Fara í efni

Sumarlokanir í leikskólum 2026

Málsnúmer 2512032

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 45. fundur - 18.02.2026

Sumarlokanir Birkilundar og Tröllaborgar verða í 5 vikur eins og staðfest skóladagatal 2025-2026 gerir ráð fyrir.

Síðustu ár hafa ólíkar útfærslur sumarleyfistímabils barna verið prófaðar í leikskólanum Ársölum. Leikskólinn hefur verið lokaður í fjórar vikur, opinn allt sumarið og lokaður í tvær vikur. Alltaf hefur verið gerð krafa um að börn fari að lágmarki í samfellt 4 vikna sumarfrí. Erfiðlega hefur gengið að manna þær stöður sem þurfti í Ársölum yfir sumartímann og einnig gengið illa að uppfylla orlofsskyldur gagnvart starfsmönnum.
Á þeim forsendum leggur fræðslunefnd til að sumarlokanir Ársala verði frá og með 10. júlí til og með 7. ágúst 2026. Á sumarleyfistíma mun framkvæmdasvið sveitarfélagsins vinna í viðhaldi á lóð Ársala þar sem m.a. á að bæta við leiktækjum og lagfæra lóðina skv. áætlun sem búið er að gera. Einnig mun framkvæmdasvið sveitarfélagsins vinna að lagfæringum innandyra í Ársölum með áherslu á að bæta hljóðvist, í samráði við leikskólastjóra.

Boðið verður upp á niðurfellingu gjalda í leikskólum Skagafjarðar ef sumarleyfi eru tekin á tímabilinu 8. júní til 9. júlí 2026. Skilyrði er að leyfið sé að lágmarki vika í senn. Leikskólastjórnendur munu senda út nánari upplýsingar til foreldra. Samþykkt samhljóða.