Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

274. fundur 30. janúar 2020 kl. 15:00 - 16:55 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir formaður
  • Atli Már Traustason varaform.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir ritari
  • Anna Lilja Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
  • Guðrún Helga Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi Akrahrepps
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri
  • Bertína Guðrún Rodriguez verkefnastjóri
  • Laufey Kristín Skúladóttir
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir
  • Regína Valdimarsdóttir
  • Álfhildur Leifsdóttir
  • Jóhanna Ey Harðardóttir
Fundargerð ritaði: Bertina Rodriguez sérfræðingur á fjölskyldusviði
Dagskrá

1.Samstarfssamningur Svf. Skagafjarðar og F.E.B.S.

Málsnúmer 2001235Vakta málsnúmer

Samstarfssamningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Félags eldri borgara í Skagafirði sem undirritaður var á Sauðárkróki þann 7. nóvember 2019 var lagður fram til kynningar. Nefndin lýsir ánægju sinni með samninginn og leggur til að Félags- og tómstundanefnd fundi með stjórn F.E.B.S fyrir næsta starfsár.

2.Afnot af íþróttahúsinu á Sauðárkróki

Málsnúmer 2001207Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Grétari Örvarssyni, fyrir hönd Stjórnarinnar, þar sem óskað er eftir afnotum að íþróttahúsinu á Sauðárkróki endurgjaldslaust vegna dansleiks í Sæluviku. Nefndin hafnar beiðninni með vísan í gjaldskrá íþróttamannvirkja. Mikilvægt er að árétta að afnot af íþróttahúsinu til slíkra viðburða felur óhjákvæmilega í sér kostnað sem fellur á íþróttahúsið. Kostnaður þessi er fyrst og fremst aukinn launakostnaður vegna uppsetningar á sviði, lagningar hlífðarlags á gólf, skreytinga og ljósabúnaðar, þrifa, aukins eftirlits á meðan á leigu stendur o.fl. Vegna þessa hefur verið sett sértök gjaldskrá fyrir útleigu til ýmissa menningarviðburða/dansleikja. Gjaldskránni er ætlað að koma að einhverju leyti til móts við þann kostnað sem slík úleiga felur í sér.

3.Styrkbeiðni vegna sýningar á Hans Klaufa á Sauðárkróki

Málsnúmer 1910152Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Leikhópnum Lottu þar sem óskað er eftir afnotum að íþróttahúsinu á Sauðárkróki endurgjaldslaust vegna leiksýningar. Nefndin hafnar beiðninni þar sem um viðburð er að ræða sem selt er inn á.

Mikilvægt er að árétta að afnot af íþróttahúsinu til slíkra viðburða felur óhjákvæmilega í sér kostnað sem fellur á íþróttahúsið. Gjaldskrá fyrir útleigu á íþróttahúsinu er ætlað að koma að einhverju leyti til móts við þann kostnað sem slík úleiga felur í sér. Húsaleiga væri í þessu tilviki um 25 þús. kr.

4.Auglýsingar og nafngiftir íþróttamannvirkja

Málsnúmer 1912012Vakta málsnúmer

Lagðar fram reglur vegna auglýsinga á/í íþróttamannvirkjum og íþróttasvæðum sveitarfélagsins. Nefndin samþykkir framlagðar reglur.
Herdís Á. Sæmundardóttir sat fundinn undir liðum 1-4 og Guðrún Helga Jónsdóttir fullrtúi Akrahrepps sat fundinn undir þessum lið

5.Beiðni um endurskoðun samninga

Málsnúmer 1912063Vakta málsnúmer

Erindi frá stjórn GSS tekið fyrir. Nefndin felur sviðsstjóra að vinna áfram að málinu.

6.Jafnréttisþing febrúar 2020

Málsnúmer 1912155Vakta málsnúmer

Jafnréttisþing 2020 verður haldið þann 20. febrúar í Hörpu. Nefndin samþykkir að þeir nefndarmenn sem sjái sér fært að mæta taki þátt.

7.Leiðbeiningar fyrir sveitarfélög um framkvæmd frístundaþjónustu

Málsnúmer 2001067Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar leiðbeiningar fyrir sveitarfélög varðandi framkvæmd frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk, með langvarandi stuðningsþarfir. Frístundastjóra hefur verið falið að halda utan um vinnu við gerð verklagsreglna innan Sveitarfélagsins Skagafjarðar, unnar útfrá þessum leiðbeiningum. Myndaður hefur verið starfshópur sem skila mun tillögum á vormánuðum.
Þorvaldur Gröndal sat fundinn undir liðum 1-5 og lið 7

8.Félag eldri borgara í Skagafirði - styrkbeiðni 2020

Málsnúmer 2001218Vakta málsnúmer

Erindi frá Félagi eldri borgara í Skagafirði.
Í samræmi við fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 samþykkir nefndin að veita Félagi eldri borgara í Skagafirði 280.000 króna styrk vegna félagsstarfa.

9.Félag eldri borgara Löngumýri - styrkbeiðni

Málsnúmer 1912126Vakta málsnúmer

Erindi frá Helgu Bjarnadóttur f.h. eldri borgara sem sækja félagsstarf á Löngumýri.
Í samræmi við fjárhagsáætlun 2020 samþykkir nefndin að veita 150.000 króna styrk vegna húsaleigu á Löngumýri.

10.Félag eldri borgara Hofsósi - styrkbeiðni 2020

Málsnúmer 2001217Vakta málsnúmer

Erindi frá Félagi eldri borgara á Hofsósi.
Í samræmi við fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 samþykkir nefndin að veita Félagi eldri borgara á Hofsósi 100.000 króna styrk vegna félagsstarfa.

11.Aflið - styrkbeiðni vegna 2020

Málsnúmer 1912064Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um styrk frá Aflinu á Akureyri. Nefndin samþykkir að styrkja Aflið um 100.000 krónur vegna starfsins á árinu 2020 og hvetur jafnframt til þess að samtökin heimsæki grunnskólana í Skagafirði með erindi um forvarnir.

12.Umsókn um styrk til rekstur Bergsins 2020

Málsnúmer 1910062Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn frá Berginu um rekstrarstyrk fyrir árið 2020. Nefndin samþykkir styrkveitingu að fjárhæð kr. 75.000 af málaflokki 02890. Ýmsir styrkir og framlög.

13.Beiðni um rekstrarstyrk 2020 Kvennaathvarf

Málsnúmer 1910172Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn frá Kvennaathvarfinu um rekstrarstyrk fyrir árið 2020. Nefndin samþykkir styrkveitingu að fjárhæð kr. 75.000 af málaflokki 02890. Ýmsir styrkir og framlög.

14.Stígamót - styrkbeiðni 2020

Málsnúmer 2001219Vakta málsnúmer

Lögð fram styrkbeiðni frá Stígamótum vegna starfsemi samtakanna. Nefndin telur sér ekki fært að veita styrk að þessu sinni en óskar Stígamótum alls góðs í störfum sínum.

Fundi slitið - kl. 16:55.