Landbúnaðar- og innviðanefnd
Dagskrá
1.Fjárhagsáætlun 2026 - Landbúnaðar og innviðanefnd
Málsnúmer 2509287Vakta málsnúmer
2.Gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar 2026
Málsnúmer 2508128Vakta málsnúmer
Lögð fram gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar 2026
Á síðustu vikum hefur mikil vinna verið lögð í að greina stöðu sorpmála og hvernig hagræða megi í málaflokknum. Á árinu 2025 hefur rekstur málaflokksins gengið vel og er rekstrarniðurstaðan á áætlun, þ.e.a.s að málaflokkurinn er hvorki rekinn með tapi né hagnaði. Í þessu samhengi hefur góður árangur íbúa í flokkun á sorpi og minnkandi magn sem fer frá heimilunum til urðunnar haft jákvæð áhrif á reksturinn.
Á árinu 2026 er gert ráð fyrir að samningsbundnar hækkanir til Íslenska Gámafélagsins (ÍG), hækki um 5% ásamt því að fyrir liggur að urðunargjaldið hjá Norðurá bs. hækkar um 4,3% fyrir urðun á sorpi frá heimilum.
Núverandi sorpsöfnunarkerfi var komið á 1. apríl 2023 með samningi við ÍG og hefur það gengið vel þegar á heildina er litið. Engu að síður þarf að þróa kerfið með aukinni reynslu. Eftir samtöl við ÍG um mögulegar breytingar fyrir árið 2026 er lagt til að söfnun í dreifbýli (120 lítra tunnur), verði með þeim hætti að sorp til urðunar og lífræna tunnan verði tæmdar á 4. vikna fresti, en pappa- og plasttunnan áfram á 6. vikna fresti. Með þessari hagræðingu næst fram tæplega 4% lækkun á sorpgjöldum ásamt því að umrædd samningsbundin hækkun kemur ekki inn. Raunlækkun sorpgjalda heimilanna er því 9% milli áranna 2025 og 2026.
Söfnun dýrahræja og kostnaður við hann er einnig á áætlun á árinu 2025 en gerðar voru miklar breytingar á kerfinu í upphafi árs 2025, en þá var ákveðið að fækka ferðum um 6 ásamt því að skerpt var á því hverju ætti að safna á kostnað búfjáreigenda og hvað þeir eða aðrir ættu að greiða fyrir aukalega. Það er fyrst og fremst sláturúrgangur og annar úrgangur sem ekki kemur frá gjaldskyldum dýrategundum.
Áætlað er að samningsbundnar hækkanir til ÍG vegna þessarar þjónustu hækki um 5% á árinu 2026 ásamt því að Norðurá bs. hækkar urðun á dýrahræjum um 5,6% milli áranna 2025 og 2026.
Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða breytingu á fjölda ferða í dreifbýli fyrir árið 2026 ásamt fyrirliggjandi gjaldskrá sem í heildina þýðir 4,0% lækkun sorphirðugjalda til heimila, en hækkun gripagjalds um 4,6% fyrir árið 2026.

3.Deiliskipulag Sauðárkrókshafnar, Eyrarvegur 18, L143288, og Eyrarvegur 20, L143289 - Umsókn um breytingu lóðamarka
Málsnúmer 2510065Vakta málsnúmer
Lögð fram umsókn frá Fisk Seafood og Kaupfélagi Skagfirðinga um breytingu lóðamarka milli Eyrarvegs 18 L143288, og Eyrarvegs 20, L143289.
Landbúnaðar-og innviðanefnd samþykkir erindið samhljóða.

4.Ósk um land til þrifabeitar
Málsnúmer 2510165Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Rósönnu Valdimarsdóttur um land til beitar í Steinsstaðahverfi.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir umbeðið erindi samhljóða. Jafnframt felur nefndin umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa að taka saman lista yfir þau svæði sem hægt er að úthluta til þrifabeitar og afgreiða í framhaldinu þær beiðnir sem berast.

5.Gjaldskrá Norðurár bs 2026
Málsnúmer 2510182Vakta málsnúmer
Gjaldskrá Norðurár bs. 2026 lögð fram til kynningar
6.Hraðakstur í íbúðahverfum
Málsnúmer 2507060Vakta málsnúmer
Landbúnaðar og innviðanefnd bókaði þann 10 júlí sl. að grípa þyrfti til aðgerða vegna hraðaksturs í íbúagötum og fól starfsmönnum Veitu- og framkvæmdasviðs að leggja fram tillögur um úrbætur. Þær tillögur eru nú lagðar fyrir fundinn. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða framlagða tillögu Veitu og framkvæmdasviðs um uppsetningu færanlegra götuþrenginga á Hólavegi, Hólmagrund og Sæmundargötu.
Fundi slitið - kl. 12:40.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða framlagðar fjárhagsáætlanir fyrir árið 2026 vegna ofangreindra málaflokka og vísar til byggðarráðs til afgreiðslu.
Hafnarstjóri Dagur Þór Baldvinsson og skrifstofustjóri Skagafjarðarveitna Árni Egilsson sátu fundinn undir þessum lið.