Fara í efni

Umsókn um rými fyrir heilabilaða í dagdvöl

Málsnúmer 2511203

Vakta málsnúmer

Félagsmála- og tómstundanefnd - 43. fundur - 23.03.2026

Lagður fram tölvupóstur frá Heilbrigðisráðuneytinu dags. 18. mars sl. Tölvupósturinn inniheldur svar við umsókn sem fór frá Skagafirði 28. nóvember 2025 þar sem óskað var eftir fjármagni og endurmati á samningi til að breyta fjórum almennum rýmum í dagdvöl aldraðra á Sauðárkróki í fjögur sérhæfð rými fyrir fólk með heilabilun. Fram kemur í póstinum að erindinu sé hafnað á forsendum þess að það er ekki fjárhagslegt svigrúm til að verða við beiðninni. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að vísa málinu til byggðaráðs.

Byggðarráð Skagafjarðar - 188. fundur - 01.04.2026

Vísað frá 43. fundi félagsmála- og tómstundanefndar, 23. mars 2026, þannig bókað:
"Lagður fram tölvupóstur frá Heilbrigðisráðuneytinu dags. 18. mars sl. Tölvupósturinn inniheldur svar við umsókn sem fór frá Skagafirði 28. nóvember 2025 þar sem óskað var eftir fjármagni og endurmati á samningi til að breyta fjórum almennum rýmum í dagdvöl aldraðra á Sauðárkróki í fjögur sérhæfð rými fyrir fólk með heilabilun. Fram kemur í póstinum að erindinu sé hafnað á forsendum þess að það er ekki fjárhagslegt svigrúm til að verða við beiðninni. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að vísa málinu til byggðaráðs."

Byggðarráð Skagafjarðar harmar að heilbrigðisráðuneytið hafi hafnað umsókn Skagafjarðar með þeim rökum einum að því miður sé ekki fjárhagslegt svigrúm til að verða við beiðninni að sinni. Með því svari er ljóst að ríkisvaldið er að velta fjárhagslegum byrðum og ábyrgð vegna 1. stigs heilbrigðisþjónustu, sem lögum samkvæmt er á ábyrgð ríkisins, yfir á sveitarfélagið Skagafjörð og einstaka starfsmenn þess. Enn fremur má líta til þess að fjöldi þeirra dagdvalarrýma og umfang þjónustu sem úthlutað er til Skagafjarðar, skv. gjaldskrá Sjúkratrygginga nr. 146/2026, er í engu samræmi við íbúafjölda í Skagafirði og ekki í samræmi við úthlutuð dagdvalarpláss eða tegund dagdvalarplássa sé litið til fjölmargra svæða og sveitarfélaga hér á landi.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að óska eftir fundi með heilbrigðisráðherra vegna málsins.