðvegsskipti 2008 - Umfjöllun um tilboð

Málsnúmer 0804112Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 28. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

4.3.Skagafjarðarhafnir - Hofsósshöfn viðhald 2008

Málsnúmer 0804113Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 28. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

4.4.Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Skýrsla nr. C08:03 Fjárhagsleg staða hafna. Apríl 2008

Málsnúmer 0804114Vakta málsnúmer

Lagt fram á 228. fundi sveitarstjórnar.

4.5.Sorphirða í Skagafirði - sorpgámar

Málsnúmer 0804115Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 28. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

4.6.Hunda og kattahald í þéttbýli - Sveitarfélagið Skagafjörður

Málsnúmer 0804116Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 28. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

4.7.Opin svæði, ýmis vorverk

Málsnúmer 0804117Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 28. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

5.Ársreikningur 2007

Málsnúmer 0804089Vakta málsnúmer

Síðari umræða um ársreikning Sveitarfélagsins Skagafjarðar og stofnana fyrir árið 2007

Margeir Friðriksson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, staðgengill sveitarstjóra, flutti greinargerð sveitarstjóra, Guðmundar Guðlaugssonar, varðandi reikninginn.

Engar breytingar hafa orðið frá fyrri umræðu.

Niðurstöðutölur rekstrarreiknings ársins 2007 eru þessar;
Rekstrartekjur fyrir A- og B- hluta sveitarsjóðs 2.668,0 mkr, þar af námu rekstrartekjur A-hluta 2.348,1 mkr. Rekstrargjöld A-hluta sveitarsjóðs án fjármunatekna og fjármagnsgjalda voru 2.114,8 mkr., en 2.349,6 mkr. í A og B-hluta. Nettó fjármagnsliðir til gjalda hjá A-hluta sveitarsjóðs eru 71,3 mkr. og samantekið fyrir A og B hluta 171,6 mkr.
Rekstrarniðurstaða er jákvæð í A-hluta að upphæð 162,1 mkr. og jákvæð í samanteknum A og B hluta að upphæð 146,7 mkr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2007 nam 1.193,0 mkr. samkvæmt efnahagsreikningi en þar af nam eigið fé A-hluta 916,1 mkr. Langtímaskuldir A-hluta eru 1.007,9 mkr. og A og B-hluta í heild 2.206,0 mkr.
Lífeyrisskuldbindingar eru í heild 603,9 mkr. og skammtímaskuldir 653,2 mkr.

Leggur sveitarstjóri til að ársreikningur 2007 verði samþykktur.

Til máls tók Páll Dagbjartsson.

Þá Bjarni Jónsson og leggur fram bókun:
?Ársreikningur sveitarfélagsins ber það með sér að skatttekjur sveitarfélagsins urðu meiri en ráð var fyrir gert og háar fjárhæðir, sem sömuleiðis var ekki gert ráð fyrir, bárust úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga m.a vegna breyttra vinnureglna við úthlutun.
Útgjaldavandi sveitarfélagsins, sem taka þarf á, er hinsvegar enn til staðar og ekki er hægt að byggja rekstur sveitarfélagsins á væntingum um stórauknar tekjur.?

Gunnar Bragi Sveinsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram bókun meirihlutans:

