Farið yfir fund sem haldinn var með fulltrúum Vegagerðarinnar á Akureyri fimmtudaginn 29. janúar sl. Fyrir hönd sveitarfélagsins voru á fundinum frá landbúnaðar- og innviðanefnd þau Einar. Einarsson, Sólborg S. Borgarsdóttir og Sveinn F. Úlfarsson, Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri og Hjörvar Halldórsson sviðstjóri veitu- og framkvæmdarsviðs.
Á fundinum var farið yfir þau fjölmörgu verkefni sem bíða úrlausnar í vegamálum í Skagafirði, en hér er bæði hátt hlutfall malarvega ásamt því að í sveitarfélaginu er 21 einbreið brú. Þörfin fyrir viðhaldi og endurbótum vega er því mikil.
Fram kom á fundinum að einu verulegu vegaumbæturnar sem áætlar eru næstu 5 árin eru uppbygging og endurgerð á Sæmundarhlíðarvegi og Hegranesvegi frá Sauðárkróksbraut að Kárastöðum. Báðar þessar framkvæmdir eru á núverandi áætlun og verða framkvæmdar árin 2028-2029. Verði tillaga að nýrri samgönguáætlun að veruleika er ekki útlit fyrir að þetta breytist því gert er ráð fyrir í þeirri áætlun að framlag til tengivega lækki frá því sem áður var áætlað og því ekki líkur á hraðari eða meiri framkvæmdum hér. Engar áætlanir eru um fækkun eða endurnýjun einbreiðra brúa, en til þess skortir fjármagn. Skoða á möguleika þess að laga brúna yfir Merkigil, en sú brú þarf verulega á viðhaldi að halda. Verði fyrirliggjandi tillaga að samgönguáætlun að veruleika óbreytt koma til framkvæmda Fljótagöng og endurbygging Siglufjarðarvegar frá Stafá að Ketilási. Gert er ráð fyrir að þær framkvæmdir standi yfir frá 2027 til 2031.
Rætt var einnig um brýna þörf á viðhaldi girðinga með vegum og þá sérstaklega Þverárfjallsvegi og með þjóðvegi eitt. Verða þau mál skoðuð áfram en í núverandi tillögu að samgönguáætlun er ekki gert ráð fyrir auknu fjármagni til girðinga með vegum, ásamt því að nýr ytri garður við Sauðárkróks höfn er ekki að fullu fjármagnaður fyrir árið 2030.
Fulltrúar sveitarfélagsins Skagafjarðar þakka fulltrúum Vegagerðarinnar góðan og upplýsandi fund, en ljóst er að verulegt fjármagn vantar í tillögu að samgönguáætlun 2026-2040, og framkvæmdaráætlun 2026-2030, sem nú eru í vinnslu Alþingis.