Fræðslunefnd
Dagskrá
1.Skýrslubeiðni um starfsdaga í leik-, grunn- og tónlistarskólum
Málsnúmer 2602118Vakta málsnúmer
Lagðar fram skýrslur með samantekt um starfsdaga skólaárið 2024-2025 í Árskóla, Varmahlíðarskóla, Birkilundi, Tröllaborg og Tónlistarskóla Skagafjarðar. Í skýrslunum kemur fram það sem gert var á starfsdögum skólanna bæði þeim dögum sem eru á starfstíma nemenda og utan þess tíma. Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að þessar skýrslur verðir lagðar fram á fyrsta fundi fræðslunefndar í október ár hvert fyrir skólaárið á undan.
2.Reglur um stuðning í námi í leikskólakennarafræðum
Málsnúmer 2602130Vakta málsnúmer
Skagafjörður setti sér reglur fyrir starfsmenn leikskóla vegna stuðnings við nám í leikskólakennarafræðum árið 2022 sem gilda til ársins 2027. Verkefnið hefur gefið góða raun og hafa talsvert margir starfsmenn bætt við sig menntun sem nýtist vel í leikskólum Skagafjarðar. Fræðslunefnd vill áfram stuðla að hærra menntunarstigi meðal starfsfólks en leggur áherslu á að fjöldi starfsmanna í námi valdi ekki erfiðleikum í daglegu starfi leikskóla héraðsins. Nefndin felur starfsfólki nefndarinnar að endurskoða reglur um stuðning í námi í leikskólakennarafræðum með það að markmiði að skýra betur hvar þolmörkin liggja hjá hverjum leikskóla þegar kemur að fjölda starfsmanna í námi hverju sinni. Samþykkt samhljóða.
3.Sumarlokanir í leikskólum 2026
Málsnúmer 2512032Vakta málsnúmer
Sumarlokanir Birkilundar og Tröllaborgar verða í 5 vikur eins og staðfest skóladagatal 2025-2026 gerir ráð fyrir.
Síðustu ár hafa ólíkar útfærslur sumarleyfistímabils barna verið prófaðar í leikskólanum Ársölum. Leikskólinn hefur verið lokaður í fjórar vikur, opinn allt sumarið og lokaður í tvær vikur. Alltaf hefur verið gerð krafa um að börn fari að lágmarki í samfellt 4 vikna sumarfrí. Erfiðlega hefur gengið að manna þær stöður sem þurfti í Ársölum yfir sumartímann og einnig gengið illa að uppfylla orlofsskyldur gagnvart starfsmönnum.
Á þeim forsendum leggur fræðslunefnd til að sumarlokanir Ársala verði frá og með 10. júlí til og með 7. ágúst 2026. Á sumarleyfistíma mun framkvæmdasvið sveitarfélagsins vinna í viðhaldi á lóð Ársala þar sem m.a. á að bæta við leiktækjum og lagfæra lóðina skv. áætlun sem búið er að gera. Einnig mun framkvæmdasvið sveitarfélagsins vinna að lagfæringum innandyra í Ársölum með áherslu á að bæta hljóðvist, í samráði við leikskólastjóra.
Boðið verður upp á niðurfellingu gjalda í leikskólum Skagafjarðar ef sumarleyfi eru tekin á tímabilinu 8. júní til 9. júlí 2026. Skilyrði er að leyfið sé að lágmarki vika í senn. Leikskólastjórnendur munu senda út nánari upplýsingar til foreldra. Samþykkt samhljóða.

4.Starfsumhverfi leikskóla í Skagafirði
Málsnúmer 2510244Vakta málsnúmer
Auðnast ehf. hefur lagt fram tillögur til úrbóta í leikskólanum Ársölum. Tillögurnar snúa að þremur þáttum; Manneklu og fjarvistum, stjórnun og stjórnsýslu. Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna með tillögurnar í samræmi við umræðu nefndarinnar.
5.Trúnaðarbók fræðslunefndar
Málsnúmer 2601069Vakta málsnúmer
Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók.
Fundi slitið - kl. 17:10.