?Í fyrsta sinn í mörg ár er jákvæð niðurstaða á rekstri Sveitarfélagsins Skagafjarðar og stofnana þess. Rekstrarafgangur varð á rekstri samstæðunnar í heild. Rekstrarniðurstaða A hluta sveitarsjóðs var jákvæð um 162 millj. króna og rekstrarniðurstaða samstæðunnar í heild var jákvæð um tæpar 147 millj. króna. Jákvæður viðsnúningur í rekstri milli ára nemur 211 millj. króna. Framlag Jöfnunarsjóðs hækkar verulega en þar er m.a. um að ræða leiðréttingu á framlagi til fjölkjarnasveitarfélaga.
Annað er skýrir þennan viðsnúning er hækkun útsvarstekna, fasteignaskattstekna og hlutfallsleg lækkun útgjalda. Hækkun þessara tekna ber vott um áræðni og grósku í samfélaginu sem er í takt við markmið meirihlutans, þ.e. að auka tekjur sveitarfélagsins og ná þannig inn fjármunum til nauðsynlegra verkefna í stað þess að skerða þjónustu.
Aðrir þættir í rekstri sveitarfélagsins eru í meginatriðum mjög jákvæðir og sýna lykiltölur glögglega þá breytingu sem orðin er hvað rekstur og efnahag sveitarfélagsins og stofnana þess varðar. Veltufé frá rekstri var á síðasta ári 452 milljónir króna, skatttekjur hækka um 19% milli ára, launakostnaður í þús. kr. pr. íbúa hækkar um 8% á meðan annar rekstrarkostnaður hækkar um 11%. Eignir aukast umtalsvert eða um 22% á meðan skuldir í þús. kr. pr. íbúa hækka um 4%. Hækkun eigin fjár er 88% milli ára og eiginfjárhlutfall fer úr hættumörkum, úr 0,20 í 0,31 og er þar með náð eiginfjárhlutfalli því sem var árið 2003 en taprekstur undanfarin ár hefur gengið mjög á eigið fé samstæðunnar.

Það er því ljóst að styrk stefna í málefnum sveitarfélagsins og gott samstarf við starfsmenn skilar góðum árangri. Framundan eru ár framþróunar og framkvæmda og því mikilvægt að halda áfram á sömu braut.
Meirihluti Framsóknarflokks og Samfylkingar þakkar sveitarstjóra, fjármálastjóra og starfsmönnum öllum fyrir góðan árangur í rekstri sveitarfélagsins.?

Ársreikningur 2007 fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð og stofnanir þess borinn undir atkvæði og samþykktur með níu atkvæðum.

6.Fundargerð Skagafjarðarveitna

Málsnúmer 0802100Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar á 228. fundi sveitarstjórnar.

7.Stjórnarfundargerð SÍS

Málsnúmer 0803035Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar á 228. fundi sveitarstjórnar.

8.Byggðarráð Skagafjarðar - 432

Málsnúmer 0804018FVakta málsnúmer

Fundargerð 432. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu eins og einstök erindi bera með sér.
Gunnar Bragi Sveinsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.

8.1.Samþykktir sveitarfélagsins.

Málsnúmer 0804096Vakta málsnúmer

Afgreiðslu þessa liðar var frestað á 432. fundi byggðarráðs.

8.2.Borgarmýri 5a, endurupptaka fasteignamats

Málsnúmer 0804073Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 432. fundar byggðarráðs staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

8.3.Borgarmýri 5, endurupptaka fasteignamats

Málsnúmer 0804072Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 432. fundar byggðarráðs staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

8.4.Skólagata 1, Hofsósi

Málsnúmer 0804054Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 432. fundar byggðarráðs staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

8.5.Söngskóli Alexöndru

Málsnúmer 0803042Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 432. fundar byggðarráðs staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með fimm atkvæðum.
Páll Dagbjartsson óskar bókað að fulltrúar Sjálfstæðisflokks greiði atkvæði gegn þessum lið og vísar í bókun í fundargerð byggðarráðs nr. 432, 30.04.08.
("Afstaða mín byggist á því grundvallaratriði að sveitarfélagið eigi ekki að styrkja einkakennslu á tónlistarsviði á meðan það rekur tónlistarskóla.")
Bjarni Jónsson VG óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðslu þessa liðar.

8.6.Aðalfundarboð Flugu hf

Málsnúmer 0804119Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 432. fundar byggðarráðs staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

8.7.Umdæmisþing Kiwanis á Íslandi 2008

Málsnúmer 0804120Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 432. fundar byggðarráðs staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

8.8.Þjóðlendukröfur

Málsnúmer 0801016Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar á 228. fundi sveitarstjórnar.

