Menningarhús - útboð jarðvinnu
Málsnúmer 2604005
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 196. fundur - 27.05.2026
Lögð fram til kynningar niðurstöður nýafstaðins útboðs jarðvinnu vegna Menningarhúss á Sauðárkróki.
Tilboð voru opnuð föstudaginn 22. maí sl. í verkið "Menningarhús í Skagafirði - Jarðvinna 2026". Þrjú tilboð bárust og hafa verið yfirfarin. Engar útreikningsskekkjur fundust og engar athugasemdir voru gerðar við tilboðsopnun. Niðurstaðan er sú að lægstbjóðandi var Þ. Hansen ehf. sem bauð 49.619.193 kr. sem er 35,1% af kostnaðaráætlun sem Verkís vann fyrir Skagafjörð vegna verksins.
Byggðarráð fagnar ánægjulegri niðurstöðu útboðs og að framundan sé fyrsti áfangi í verklegum framkvæmdum við uppbyggingu nýs menningarhúss.

Byggingarnefnd menningarhúss samþykkir með fjórum atkvæðum fyrirliggjandi útboðsgögn og felur sviðsstjóra að láta auglýsa útboðið. Jóhanna Ey Harðardóttir greiðir atkvæði á móti.
Jóhanna Ey Harðardóttir, fulltrúi Byggðalistans óskar bókað:
"Mikilvægt er að vandað sé til verka í framkvæmdum á vegum sveitarfélags, hönnun, teikningar og kostnaðaráætlanir séu fullunnar áður en verkið er boðið út þannig að reynt sé eftir fremsta megni að koma í veg fyrir aukaverk og aðra þætti sem gætu valdið því að framkvæmdakostnaður verði meiri en áætlanir stóðu fyrir. Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar sýni ábyrgð þegar kemur að forgangsröðun framkvæmda og ráðstöfun fjármagns sveitarfélagsins. Enn hefur ekki verið lögð fram kostnaðaráætlun vegna jarðvegsvinnu menningarhúss á Sauðárkróki. Að framangreindu tel ég óábyrgt að samþykkja útboð til jarðvinnu menningarhúss á Sauðárkróki."
Fulltrúar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks ásamt VG og óháðra óska bókað:
"Fulltrúar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og VG og óháðra vilja árétta að þetta er ákvörðun um að fara í útboð á jarðvegsvinnu vegna tilvonandi Menningarmiðstöðvar. Jafnframt liggur fyrir kostnaðaráætlun sem er birt fulltrúum í byggingarnefnd í trúnaði um þetta verk. Venjan er ekki sú að kjörnir fulltrúar hafi aðgang að síðustu kostnaðaráætlun verka en það er hins vegar gert í þessu tilfelli vegna umfangs verksins. Þegar niðurstaða úr útboði liggur fyrir er svo tekin ákvörðun um hvort viðkomandi tilboði sé tekið eða hafnað."