Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

945. fundur 16. desember 2020 kl. 15:00 - 15:29 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Stefán Vagn Stefánsson varaform.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson aðalm.
  • Bjarni Jónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjálmálasviðs
Dagskrá
Ólafur Bjarni Haraldsson tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað.

1.Stafrænt ráð sveitarfélaga

Málsnúmer 2012127Vakta málsnúmer

Samband íslenskra sveitarfélaga setti á stofn í október síðast liðnum, stafrænt ráð um samvinnu sveitarfélaga í stafrænni þróun. Fram kemur í bókun fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga eftirfarandi: "Stjórnin er jákvæð fyrir því að stofnað verði miðlægt tækniteymi sambandsins sem kostað verði af sveitarfélögunum skv. tillögu um kostnaðarþátttöku árið 2021. Forsenda þess að teymið verði stofnað er að meginþorri sveitarfélaga taki þátt í verkefninu en mikilvægt er að kynna það vel fyrir sveitarfélögum á næstu vikum. Gert er ráð fyrir að verkefnið sé tímabundið, til tveggja ára fyrst um sinn, með mögulegri framlengingu.
Stjórnin samþykkir einnig tillögu um feril ákvarðanatöku Stafræns ráðs við val á forgangsverkefnum og leggur áherslu á að ferlið verði kynnt vel fyrir öllum sveitarfélögum."
Byggðarráð samþykkir að taka þátt í samstarfinu.

2.Álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis í máli SNR 20110042 vegna notkunar fjarfundabúnaðar

Málsnúmer 2012097Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 8. desember 2020 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem vakin er athygli á áliti í máli SRN20110042 sem varðar notkun fjarfundarbúnaðar á fundum sveitarstjórna og nefnda sveitarfélaga.

3.Samningur um stofnframlag á grundvelli laga um almennar íbúðir

Málsnúmer 2012160Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur á milli Skagfirskra leiguíbúða hses og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um stofnframlag vegna byggingar leiguíbúða við Laugatún 21-23 og 25-27, samtals 32.915.727 kr.
Byggðarráð samþykkir framlagðan samning og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.

4.Gjaldskrá vatnsveita 2021

Málsnúmer 2011261Vakta málsnúmer

Lögð fram svohljóðandi bókun 72. fundar veitunefndar. "Farið yfir forsendur gjaldskrár vatnsveitu 2021. Vatnsgjald er reiknað af öllum fasteignum, sem eru gjaldskyldar, skal greiða vatnsgjald sem nemur 0,16% af álagningarstofni. Lágmarksgjald skal vera pr. rúmmetra kr. 44,94 og hámarksgjald pr. rúmmetra kr. 53,67. Veitunefnd samþykkir að vatnsgjald verði óbreytt og vísar til byggðaráðs."
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

5.Gjaldskrá 2021 - Sjóveita 65

Málsnúmer 2012030Vakta málsnúmer

Lögð fram svohljóðandi bókun 72. fundar veitunefndar: "Lögð var fram tillaga um 2,5% hækkun á gjaldskrá sjóveitu fyrir árið 2021. Veitunefnd samþykkir tillöguna og vísar til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

6.Gjaldskrá hitaveita 2021

Málsnúmer 2011260Vakta málsnúmer

Lögð fram svohljóðandi bókun 72. fundar veitunefndar: "Lögð var fram tillaga um 2,5% hækkun á gjaldskrá hitaveitu fyrir árið 2021. Veitunefnd samþykkir tillöguna og vísar til byggðarráðs. Lagt er til að gjaldskrá hitaveitunnar verði endurskoðuð á miðju ári 2021."
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

7.Heilsuræktarstyrkur 2021 reglur

Málsnúmer 2010136Vakta málsnúmer

Lagðar fram reglur um heilsuræktarstyrki til starfsmanna sveitarfélagsins vegna ársins 2021.
Byggðarráð samþykkir að heilsuræktarstyrkur til starfsmanna verði allt að 15.000 kr. á árinu 2021.

8.Fjárhagsáætlun 2021 - menningarmál - málaflokkur 05

Málsnúmer 2011168Vakta málsnúmer

Lögð fram fjárhagsáætlun málaflokks 05-Menningarmál.

9.Fjárhagsáætlun 2021 - atvinnu og ferðamál - málaflokkur 13

Málsnúmer 2011169Vakta málsnúmer

Lögð fram fjárhagsáætlun málaflokks 13-Atvinnu- og ferðamál.

10.Umsagnarbeiðni; frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð

Málsnúmer 2012134Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. desember 2020 þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð, 369. mál.
Málið rætt.

11.Samráð; Reglugerð um breytingu á reglugerð um söfnun gagna um framleiðslu, innflutning, geymslu og sölu á eldsneyti

Málsnúmer 2012085Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 7. desember 2020 þar sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 262/2020, "Reglugerð um breytingu á reglugerð um söfnun gagna um framleiðslu, innflutning, geymslu og sölu á eldsneyti".
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.

12.Samráð; Áform um breytingar á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Málsnúmer 2012117Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 10. desember 2020 þar sem dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 264/2020, "Áform um breytingar á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka".

13.Rekstrarupplýsingar 2020

Málsnúmer 2009064Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar rekstrarupplýsingar fyrir tímabilið janúar-október 2020.

14.Náttúrustofa Norðurlands vestra - ársreikningur 2019

Málsnúmer 2012106Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Náttúrustofu Norðurlands vestra fyrir árið 2019.

Fundi slitið - kl. 15:29.