9.Byggðarráð Skagafjarðar - 433

Málsnúmer 0805002FVakta málsnúmer

Fundargerð 433. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu eins og einstök erindi bera með sér.
Gunnar Bragi Sveinsson kynnti fundargerð.
Til máls tóku Páll Dagbjartsson (sjá tillögu í lið 2.6.), Bjarni Jónsson (sjá tillögu í lið 2.6.) Gunnar Bragi Sveinsson, Bjarni Jónsson, Jón Sigurðsson, Gunnar Bragi Sveinsson (sjá bókun í lið 2.6.), Páll Dagbjartsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir (með leyfi varaforseta), Bjarni Jónsson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir (með leyfi varaforseta), fleiri ekki.

9.1.Endurskoðun samninga við Flugu hf

Málsnúmer 0801081Vakta málsnúmer

Endurskoðaður samningur við Flugu hf borinn upp sérstaklega á 228. fundi sveitarstjórnar og afgreiðsla 433. fundar byggðarráðs samþykkt með níu atkvæðum.

9.2.Fasteignagjöld Flugu hf 2008

Málsnúmer 0802052Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 433. fundar byggðarráðs staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

9.3.Samþykkt um stjórn og fundarsköp - breytingar

Málsnúmer 0802094Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 433. fundar byggðarráðs 08.05.2008:
Byggðarráð samþykkir að vísa eftirfarandi breytingu á 42. grein, 3. mgr. í Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins til sveitarstjórnar:
Í stað orðsins "fulltrúa" komi "kjörinna fulltrúa".
Framangreind breyting borin upp sérstaklega á 228. fundi sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

9.4.Gjaldskrá vegna refa- og minkaveiða

Málsnúmer 0805001Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 433. fundar byggðarráðs staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

9.5.Árskóli - menningarhús

Málsnúmer 0804018Vakta málsnúmer

Páll Dagbjartsson lagði fram tillögu:

?Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru andvígir þeirri hugmynd að tengja fyrirhugað menningarhús á Sauðárkróki við byggingu Árskóla með þeim hætti sem meirihluti sveitarstjórnar hefur nú kynnt. Ástæður þess eru tilgreindar í greinargerð hér á eftir.
Þess í stað setjum við fram svofellda tillögu:

Sveitarstjórn samþykkir að síðar á þessu ári verði hafist handa við hönnun á viðbyggingu við Árskóla. Miðað verði við að Árskóli geti tekið við allt að 550 nemendum og tónlistarskólinn flytji þangað starfsemi sína. Í hönnuninni verði stuðst við húsnæðisnorm sem í gildi eru og þar með gert ráð fyrir fjölnota samkomusal. Áfram verði stefnt að byggingu menningarhúss við Faxatorg sem m.a. hýsi safnastarfsemina.

