Félagsmála- og tómstundanefnd
Dagskrá
1.Fjárhagsáætlun 2026 - málaflokkur 02_Félagsþjónusta
Málsnúmer 2506022Vakta málsnúmer
Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2026 ásamt forsendum lagður fram til kynningar. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að taka málið fyrir á fundi nefndarinnar í ágúst og bjóða til hans starfsmönnum af stjórnsýslu - og fjármálasviði.
2.Fjárhagsáætlun 2026 - málaflokkur 06_Æskulýðs- og íþróttamál
Málsnúmer 2506023Vakta málsnúmer
Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2026 ásamt forsendum lagður fram til kynningar. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að taka málið fyrir á fundi nefndarinnar í ágúst og bjóða til hans starfsmönnum af stjórnsýslu - og fjármálasviði.
3.Styrkbeiðni v. utanvegahlaups
Málsnúmer 2506095Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur frá Steinunni Gunnsteinsdóttur f.h. skipuleggjenda Molduxa trail. Beiðni um frían aðgang í sundlaugar Skagafjarðar fyrir þátttakendur í Molduxa trail hlaupinu sem áætlað er að halda í ágúst nk. Nefndin fagnar framtakinu og samþykkir að veita frían aðgang fyrir skráða þátttakendur í sundlaugina á Sauðárkróki.
Guðlaugur Skúlason og Jóhanna Ey Harðardóttir viku af fundi undir þessum lið.
4.Umsókn um framlag úr Jöfnunarsjóði 4.gr.
Málsnúmer 2504060Vakta málsnúmer
Jöfnunarsjóður samþykkti umsókn fjölskyldusviðs um framlag með tilvísun í 4. gr. reglugerðar um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk nr. 192/2023.
Sótt var um styrk til verkefnis sem felur í sér innra eftirlit í þjónustu við fatlað fólk og úrbótavinnu sem nýtist til nýsköpunar og frekari þróunarvinnu í málaflokknum. Veitt var framlag allt að 13,2 m.kr. vegna framangreindrar úttektar. Nefndin fagnar vinnu fjölskyldusviðs og áframhaldandi úrbótavinnu.

5.Fagráð - fjallað um og veitt ráðgjöf um einstök mál
Málsnúmer 2107015Vakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar 36.fundargerð frá 26.maí 2025
6.Trúnaðarbók félagsmála- og tómstundanefndar 2025
Málsnúmer 2501432Vakta málsnúmer
Lögð fram 2 mál, skráð í trúnaðarbók.
Þorvaldur Gröndal vék af fundir undir þessum lið.
Fundi slitið - kl. 11:45.