Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd

42. fundur 05. febrúar 2026 kl. 10:00 - 11:40 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Hildur Þóra Magnúsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir ritari
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Sigurður Arnar Friðriksson forstöðumaður framkvæmda
Fundargerð ritaði: Guðný Axelsdóttir ritari
Dagskrá

1.Heitavatnsblæðingar í Skagafirði

Málsnúmer 2602007Vakta málsnúmer

Á fundinn komu Alessandra Schnider og Ottó Elíasson, frá EIMI, og kynntu gagnvirka skráningu heitavatnsblæðinga í Skagafirði og staðsetningu þeirra ásamt hugmyndum um nýtingu orku sem tapast vegna heitavatnsblæðinga.
Landbúnaðar- og innviðanefnd þakkar gestunum fyrir góða kynningu og bendir áhugasömum um nýtingu affallsvatnsins á að hafa samband við Hjörvar Halldórsson sviðstjóra veitu- og framkvæmdasviðs eða fulltrúa EIMS.

2.Tilraunaverkefni - Lífrænt sorp meðhöndlun og vinnsla

Málsnúmer 2602009Vakta málsnúmer

Hjörvar Halldórsson og Sigurður Arnar Friðriksson fóru yfir fundi sem þeir áttu með fulltrúum Múlaþings annars vegar og Þingeyjasveitar hins vegar um meðhöndlun lífræns sorps. Jafnframt voru ræddar hugmyndir um prófanir á jarðgerðartækjum og útfærslu þeirra prófana með það að framtíðarmarkmiði að lækka kostnað við söfnun og úrvinnslu lífræns úrgangs.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela Hjörvari sviðstjóra veitu- og framkvæmdasviðs og Sigurði Arnari forstöðumanni framkvæmda að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

3.Háeyri 8, L197232 - (Háeyri 6 og 8) Tillaga að breytingu á deiliskipulagi.

Málsnúmer 2512079Vakta málsnúmer

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Háeyri 8, L197232 - (Háeyri 6 og 8) kynnt.
Þann 11.12.2025 samþykkti skipulagsnefnd Skagafjarðar umsókn FISK-Seafood, lóðarhafa Háeyrar 6,landnr. 179232, og Háeyrar 8, landnr. 197574, um heimild til að láta vinna breytingu á deiliskipulagi Sauðárkrókshafnar á sinn kostnað skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í bókun skipulagsnefndar var minnt á að skipulagið skildi unnið í samráði við landbúnaðar- og innviðanefnd Skagafjarðar, sbr. Hafnarreglugerð Skagafjarðar.
Landbúnaðar- og innviðanefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.

4.Vegagerðin - fundur með svæðismiðstöð á Akureyri

Málsnúmer 2602010Vakta málsnúmer

Farið yfir fund sem haldinn var með fulltrúum Vegagerðarinnar á Akureyri fimmtudaginn 29. janúar sl. Fyrir hönd sveitarfélagsins voru á fundinum frá landbúnaðar- og innviðanefnd þau Einar. Einarsson, Sólborg S. Borgarsdóttir og Sveinn F. Úlfarsson, Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri og Hjörvar Halldórsson sviðstjóri veitu- og framkvæmdarsviðs.
Á fundinum var farið yfir þau fjölmörgu verkefni sem bíða úrlausnar í vegamálum í Skagafirði, en hér er bæði hátt hlutfall malarvega ásamt því að í sveitarfélaginu er 21 einbreið brú. Þörfin fyrir viðhaldi og endurbótum vega er því mikil.
Fram kom á fundinum að einu verulegu vegaumbæturnar sem áætlar eru næstu 5 árin eru uppbygging og endurgerð á Sæmundarhlíðarvegi og Hegranesvegi frá Sauðárkróksbraut að Kárastöðum. Báðar þessar framkvæmdir eru á núverandi áætlun og verða framkvæmdar árin 2028-2029. Verði tillaga að nýrri samgönguáætlun að veruleika er ekki útlit fyrir að þetta breytist því gert er ráð fyrir í þeirri áætlun að framlag til tengivega lækki frá því sem áður var áætlað og því ekki líkur á hraðari eða meiri framkvæmdum hér. Engar áætlanir eru um fækkun eða endurnýjun einbreiðra brúa, en til þess skortir fjármagn. Skoða á möguleika þess að laga brúna yfir Merkigil, en sú brú þarf verulega á viðhaldi að halda. Verði fyrirliggjandi tillaga að samgönguáætlun að veruleika óbreytt koma til framkvæmda Fljótagöng og endurbygging Siglufjarðarvegar frá Stafá að Ketilási. Gert er ráð fyrir að þær framkvæmdir standi yfir frá 2027 til 2031.
Rætt var einnig um brýna þörf á viðhaldi girðinga með vegum og þá sérstaklega Þverárfjallsvegi og með þjóðvegi eitt. Verða þau mál skoðuð áfram en í núverandi tillögu að samgönguáætlun er ekki gert ráð fyrir auknu fjármagni til girðinga með vegum, ásamt því að nýr ytri garður við Sauðárkróks höfn er ekki að fullu fjármagnaður fyrir árið 2030.
Fulltrúar sveitarfélagsins Skagafjarðar þakka fulltrúum Vegagerðarinnar góðan og upplýsandi fund, en ljóst er að verulegt fjármagn vantar í tillögu að samgönguáætlun 2026-2040, og framkvæmdaráætlun 2026-2030, sem nú eru í vinnslu Alþingis.

5.Framtíðin og íslenskar hafnir - skýrsla

Málsnúmer 2601144Vakta málsnúmer

Kynnt skýrsla - Framtíðin og íslenskar hafnir

6.Hafnasambandsþing 2026

Málsnúmer 2601195Vakta málsnúmer

Hafnasambandsþing 2026 verður haldið í Stapa í Reykjanesbæ 22.-23. október 2026.

7.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

Málsnúmer 2601012Vakta málsnúmer

Til kynningar - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

Fundi slitið - kl. 11:40.