Greinargerð:
? Ekki er fyrir hendi rými á skólalóð Árskóla fyrir þá stórbyggingu sem meirihluti sveitarstjórnar hefur hug á að byggja.
? Ekki verður nægilegt pláss á skólalóðinni fyrir leiksvæði, leikvelli, boltavelli og annað athafnarými fyrir nemendur. Núverandi skólalóð Árskóla getur vart talist forsvaranleg og samkvæmt framangreindri hugmynd verða afar takmarkaðir möguleikar til að bæta úr því.
? Vandræði verða með umferðarmál og bílastæði.
? Samnýtingaráhrifin, sem mikið er talað um, eru sáralítil og einungis tengd fjölnota samkomusal .
? Safnastarfsemin á ekkert erindi inn á skólalóð grunnskóla, - engin samnýtingaráhrif eru fólgin í þeirri skipan.
? Það er löngu vitað að samrekstur skólabókasafna og almenningsbókasafna fer ekki saman. Hefur hvergi gefist vel þar sem það hefur verið reynt.
? Ef taka skal syðsta hluta íþróttasvæðisins undir þessar byggingar þarf að finna og útbúa annað svæði þess í stað og kostnað af því þarf að reikna með í heildardæmið. Og hvar á að koma fyrir boltavöllum og öðrum leikvöllum fyrir nemendur?
? Fjárhagshliðinni hefur lítill gaumur verið gefinn. Einungis talað um að leita leiða til fjármögnunar. Sveitarfélagið getur ekki staðið undir fjármagnskostnaði og afborgunum af 1,5 milljörðum króna til viðbótar þeim fjárfestingum sem þegar hefur verið ákveðið að ráðast í. Sá kostnaður gæti numið hálfum milljarði. Af þessum sökum er óásættanlegt að vera með hugmyndir af þessum toga í einhverri flýtimeðferð eins og meirihlutinn hefur talað fyrir.
? Allar samanburðartölur sem meirihlutinn hefur haldið á lofti eru mjög lítið ígrundaðar. T.d. er fráleitt að taka 10 ? 15 ára hugmynd um viðbyggingu Árskóla, sem allir hafa verið sammála um að var ekki nothæf, og bera beint saman við núverandi hugmyndir. 170 milljón króna endurbótakostnaður við Safnahúsið ar alveg órökstuddur.
? Við eigum að sýna starfsemi grunnskólans og tónlistarskólans það mikla virðingu að taka ekki áhættu af þessum toga með því að flækja starfsemi þeirra saman við óskyldan rekstur.
? Við eigum að gera Skagfirskri menningu það hátt undir höfði að reist verði sjálfstætt Menningarhús eitt og sér, án tengsla við aðra óskylda starfsemi og standa þar að með myndarskap. Þegar til lengri tíma er litið munu komandi kynslóðir þakka slíka framsýni.
? Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórn eru reiðubúnir til að taka þátt í því að þetta mál verði tekið upp frá grunni og skoðað frá byrjunarreit.?

Bjarni Jónsson lagði fram tillögu:
?Skipaður verði starfshópur fulltrúa allra flokka sem aðild eiga að sveitarstjórn, sem fari yfir stöðu og forgangsröðun framkvæmda sem ákveðið hefur verið að ráðast í eða eru til skoðunar hjá sveitarfélaginu.?

Gunnar Bragi Sveinsson lagði fram bókun fulltrúa Framsóknarflokks og Samfylkingar:
?Þegar ríkisstjórnin ákvað 1995 að styrkja byggingu menningarhúss á Sauðárkróki kom upp sú hugmynd að byggt yrði menningarhús á hafnarsvæðinu á Sauðárkróki. Sú hugmynd var bæði sett fram í gamni og alvöru. Árið 2004 ákvað sveitarstjórn að óska eftir því að ákvörðun um menningarhús á Sauðárkróki yrði útfærð á þann hátt að 100 mkr. yrðu settar í endurbyggingu félagsheimilisins Miðgarðs með áherslu á tónlistarflutning.

Á sama tíma komu fram hugmyndir um að byggja við Safnahúsið á Sauðárkróki og þar yrði lögð áhersla á listir, fræðastarf, bókasafn, félagsstarf o.þ.h. Í þeim hugmyndum var ekki horft til sviðslista né kvikmyndasýninga. Skv. samningi við Menntamálaráðuneytið var gert ráð fyrir 60 mkr. framlagi frá ríkinu til endurbóta á Miðgarði og tæplega 220 mkr. framlagi til menningarhúss á Sauðárkróki eða samtals um 280 mkr. Til margra ára hefur legið fyrir brýn þörf á að byggja við Árskóla, þar vantar t.d. kennslustofur, fundar- og samkomusal, ásamt félagsaðstöðu. Núverandi meirihluti ákvað að setja upp framtíðar mötuneyti fyrir skólann og hefur það nú þegar gefið góða raun.

