Skýrslubeiðni um starfsdaga í leik-, grunn- og tónlistarskólum
Málsnúmer 2602118
Vakta málsnúmerFræðslunefnd - 45. fundur - 18.02.2026
Lagðar fram skýrslur með samantekt um starfsdaga skólaárið 2024-2025 í Árskóla, Varmahlíðarskóla, Birkilundi, Tröllaborg og Tónlistarskóla Skagafjarðar. Í skýrslunum kemur fram það sem gert var á starfsdögum skólanna bæði þeim dögum sem eru á starfstíma nemenda og utan þess tíma. Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að þessar skýrslur verðir lagðar fram á fyrsta fundi fræðslunefndar í október ár hvert fyrir skólaárið á undan.