Fara í efni

Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki

9. fundur 17. apríl 2026 kl. 14:38 - 16:19 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Guðlaugur Skúlason aðalm.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Berglind Þorsteinsdóttir forstöðumaður byggðasafns
  • Kristín Sigurrós Einarsdóttir forstöðumaður héraðsbókasafns
  • Sólborg Una Pálsdóttir forstöðumaður héraðsskjalasafns
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Álfhildur Leifsdóttir sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað. Berglind Þorsteinsdóttir, Kristín Sigurrós Einarsdóttir og Sólborg Una Pálsdóttir véku af fundinum eftir fyrsta dagskrárlið hans.

1.Hönnun menningarhúss á Sauðárkróki

Málsnúmer 2509192Vakta málsnúmer

Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, fór yfir aðaluppdrætti nýs menningarhúss og fjallaði um efnisval.

2.Trúnaðarbók byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki

Málsnúmer 2604075Vakta málsnúmer

Skráð í trúnaðarbók.

3.Menningarhús - útboð jarðvinnu

Málsnúmer 2604005Vakta málsnúmer

Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, fór yfir útboðsgögn jarðvinnu fyrir nýtt menningarhús á Sauðárkróki.

Byggingarnefnd menningarhúss samþykkir með fjórum atkvæðum fyrirliggjandi útboðsgögn og felur sviðsstjóra að láta auglýsa útboðið. Jóhanna Ey Harðardóttir greiðir atkvæði á móti.

Jóhanna Ey Harðardóttir, fulltrúi Byggðalistans óskar bókað:
"Mikilvægt er að vandað sé til verka í framkvæmdum á vegum sveitarfélags, hönnun, teikningar og kostnaðaráætlanir séu fullunnar áður en verkið er boðið út þannig að reynt sé eftir fremsta megni að koma í veg fyrir aukaverk og aðra þætti sem gætu valdið því að framkvæmdakostnaður verði meiri en áætlanir stóðu fyrir. Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar sýni ábyrgð þegar kemur að forgangsröðun framkvæmda og ráðstöfun fjármagns sveitarfélagsins. Enn hefur ekki verið lögð fram kostnaðaráætlun vegna jarðvegsvinnu menningarhúss á Sauðárkróki. Að framangreindu tel ég óábyrgt að samþykkja útboð til jarðvinnu menningarhúss á Sauðárkróki."

Fulltrúar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks ásamt VG og óháðra óska bókað:
"Fulltrúar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og VG og óháðra vilja árétta að þetta er ákvörðun um að fara í útboð á jarðvegsvinnu vegna tilvonandi Menningarmiðstöðvar. Jafnframt liggur fyrir kostnaðaráætlun sem er birt fulltrúum í byggingarnefnd í trúnaði um þetta verk. Venjan er ekki sú að kjörnir fulltrúar hafi aðgang að síðustu kostnaðaráætlun verka en það er hins vegar gert í þessu tilfelli vegna umfangs verksins. Þegar niðurstaða úr útboði liggur fyrir er svo tekin ákvörðun um hvort viðkomandi tilboði sé tekið eða hafnað."

Fundi slitið - kl. 16:19.