Fyrir nokkrum árum var unnin tillaga að viðbyggingu við skólann sem m.a. gerði ráð fyrir byggingu hátíðarsalar og kennsluálmu.Um svipað leyti sem hafist var handa við hönnun Miðgarðs kom fram hugmynd um hvort skynsamlegt gæti verið að byggja nýtt menningarhús norðan Árskóla og ná fram samnýtingu á húsnæði menningarhússins og skólabyggingunni. Hugmyndin var borin undir forsvarsmenn Árskóla, Tónlistarskólans, Héraðsskjalasafnsins, Héraðsbókasafnsins og Byggðasafnsins, sem töldu skynsamlegt að skoða það vandlega. Hönnuðir að Árskóla voru því fengnir til að koma með grófa hugmynd að því með hvaða hætti þessi starfsemi gæti farið saman. Forsvarsmenn áðurnefndra stofnana fóru í þarfagreiningu um rými og starfsaðstöðu og er núverandi hugmyndin unnin útfrá þeim. Talið er mikilvægt að gera ráð fyrir fjölnotasal í menningarhúsinu sem nýst getur sem leikhús, kvikmyndasalur, kennslusalur, funda og ráðstefnusalur. Bylting verður í aðstöðu Tónlistarskóla Skagafjaðar en gert er ráð fyrir honum í húsinu en með því verður búið að ná starfsemi Árskóla og tónlistarskólans undir eitt þak. Forsvarsmenn áðurnefndra stofnana hafa lýst sig fylgjandi því að hugmyndin verði að veruleika.

Umferðarmál eru ætíð áhyggjuefni við skólabyggingar. Meirihlutinn ákvað að hefja framkvæmdir við nýjan veg úr Hlíðarhverfi sem vonast er til að dragi úr umferð bifreiða sem ekki eiga erindi í skólahverfið. Umferð þeirra sem leið eiga í skólahverfið mun lítið aukast umfram það sem er í dag. Þunginn í starfsemi menningarhúss er á öðrum tímum en skólatíma þannig að ætla má að umferð dreifist yfir daginn. Sérstök áhersla verður að leggja á að tryggja öryggi nemenda við útfærslu á endanlegri hönnun.

Rétt er að taka fram að bygging menningarhúss norðan viðbyggingar Árskóla gengur verulega á æfingasvæði íþróttavallarins. Í stað þess æfingasvæðis sem víkur þarf að gera ráð fyrir nýju svæði í tengslum við íþróttavöllinn sem nýtist til æfinga, knattspyrnumóta o.þ.h. Benda má á kosti þess að nýta hluta af nöfunum í þetta. Þá hafa komið fram hugmyndir um byggingu knattspyrnhúss í tengslum við íþróttsvæðið. Hugmyndir um menningarhús á þessum stað hafa verið kynntar aðalstjórn UMFT og er fullur vilji til að horfa til framtíðar og leysa í sameiningu þau mál sem þegar liggja fyrir og kunna að koma upp.

Fyrir liggur að kosta þarf miklu til viðhalds á því húsnæði sem nú hýsir áðurnefnt menningarstarf. Áætlað að það kosti um 170 mkr. að gera viðbætur á Safnahúsinu og gera það aðgengilegt. Ástand Bifrastar þarf ekki að tíunda, það þekkja flestir. Barnaskólahúsið við Freyjugötu þarfnast verulegs viðhalds auk þess sem verulegt hagræði hlýst af því að vera með Árskóla undir einu þaki með tónlistarskólanum. Ljóst er að viðbygging Árskóla og bygging menningarhúss mun kosta miklar fjárhæðir og því mikilvægt að huga að fjármögnun samhliða frekari hönnun og umræðum. Bættur rekstur sveitarfélagsins gefur vísbendingar um að farsæl lending náist.

Eitt af stefnumálum Framsóknarflokks og Samfylkingar er að hefja framkvæmdir við byggingu Árskóla á kjörtímabilinu. Það, að byggja menningarhús í nálægð við skólann, breytir þar engu um en saman nýtast byggingarnar betur þeirri starfsemi sem þeim er ætlað að hýsa. Framkvæmdin styrkir enn frekar stoðir sveitarfélagsins í samkeppninni um fjölgun íbúa.?

