Fara í efni

Félagsmála- og tómstundanefnd

43. fundur 23. mars 2026 kl. 15:00 - 16:04 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigurður Bjarni Rafnsson formaður
  • Sandra Björk Jónsdóttir varaform.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
Fundargerð ritaði: Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Hvatapeningar 2026

Málsnúmer 2510148Vakta málsnúmer

Reglur um sérstaka hvatapeninga lagðar fyrir nefndina. Samkvæmt þeim geta foreldrar sótt um sérstaka hvatapeninga á grundvelli tekna og er þá miðað við heildartekjur sl. þriggja mánaða í samræmi við tekjuviðmið sem Skagafjörður setur. Sérstakir hvatapeningar geta numið allt að 20.000 kr. á ári fyrir hvert barn. Skilyrði er að búið sé að nýta almenna hvatapeninga áður en sótt er um sérstaka hvatapeninga. Um er að ræða tímabundið verkefni til tveggja ára sem skal endurskoða fyrir lok árs 2027. Fjármagn vegna þessa verður tekið af framlagi vegna sérstakra íþrótta og tómstundastyrkja sem veitt var í kjölfar heimsfaraldurs Covid. Nefndin samþykkir reglurnar samhljóða fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu byggðarráðs.

Á félagsmála- og tómstundanefndarfundi þann 27. október síðastliðinn lögðu fulltrúar VG og Óháðra og Byggðalista fram tillögu þess efnis að sveitarfélagið Skagafjörður tæki upp tekjutengdar viðbótargreiðslur hvatapeninga upp á 20.000 kr. til foreldra/forsjáraðila sem eru undir skilgreindum heildar viðmiðunartekjum heimilisins miðað við launavísitölu hvers árs. Á þeim fundi hafnaði meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks tillögunni. Það er því afskaplega ánægjulegt að sjá að tillaga okkar í minnihluta hefur samt sem áður fengið brautargengi á fundi hér í dag, bara undir öðrum formerkjum. Á sama fundi lögðu VG og óháð og Byggðalisti einnig fram tillögu um breytingu á aldursviðmiðun Hvatapeninga úr 5-18 ára í 0-18 ára en þeirri tillögu var jafnframt hafnað, m.a. á þeim forsendum að samvera barna og foreldra án áreitis væru svo mikilvæg. Rétt er þó að benda á að samvera barns og foreldra felst einnig í þátttöku í tónlistarnámi, sundnámskeiðum og öðru sambærilegu starfi, þar sem áreiti er ekki endilega mikið. Að útiloka yngsta aldurshópinn á þeim forsendum felur í sér talsverða forræðishyggju og takmarkar val foreldra. Slík nálgun getur jafnframt stuðlað að auknum ójöfnuði í samfélagi sem skilgreinir sig sem heilsueflandi og barnvænt.
Emilía Ragnheiður Barðdal Róbertsdóttir og Sigríður Hrafnhildur Stefánsdóttir, fulltrúar ungmennaráðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.

2.Ungmennaráð Skagafjarðar - fundagerðir

Málsnúmer 2301204Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar tvær fundargerðir ungmennaráðs, frá 19. nóvember 2025 og 6. febrúar 2026.
Emilía Ragnheiður Barðdal Róbertsdóttir og Sigríður Hrafnhildur Stefánsdóttir, fulltrúar ungmennaráðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.

3.Fyrirspurn vegna æfinga á gervigrasvellinum á Sauðárkróki vegna meistaraflokks Kormáks/Hvatar

Málsnúmer 2603204Vakta málsnúmer

Meistaraflokksráð Kormáks Hvatar fer þess á leit við Skagafjörð að keppnislið þeirra fái afnot af hálfum gervigrasvelli sveitarfélagsins á tilteknum dagsetningum frá 25. mars til 1. maí 2026. Alls eru fyrirhugaðar æfingar 23 talsins á tímabilinu. Óskað er eftir því að Skagafjörður veiti Kormáki Hvöt brautargengi í hörðum rekstri íþróttafélaga með aðgengi að æfingavellinum og einnig er óskað eftir gjaldfrjálsum afnotum að vellinum á umræddum æfingum.

Félagsmála- og tómstundanefnd telur sér ekki fært að verða við fyrirliggjandi beiðni um niðurfellingu leigugjalda og bendir á fyrirliggjandi gjaldskrá íþróttamannvirkja í Skagafirði. Nefndin hafnar erindinu samhljóða.
Emilía Ragnheiður Barðdal Róbertsdóttir og Sigríður Hrafnhildur Stefánsdóttir, fulltrúar ungmennaráðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.

4.Páskamót Molduxa 2026

Málsnúmer 2603097Vakta málsnúmer

Íþróttafélagið Molduxar óskar eftir endurgjaldslausum afnotum að íþróttahúsinu á Sauðárkróki vegna páskamóts félagsins þann 3. apríl nk. Nefndin samþykkir samhljóða að fella niður leigu á íþróttahúsinu vegna þessa og vísar til 4. gr. reglna vegna útleigu íþróttahúsa Skagafjarðar til skemmtanahalds í ákvörðun sinni.

5.Umsókn um rými fyrir heilabilaða í dagdvöl

Málsnúmer 2511203Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Heilbrigðisráðuneytinu dags. 18. mars sl. Tölvupósturinn inniheldur svar við umsókn sem fór frá Skagafirði 28. nóvember 2025 þar sem óskað var eftir fjármagni og endurmati á samningi til að breyta fjórum almennum rýmum í dagdvöl aldraðra á Sauðárkróki í fjögur sérhæfð rými fyrir fólk með heilabilun. Fram kemur í póstinum að erindinu sé hafnað á forsendum þess að það er ekki fjárhagslegt svigrúm til að verða við beiðninni. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að vísa málinu til byggðaráðs.

6.Fundargerðir fagráðs - málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 2601063Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar þrjár fundargerðir nr. 44 frá febrúar sl. nr. 45 og 46 frá mars 2026.

Fundi slitið - kl. 16:04.