Tillaga Páls Dagbjartssonar borin undir atkvæði og felld með fimm atkv. gegn fjórum.

Tillaga Bjarna Jónssonar borin undir atkvæði og felld með fimm atkv. gegn þrem.

Bjarni Jónsson leggur fram bókun:
?Það er furðulegt að meirihlutinn skuli hafna samráði innan sveitarstjórnar um slík hagsmunamál eins og framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins.?

Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir leggur fram bókun meirihlutans:
?Sveitarfélagið hefur á að skipa byggðarráði sem fer með framkvæmda- og fjármálastjórn ásamt sveitarstjóra. Ekki er því þörf á því að skipa starfshóp eins og VG leggja til.?

Afgreiðsla 433. fundar byggðarráðs staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með fimm atkvæðum gegn fjórum.

Bjarni Jónsson VG greiðir atkvæði gegn þessum lið og gerir grein fyrir atkvæði sínu með bókun:
?Tillöguflutningur meirihlutans um að byggja menningarhús yfir íþróttavöllinn við hlið Árskóla er illa grundaður og innistæðulaus. Það lýsir miklu óraunsæi að taka ákvarðanir um framkvæmdir upp á einn og hálfan milljarð á meðan margar brýnar framkvæmdir bíða í sveitarfélaginu. Slík samþykkt sem sveitarfélagið hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til að standa við á næstunni, á eftir að verða til þess að tefja framkvæmdir við nauðsynlega viðbyggingu við Árskóla sem einnig hýsi Tónlistarskólann. Þá væri einnig nær að sjá til lands varðandi aðrar framkvæmdir sem ákveðið hefur verið að ráðast í og dregist hafa úr hófi fram eins og leikskólabygging sem enn bólar ekkert á áður en ganað er áfram af slíku fyrirhyggjuleysi. Hvað líður Húsi Frítímans sem átti að vera tilbúið í október á síðasta ári og enginn veit hvað muni kosta áður en upp er staðið. Uppbygging á Menningarhúsinu Miðgarði hefur tafist um fleiri misseri fyrir kostnaðarsaman hringlandahátt meirihlutans.Ýmis fleiri stór verkefni bíða. Stefnt hefur verið að byggingu menningarhúss við Faxatorg sem hýsi safnastarfið ásamt annarri starfsemi og var sá undirbúningur í góðum farvegi. Nái hugmyndir meirihlutans um byggingu menningarhúss ofan í íþróttavöllinn fram að ganga illi það ennfremur miklum skaða á íþróttasvæðinu og gildir þá einu umboðslaust gaspur formanns byggðaráðs í fjölmiðlum um byggingu knattspyrnuhallar sem aldrei hefur komið til tals í sveitarstjórn. Meirihlutanum væri nær að láta verkin tala en halda áfram að láta sig dreyma við teikniborðið.?

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks greiða atkvæði gegn þessum lið og vísa til tillögu og greinargerðar hér að framan.

9.6.Ársfundur FSA 2008

Málsnúmer 0805009Vakta málsnúmer

Lagt fram á 228. fundi sveitarstjórnar.

10.Byggðarráð Skagafjarðar - 434

Málsnúmer 0805007FVakta málsnúmer

Fundargerð 434. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu eins og einstök erindi bera með sér. Gunnar Bragi Sveinsson kynnti fundargerð.
Til máls tók Bjarni Jónsson, fleiri ekki.

10.1.Styrkbeiðni v. kaupa á bifreið f. Sambýli fatlaðra

Málsnúmer 0804081Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 434. fundar byggðarráðs staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

10.2.Heilsustefna Íslendinga

Málsnúmer 0805035Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 434. fundar byggðarráðs staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

10.3.Póstafagreiðsla í Varmahlíð

Málsnúmer 0805031Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 434. fundar byggðarráðs staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

10.4.Dagur barnsins 25. maí 2008

Málsnúmer 0805023Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 434. fundar byggðarráðs staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

10.5.Ungt fólk 2007 Framhaldsskólanemar, rannsókn

Málsnúmer 0805011Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 434. fundar byggðarráðs staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

10.6.Kynning á starfsemi Dögunar ehf

Málsnúmer 0805039Vakta málsnúmer

Lagt fram á 228. fundi sveitarstjórnar.

11.Atvinnu- og ferðamálanefnd - 00

Málsnúmer 0805011FVakta málsnúmer

Fundargerð atvinnu- og ferðamálanefndar frá 22.04.2008 lögð fram til afgreiðslu eins og einstök erindi bera með sér.
Gunnar Bragi Sveinsson kynnir fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.

11.1.ORF-Líftækni / Sveitarfél. Skagafj. - samkomulag um samstarf

Málsnúmer 0805037Vakta málsnúmer

Afgreiðsla atvinnu- og ferðamálanefndar frá 22.04.2008 staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

11.2.Undirbúningsfélag um koltrefjaverksmiðju

Málsnúmer 0804020Vakta málsnúmer

Afgreiðsla atvinnu- og ferðamálanefndar frá 22.04.2008 staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

12.Atvinnu- og ferðamálanefnd - 00

Málsnúmer 0805005FVakta málsnúmer

Fundargerð atvinnu- og ferðamálanefndar frá 08.05.2008 lögð fram til afgreiðslu eins og einstök erindi bera með sér.
Gunnar Bragi Sveinsson kynnti fundargerð. Til máls tóku Bjarni Jónsson, Gunnar Bragi Sveinsson, fleiri ekki.

12.1.Uppbygging að Reykjum, Reykjaströnd - styrkumsókn

Málsnúmer 0803064Vakta málsnúmer

Afgreiðsla atvinnu- og ferðamálanefndar frá 08.05.2008 staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

12.2.Jónsmessuhátíð Hofsósi 2008

Málsnúmer 0802087Vakta málsnúmer

Afgreiðsla atvinnu- og ferðamálanefndar frá 08.05.2008 staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

12.3.Tjaldsvæðið í Varmahlíð - rekstur

Málsnúmer 0801029Vakta málsnúmer

Afgreiðsla atvinnu- og ferðamálanefndar frá 08.05.2008 staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

12.4.Matarkistan Skagafjörður - umsókn um styrk vegna mótvægisaðgerða

Málsnúmer 0805033Vakta málsnúmer

Afgreiðsla atvinnu- og ferðamálanefndar frá 08.05.2008 staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

12.5.Kynningarefni fyrir ferðamenn

Málsnúmer 0805032Vakta málsnúmer

Afgreiðsla atvinnu- og ferðamálanefndar frá 08.05.2008 staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

12.6.Staða fjármála á liðum Atvinnu- og ferðamálanefndar 1. maí 2008

Málsnúmer 0805034Vakta málsnúmer

Lagt fram á 228. fundi sveitarstjórnar.

13.Félags- og tómstundanefnd - 124

Málsnúmer 0805001FVakta málsnúmer

Fundargerð 124. fundar félags- og tómstundanefndar lögð fram til afgreiðslu eins og einstök erindi bera með sér.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir kynnti fundargerð. Til máls tóku Bjarni Jónsson, Gunnar Bragi Sveinsson, fleiri ekki.

13.1.Styrkbeiðni v. kaupa á bifreið f. Sambýli fatlaðra

Málsnúmer 0804081Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 124. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

13.2.Beiðni um bætta aðstöðu dagforeldra

Málsnúmer 0805005Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 124. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

13.3.Starfsendurhæfing

Málsnúmer 0802014Vakta málsnúmer

Lagt fram á 228. fundi sveitarstjórnar.

13.4.Styrkveiting til íþróttamála, tillaga frá UMSS

Málsnúmer 0804022Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 124. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

13.5.Umsókn um styrk til Skákfélags Sauðárkróks

Málsnúmer 0805003Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 124. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

13.6.Knattspyrnudeild Hvatar - styrkbeiðni

Málsnúmer 0804110Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 124. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 228. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 19:00.